Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Samkomulag um undirbúning, skipulagsvinnu og uppbyggingu Smárans.

Málsnúmer: 1410300

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1138. fundur

Frá bæjarlögmanni, lögð fram drög að samkomulagi um undirbúning, framkvæmdir og uppbyggingu Smárans, vestan Reykjanesbrautar. Bæjarráð samþykkti að vísa málinu til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir framlögð drög að samkomulagi með 11 atkvæðum.

02

Bæjarráð - 2822. fundur

Frá bæjarlögmanni, fulltrúar eigenda lóða á svæðinu sunnan Smáralindar (Hagasmára og Hæðasmára) munu mæta til fundar og gera grein fyrir áformuðum framkvæmdum.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til bæjarstjórnar.$line$$line$Steingrímur Hauksson sviðsstjóri umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.

03

Bæjarráð - 2821. fundur

Frá bæjarlögmanni, lögð fram drög að samkomulagi um uppbyggingu Smárans, vestan Reykjanesbrautar.

Bæjarráð frestar afgreiðslu.$line$$line$Bæjarlögmaður og sviðsstjóri umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum lið.

04

Bæjarráð - 2746. fundur

Frá bæjarstjóra, drög samnings Smárabyggðar ehf., Regins ehf. og Kópavogsbæjar um undirbúning, skipulagsvinnu og uppbyggingu eignarlandsins sunnan Smáralindar. Samkomulagið felur í sér samstarf eigenda landsins við skipulagsyfirvöld um skipulag og uppbyggingaráform á svæðinu. Gert er ráð fyrir því að samkomulagið komi til endurskoðunar áður en nýtt skipulag tekur gildi á svæðinu.

Lagt fram og vísað til næsta fundar bæjarráðs.