Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Sorphirða í Kóp - Framtíðarsýn

Málsnúmer: 16031125

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2917. fundur

Frá deildarstjóra gatnadeildar, kynning á tilraunaverkefni plastsöfnunar. Bæjarráð frestaði afgreiðslu erindisins á fundi sínum 1. mars sl.

Margrét Júlía Rafnsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:

"Ég legg til að kannað verði að hafa þrjár litlar tunnur (mjóar) í stað tveggja eins og nú er, þar sem í eina fari plast, aðra pappír og almennt sorp í þá þriðju. Þrjár litlar tækju sama pláss og tvær stórar.

Rökstuðningur: Þegar heimili eru farin að flokka pappír og plast frá öðru sorpi, minnkar hið almenna sorp til muna og óþarfi er að hafa stóra gráa tunnu. Annar möguleiki væri að hafa svokallað tunnu í tunnu kerfi fyrir pappír og plast.

Margrét Júlía Rafnsdóttir"

Bæjarráð vísar málinu til gerðar stefnumótunar Kópavogsbæjar.

02

Bæjarráð - 2905. fundur

Deildarstjóri gatnadeildar, Karl Eðvaldsson, kynnir verkefnið Sorphirða í Kópavogi - framtíðarsýn.

Bæjarráð frestar afgreiðslu erindisins.

03

Bæjarráð - 2903. fundur

Kynning á tilraunaverkefni plastsöfnunar frá deildarstjóra gatnadeildar.

04

Bæjarráð - 2903. fundur

Kynning á tilraunaverkefni plastsöfnunar frá deildarstjóra gatnadeildar.

Bæjarráð frestar afgreiðslu tillögunnar og óskar eftir kynningu umhverfissviðs á verkefninu.

05

Umhverfis- og samgöngunefnd - 95. fundur

Kynning á tilraunaverkefni plastsöfnunar frá deildarstjóra gatnadeildar.

Umhverfis- og samgöngunefnd fagnar góðum árangri tilraunaverkefnis plastsöfnunar. Nefndin leggur til óbreytt fyrirkomulag flokkunar úrgangsefna í bláa tunnu og farið verði í útboð á meðhöndlun úrgangs í blárri tunnu í sveitarfélaginu.

Kostnaðarliðum vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

06

Bæjarráð - 2873. fundur

Frá deildarstjóra gatnadeildar, lögð fram skýrsla tækniráðs Sorpu um úrræði við söfnun plasts á höfuðborgarsvæðinu.

Lagt fram.

07

Bæjarráð - 2850. fundur

Frá Sorpu, dags. 8. desember, lagt fram svar við bréfi bæjarstjóra frá 30. nóvember sl. vegna þróunarverkefnis um söfnun plasts frá íbúum.

Lagt fram.

08

Bæjarráð - 2838. fundur

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 7. september, lögð fram kostnaðargreining við breytingu á sorphirðukerfi Kópavogsbæjar sem bæjarstjórn óskaði eftir á fundi þann 22. mars sl. Um er að ræða greiningu á kostnaði við og tillögu um að bæta við þriðju tunnunni til að hirða plast við hýbýli í Kópavogi og/eða kostnaði við að flokka plast í sérpoka með pappír í bláu tunnuna, ásamt nánari úttekt á kostum og göllum. Bæjarráð frestaði afgreiðslu á síðasta fundi þann 15.09.2016.

Hlé var gert á fundi kl. 8.50. Fundi var fram haldið kl. 9.10.

Pétur Hrafn Sigurðsson lagði til að málið verði lagt fyrir stjórn Sorpu bs. til kynningar áður en málið verður afgreitt í bæjarráði.

Tillagan var felld en tveir greiddu atkvæði með henni og tveir á móti. Atkvæði með tillögunni greiddu Pétur Hrafn Sigurðsson og Ólafur Þór Gunnarsson en atkvæði gegn henni greiddu Theódóra Þorsteinsdóttir og Hjördís Ýr Johnson. Karen Halldórsdóttir greiddi ekki atkvæði.

Fyrirliggjandi tillaga um tilraunaverkefni til eins árs um söfnun plasts var samþykkt með fjórum atkvæðum en Karen Halldórsdóttir greiddi ekki atkvæði.

Fulltrúar minnihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:

"Undirritaðir styðja það verkefni sem um ræðir að bæta plasti við í flokkun sorps enda er hér um tilraunaverkefni að ræða. Að ári er mikilvægt, verði verkefnið boðið út, að horft verði til allra þátta, þ.m.t. hvaða áhrif verkefnið hefur á byggðasamlagið Sorpu. Rétt hefði verið að kynna verkefnið innan stjórnar Sorpu áður en farið væri af stað.

Ólafur Þór Gunnarsson, Pétur Hrafn Sigurðsson, Birkir Jón Jónsson"

09

Bæjarráð - 2837. fundur

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 7. september, lögð fram kostnaðargreining við breytingu á sorphirðukerfi Kópavogsbæjar sem bæjarstjórn óskaði eftir á fundi þann 22. mars sl. Um er að ræða greiningu á kostnaði við að bæta við þriðju tunnunni til að hirða plast við hýbýli í Kópavogi og/eða kostnaði við að flokka plast í sérpoka með pappír í bláu tunnuna, ásamt nánari úttekt á kostum og göllum.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

10

Bæjarstjórn - 1134. fundur

Lögð fram gögn vegna sorphirðu í Kópavogi um nýja gas- og jarðgerðarstöð Sorpu, grenndargáma fyrir plast og grenndargáma fyrir föt, ásamt kynningu um árangur af endurvinnslu á höfuðborgarsvæðinu.

Lagt fram.$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 18.05. Fundi var fram haldið kl. 18.50.$line$$line$Hjördís Ýr Johnson lagði fram eftirfarandi tillögu:$line$"Óskað er eftir því að fá kostnaðargreiningu á því að bæta við 3ju tunnunni til að hirða plast við híbýli í Kópavogi og því að setja plast í sérpoka með pappírum í bláu tunnuna, ásamt nánari úttekt á kostum og göllum sem hægt er að leggja fyrir bæjarstjórnina strax með vorinu.$line$Hjördís Ýr Johnson"$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 10 atkvæðum. Guðmundur Gísli Geirdal greiddi ekki atkvæði.