Framtíðin í fyrsta sæti - grunnskólatillögur
Málsnúmer: 2508729
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3251. fundur
Frá menntasviði, dags. 23.03.2026, lögð fram til kynningar viðbragðsáætlun vegna grunnskólatillögu nr. 15, náms- og starfsumhverfi sem styður öryggi og vellíðan.
Lagt fram og kynnt.
Umræður.
Gestir viku af fundi kl.9.45.
02
Menntaráð - 159. fundur
Viðbragðsáætlun vegna grunnskólatillögu nr. 15, Náms- og starfsumhverfi sem styður öryggi og vellíðan, lögð fram til samþykktar.
Silju Dís Guðjónsdóttur, Tryggva Guðjóni Ingasyni og Ingibjörgu Ýri Pálmadóttur er þökkuð góð kynning á viðbragðsáætlun í skóla- og frístundastarfi.
Menntaráð samþykkir með öllum greiddum atkvæðum viðbragðsáætlun í náms- og starfsumhverfi grunnskóla sem styður við öryggi og vellíðan.
Umræður.
Silja Dís og Tryggvi Guðjón viku af fundi kl. 17:45.
03
Menntaráð - 149. fundur
Kynning á samræmdum matskvörðum í grunnskólum.
Á fundi menntaráðs þann 16. september síðast liðinn var lögð fram kynning á samræmdum matskvörðum í Kópavogi - ákvörðun var frestað skv. fundargerð 148. fundi menntaráðs.
Samræmdir matskvarðar lagðir fram á ný með ágripi.
04
Menntaráð - 149. fundur
Kynning á Áætlun um vinnslu skimunar- og aðgerðaáætlunar fyrir leik- og grunnskóla í Kópavogi.
Menntaráð þakkar Sigurlaugu Rún Brynleifsdóttur og Elínu Guðrúnu Pálsdóttur kynningu á verkefninu "Áætlun um vinnslu skimunar- og aðgerðaáætlunar fyrir leik- og grunnskóla í Kópavogi".
Sigurlaug Rún og Elín Guðrún yfirgáfu fund kl. 17:30.
05
Menntaráð - 148. fundur
Samræmdir matskvarðar í grunnskólum Kópavogs lagðir fram til kynningar.
Frestað.
06
Menntaráð - 146. fundur
Tilllögur í grunnskólamálum lagðar fram til kynningar.
Menntaráð samþykkir framlagðar tillögur í grunnskólamálum í 16 liðum með 6 greiddum atkvæðum. Sigurbjörg Erla Egilsdóttir fulltrúi Pírata situr hjá.