Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2873. fundur

á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Drangey

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - formaður
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Ólafur Þór Gunnarsson - aðalfulltrúi
  • Birkir Jón Jónsson - áheyrnarfulltrúi
  • Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri

Starfsmenn

  • Páll Magnússon - bæjarritari

Ritari

  • Páll Magnússon

Dagskrá fundar

01

Mánaðarskýrslur 2017

Frá bæjarritara, lögð fram mánaðarskýrsla vegna starfsemi í mars.

Lagt fram.

02

Skólagerði 8, Kársnesskóli, húsnæðismál.

Frá starfshópi um húsnæðismál Kársnesskóla, dags. 29. maí, lögð fram tillaga ásamt greinargerð um húsnæðismál Kársnesskóla þar sem lagt er til að bygging Kársnesskóla við Skólagerði verði rifin, starfsemi skólans verði í Vallargerði á meðan byggingarframkvæmdir standa yfir og að nýr starfshópur verði skipaður til að vinna að hönnun nýrrar byggingar skólans. Bæjarráð frestaði afgreiðslu tillögunnar á fundi þann 1. júní sl.

Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

03

Sorphirða í Kóp - Framtíðarsýn

Frá deildarstjóra gatnadeildar, lögð fram skýrsla tækniráðs Sorpu um úrræði við söfnun plasts á höfuðborgarsvæðinu.

Lagt fram.

04

Fyrirspurn um lóð fyrir nýtt meðferðarheimili á höfuðborgarsvæðinu

Frá Framkvæmdasýslu ríkisins, dags. 29. maí, lögð fram fyrirspurn um lóð fyrir nýtt meðferðarheimili unglinga á höfuðborgarsvæðinu.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs og velferðarsviðs til umsagnar.

05

Framlög til Reykjanesfólkvangs 2017

Frá stjórn Reykjanesfólksvangs, dags. 1. júní, lagt fram erindi um hækkun framlags sveitarfélagsins til Reykjanesfólksvangs.

Bæjarráð samþykkir erindið með fimm atkvæðum með fyrirvara um að Reykjavíkurborg samþykki framlag í samræmi við erindið.

06

Sérstakur húsnæðisstuðningur. Nýjar reglur Kópavogsbæjar

Frá ÖBÍ, dags. 2. júní, lagt fram erindi um reglur Kópavogsbæjar um sérstakan húsnæðisstuðning.

Bæjarráð vísar málinu til sviðsstjóra velferðarsviðs til úrvinnslu.

07

BHM vekur athygli á kröfu SÍM um að myndlistarmenn fái greitt fyrir vinnu sína

Frá BHM, dags. 1. júní, lagt fram erindi um kröfu Sambands íslenskra myndlistarmanna um að myndlistarmenn fái greitt fyrir vinnu sína.

Lagt fram.

08

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 216. fundur frá 28.04.2017

Fundargerð í 13. liðum.

Lagt fram.

09

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 217. fundur frá 11.05.2017

Fundargerð í 13. liðum.

Lagt fram.

10

Fundargerð 223. fundar heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 24. apríl 2017

Fundargerð í 39. liðum.

Lagt fram.

11

Fundargerð 224. fundar heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 29. maí 2017

Fundargerð í 66. liðum.

Lagt fram.

12

Leikskólanefnd - 82. fundur frá 23.05.2017

Fundargerð í 5. liðum.

Lagt fram.

13

Lista- og menningarráð - 72. fundur frá 24.05.2017

Samþykkt með fimm atkvæðum að taka fundargerð lista- og menningarráðs frá 24. maí sl. inn á dagskrá með afbrigðum.

Fundargerð í 4. liðum.

Lagt fram.

14

Tillaga um málshraða við fyrirspurnum frá kjörnum fulltrúum

Tillaga frá Ólafi Þór Gunnarssyni, bæjarfulltrúa, um málshraða. Bæjarráð samþykkir að fela bæjarritara og bæjarlögmanni að móta tillögur um málsmeðferð þeirra mála sem bæjarfulltrúar og fulltrúar nefnda leggja fram í ráðum og nefndum bæjarins. Þá verði einnig mótaðar reglur um tíma sem tekur að svara málum hvort heldur fyrirspurnir beinast að embættismönnum eða kjörnum fulltrúum. Þá verði einnig gerðar tillögur um form svara sem lögð eru fram við formlegum fyrirspurnum. Greinargerð: Bæjarfulltrúar hafa m.a. það hlutverk að vekja athygli á málum innan bæjarins, veita öðrum kjörnum fulltrúum aðhald og kalla eftir upplýsingum um mál sem eru til umræðu. Upplýsingaöflun sem þessi er oft nauðsynleg til að varpa ljósi á mál, bæta ákvarðanatöku og veita bæjarbúum upplýsingar um hvernig bænum er stjórnað. Eftir atvikum geta slíkar upplýsingar komið frá kjörnum fulltrúum eða embættismönnum og stundum getur ytri upplýsingaöflun verið nauðsynleg. Það er ekki óeðlilegt að einhver viðmið séu um málshraða. Slíkt hjálpar bæjarfulltrúum að skipuleggja störf sín og auðveldar þeim að rækja skyldur sínar gagnvart bæjarbúum. Bæjarráð frestaði afgreiðslu tillögunnar á fundi þann 1. júní sl.

Bæjarráð samþykkir tillöguna með fimm atkvæðum.

15

Kaup Kópavogsbæjar á landi ríkisins að Vatnsendahæð. Fyrirspurn frá Pétri Hrafni Sigurðssyni um gang viðræðna milli Kópavogsbæjar og ríkisins

Fyrirspurn frá Pétri Hrafni Sigurðssyni bæjarfulltrú:

"Hvað líður viðræðum Kópavogsbæjar og ríkisins um kaup Kópavogsbæjar á landi ríkisins að Vatnsendahæð?

Nú hafa bæði Garðabær og Reykjavík lokið viðræðum og keypt land undir byggingalóðir af ríkinu. Mikilvægt er að Kópavogur sitji ekki eftir í þessum málum."

Lagt fram.