Vitundarvakning gegn einsemd og einmanaleika
Félag kvenna í Kópavogi og Bókasafn Kópavogs taka höndum saman í viku einmanaleikans og bjóða upp á fræðslu og spjall þann 7. október næstkomandi kl. 17:00

Félag kvenna í Kópavogi og Bókasafn Kópavogs taka höndum saman í viku einmanaleikans og bjóða upp á fræðslu og spjall þann 7. október næstkomandi kl. 17:00-19:00.
„Við vorum svo heppin að fyrrum samstarfskona okkar á Bókasafni Kópavogs hafði samband við okkur fyrir hönd Félags kvenna í Kópavogi og óskaði eftir samstarfi vikuna 3. - 10. október sem tileinkuð er einsemd og einmanaleika,“ segir Lísa Z. Valdimarsdóttir forstöðumaður Bókasafns Kópavogs.
Vikan er vitundarvakning Kvenfélagasambands Íslands gegn einsemd og einmanaleika og er verkefninu ætlað að opna á umræðu um einmanaleika í samfélaginu, upplýsa almenning um orsakir og afleiðingar, hvetja til aðgerða og efla samtakamátt í þjóðfélaginu gegn einmanaleika. „Bókasafn Kópavogs gerir margt til að sporna við einmanaleika og er margt í boði hjá okkur fyrir öll. M.a. erum við með þrjá hannyrðaklúbba, þrjá bókmennta- og lesklúbba, Sögufélag Kópavogs stendur reglulega fyrir ýmsum viðburðum, rithöfundar koma til okkar á ýmsar uppákomur, Jane Austen klúbburinn er með aðsetur hjá okkur og tónleikar, ýmis fræðsla og uppákomur eru nánast daglega hjá okkur,“ bætir Lísa við.



