Vorhreinsun í Kópavogi
Vorhreinsun í Kópavogi fer fram dagana 30.apríl til 19.maí. Þá daga verða settir upp opnir gámar fyrir garðaúrgang á fimm stöðum í Kópavogi sem verða aðgen

Vorhreinsun í Kópavogi fer fram dagana 30.apríl til 19.maí. Þá daga verða settir upp opnir gámar fyrir garðaúrgang á fimm stöðum í Kópavogi sem verða aðgengilegir 30. apríl til 19. maí.
Gámarnir verða á eftirfarandi stöðum
- Kársnes, við grenndarstöðina Borgarholti
- Digranes , við íþróttahúsið Digranesi
- Smára- og Lindahverfi , neðst á Glaðheimasvæðinu, Álalind 2
- Sala- og Kórahverfi, við Salalaug á bílastæði
- Þinga- og Hvarfahverfi , á bílastæði við Vallakór 8
Gámarnir eru einungis fyrir garðaúrgang og óheimilt að setja annað í gámana. Við bendum á endurvinnslustöðvar Sorpu sem taka við öðrum úrgangi.
Athugið að ekki verður farið í götur bæjarins til að hirða garðaúrgang.

