Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Frístundastyrkur -Reglur um frístundastyrki

Málsnúmer: 1212249

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1108. fundur

Lögð fram endanleg drög að reglum um frístundastyrki, sem samþykkt voru á fundi íþróttaráðs þann 17. desember. Bæjarráð vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir framlagðar reglur um frístundastyrki með 11 atkvæðum.

02

Bæjarráð - 2756. fundur

Lögð fram endanleg drög að reglum um frístundastyrki, sem samþykkt voru á fundi íþróttaráðs þann 17. desember, sbr. lið 2 í fundargerð.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

03

Íþróttaráð - 43. fundur

Lögð fram til afgreiðslu endanleg drög að reglum um frístundastyrki Kópavogsbæjar.

Íþróttaráð samþykkir framlögð drög að reglum um frístundastyrki Kópavogsbæjar og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.

04

Forvarna- og frístundanefnd - 26. fundur

Lögð fram til afgreiðslu drög að reglum um frístundastyrki Kópavogsbæjar.

Umræða um drög að reglum um frístundastyrki. Forvarna- og frístundanefnd samþykkir drög að frístundastyrkjum og fagnar auknu aðgengi barna og forráðamanna að skipulögðu tómstunda- og íþróttastarfi.

05

Íþróttaráð - 42. fundur

Lögð fram drög að reglum um frístundastyrki Kópavogsbæjar sem unnin hafa verið af starfsmönnum deildarinnar.

Starfsmenn íþróttadeildar kynntu framlögð drög að reglum um frístundastyrki Kópavogsbæjar. $line$Afgreiðslu frestað.

06

Bæjarráð - 2740. fundur

Á fundi íþróttaráðs þann 21.ágúst sl., var lögð fram tillaga um að heimilt verði að nýta Frístundastyrk á einn stað / grein og var hún einróma samþykkt. $line$Lögð fram tillaga um að heimilt verði að nýta Frístundastyrk í tónlistarnám og var hún einróma samþykkt. $line$Þá var lögð fram tillaga um að hækka Frístundastyrk úr kr. 27.000 á ári í kr. 30.000 og var tillagan samþykkt með fjórum atkvæðum en einn nefndarmaður sat hjá.$line$ $line$Eftirfarandi bókun var gerð:$line$$line$Íþróttaráð leggur áherslu á að tillagan hafi ekki áhrif til hækkunar á æfingagjöld / námskeiðsgjöld félaga og fyrirtækja, þannig að hækkun Frístundastyrkjar skili sér til foreldra og forráðamanna. $line$Íþróttaráð leggur áherslu á að íþróttadeild fylgist mjög vel með gjaldskrám þeirra aðila sem eiga aðild að frístundastyrkjum Kópavogsbæjar með sérstökum skýrslum til Íþróttaráðs þar um.$line$$line$Jafnframt er lagður viðauki við fjárhagsáætlun vegna málsins.

Sigurjón Jónsson lagði fram eftirfarandi breytingartillögu við afgreiðslu íþróttaráðs:$line$"Undirritaður leggur til að í stað kr 30.000 standi kr. 50.000.$line$Greinargerð: Hækkun frístundastyrksins upp í 50.000 kr. er stefna Framsóknarflokksins í Kópavogi. Einnig var þetta helsta kosningaloforð Sjálfstæðisflokksins í bænum og nú þarf að sýna Kópavogsbúum að bæjarfulltrúar ætli að efna það loforð um að hækka frístundastyrkinn myndarlega.$line$Sigurjón Jónsson"$line$$line$Bæjarráð fellir breytingartillögu Sigurjóns Jónssonar með þremur atkvæðum. Tveir bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði.$line$$line$Bæjarráð samþykkir tillögu íþróttaráðs um frístundastyrk einróma ásamt viðauka við fjárhagsáætlun.$line$$line$Fulltrúar meirihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Hér er um umtalsverða breytingu að ræða sem þýðir tvöföldun á frístundastyrk fyrir meginþorra barna auk þess sem nú geta þeir sem eru í tónlistarnámi sótt frístundastyrk. Alltaf hefur staðið til að hækkun frístundastyrkja verði tekin í áföngum á kjörtímabilinu.$line$Ármann Kr. Ólafsson, Theódóra Þorsteinsdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Johnson"$line$$line$Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Tillagan er í samræmi við kosningastefnu VGF og undirritaður fagnar samþykkt hennar.$line$Ólafur Þór Gunnarsson" $line$$line$Kristín Sævarsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Tillagan er mikið framfaraskref í málefnum barna og ungmenna. Undirrituð fagnar tilkomu hennar.$line$Kristín Sævarsdóttir"$line$$line$Sigurjón Jónsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Ég lýsi vonbrigðum mínum að hækkun frístundastryks sé ekki hærri en raun ber vitni, sérstaklega ef tekið er mið af málflutningi sjálfstæðisflokksins í þessum málum í aðdraganda kosningana.$line$Sigurjón Jónsson"

07

Íþróttaráð - 39. fundur

Lögð fram tillaga um að heimilt verði að nýta Frístundastyrk á einn stað / grein og var hún einróma samþykkt. $line$Lögð fram tillaga um að heimilt verði að nýta Frístundastyrk í tónlistarnám og var hún einróma samþykkt. $line$Þá var lögð fram tillaga um að hækka Frístundastyrk úr kr. 27.000 á ári í kr. 30.000 og var tillagan samþykkt með fjórum atkvæðum en einn nefndarmaður sat hjá.$line$

$line$Íþróttaráð leggur áherslu á að tillagan hafi ekki áhrif til hækkunar á æfingagjöld / námskeiðsgjöld félaga og fyrirtækja, þannig að hækkun Frístundastyrkjar skili sér til foreldra og forráðamanna. Íþróttaráð leggur áherslu á að íþróttadeild fylgist mjög vel með gjaldskrám þeirra aðila sem eiga aðild að frístundastyrkjum Kópavogsbæjar með sérstökum skýrslum til Íþróttaráðs þar um.

08

Bæjarráð - 2679. fundur

Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 19. mars. tillaga að breytingu á reglum um frístundastyrki.

Bæjarráð samþykkir tillögu að breytingu á reglum um frístundastyrki.

09

Íþróttaráð - 22. fundur

Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 8. þessa mánaðar með níu atkvæðum að hækka frístundastyrk vegna íþróttaiðkunar barna úr 12.000 kr. í 13.500 kr. næsta haust.

Lagt fram til kynningar

10

Bæjarstjórn - 1069. fundur

Tillaga um að hækka frístundastyrk vegna íþróttaiðkunar barna úr 12.000 kr. í 13.500 kr. næsta haust.

Bæjarstjórn samþykkir að hækka frístundastyrk vegna íþróttaiðkunar barna úr 12.000 kr. í 13.500 kr. næsta haust. Samþykkt með níu atkvæðum en einn bæjarfulltrúi sat hjá.

11

Bæjarráð - 2667. fundur

Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 18. desember, tillaga um að hækka frístundastyrk vegna íþróttaiðkunar barna úr 12.000 kr. í 13.500 kr. næsta haust.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.