Bæjarráð - 3176. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Orri Vignir Hlöðversson - formaður
- Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Helga Jónsdóttir - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá deildarstjóra innkaupadeildar, dags. 04.06.2024,lögð fram beiðni þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til útboðs á miðlunargeymi nr. 2 á Heimsenda.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita umbeðna heimild að bjóða út í opnu útboði innkaup á miðlunargeymi nr. 2 á Heimsenda.
Frá lögfræðideild, lögð fram tillaga að úthlutun lóða í fyrsta áfanga Vatnsendahvarfs.
Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fundarhlé hófst kl. 10:53, fundi fram haldið kl. 11:18.
Bókun:
"Í Roðahvarfi er nú úthlutað byggingarrétti á 184 íbúðum á sex fjölbýlishúsalóðum. Þetta er fyrsta úthlutun Kópavogbæjar á byggingarlóðum í áratug. Með aðferð meirihlutans við sölu á byggingarrétti þurfa væntanlegir íbúðareigendur að greiða 12 til 16 milljónir króna fyrir hverja einstaka íbúð auk lögboðinna gjalda til bæjarins fyrir utan sjálfan byggingarkostnaðinn við íbúðina. Þessi úthlutun er enn ein staðfesting á að meirihlutinn virðir að vettugi skuldbindingar bæjarfélagsins lögum samkvæmt sem og í húsnæðisáætlun Kópavogsbæjar, aðalskipulagi Kópavogsbæjar og svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins um framboð á húsnæði á viðráðanlegu verði til að fullnægja búsetuþörfum allra félagshópa. Það er miður að engri lóð sé úthlutað til óhagnaðardrifinna byggingarfélaga sem byggja íbúðir fyrir þá sem ekki hafa efni á ofurkjörum Kópavogsbæjar."
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Helga Jónsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Bókun:
"Það er ánægjulegt að sjá þann mikla áhuga sem var á lóðum í þessari úthlutun en um er að ræða 20 fjölbýlishús á sex lóðum. Með þessu er verið að auka við framboð íbúða á almennum húsnæðismarkaði sem mikið hefur verið kallað eftir. Það er rangt að meirihlutinn sé að virða að vettugi skuldbindingar sveitarfélagsins í húsnæðismálum og er fyrirkomulag þessarar lóðaúthlutunar lögum samkvæmt."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri V. Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Andri S. Hilmarsson
03
Fyrirspurn bæjarfulltrúa um fjölda barna, 12. mánaða og eldri á biðlista eftir leikskóla í Kópavogi
Frá sviðsstjóra menntasviðs og deildarstjóra leikskóladeildar. dags. 04.06.2024, lagt fram svar við fyrirspurn varðandi biðlista eftir leikskólaplássi.
Lagt fram.
Fundargerð í 12 liðum.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Fundargerð í einum lið.
Lagt fram.
Fundargerð í tveimur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 16 liðum.
Lagt fram.
7.15 - 24032188 - Dalsmári 5. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram að nýju að lokinni kynningu umsókn Ellerts Hreinssonar arkitekts dags. 13. mars 2024 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 5 við Dalsmára um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að komið verði fyrir á lóðinni tveimur færanlegum skrifstofueiningum á tveimur hæðum alls 115 m² að flatarmáli, suðvestan við núverandi tengibyggingu íþróttahúss. Hámark byggingarmagns verður 10.315 m² eftir breytingu.
Á fundi skipulagsráðs þann 18. mars 2024 var samþykkt að grenndarkynna tillöguna. Kynningartíma lauk 28. maí, engar athugasemdir bárust.
Skipulagsráð samþykkir framlagða umsókn um breytingu á deiliskipulagi. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
7.4 - 24042507 - Brú yfir Fossvog. Umsókn um framkvæmdaleyfi.
Lögð fram umsókn Vegagerðarinnar dags. 19. apríl 2024 ásamt fylgiskjölum um framkvæmdaleyfi fyrir landfyllingu og brúargerð vegna brúar yfir Fossvog.
Jafnframt er lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa, unnið af VSÓ Ráðgjöf dags. 30. maí 2024.
Skipulagsráð samþykkir framlagða umsókn um framkvæmdaleyfi. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
- Greinargerð v veitingu framkvæmdaleyfis
- Umsókn dags. 19. apríl 2024.
- J104
- Umsögn Minjastofnunar dags. 15. janúar 2024.
- Umsögn Náttúrufræðistofnunar dags. 24. janúar 2024.
- Umsögn Umhverfisstofnunar dags. 10. janúar 2024.
- Y101 (1)
- Y102 (1)
- A101
- B001
- J101 (1)
- J102 (1)
- Umsögn Hafrannsóknarstofnunar dags. 31. janúar 2024.
- Glærur af 165. fundi skipulagsráðs þann 3. júní 2024.
7.7 - 24053646 - Vatnsendahlíð - Þing. Breytt deiliskipulagsmörk.
Lögð fram tillaga umhverfissviðs Kópavogsbæjar að breytingu á mörkum skipulagssvæðis Vatnsendahlíðar- Þing. Í gildi er deiliskipulagið Vatnsendahlíð-Þing samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs 13. janúar 2009. Breytingin felst í því að aðlaga mörk skipulagssvæðisins að mörkum aðliggjandi skipulagssvæðis Kjóavalla.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með tilvísun í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
7.9 - 24033636 - Tónahvarf 12. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram umsókn Gunnars Sigurðssonar arkitekts dags. 12. apríl 2024 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 12 við Tónahvarf um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst stækkun lóðarinnar um 12 m til suðurs, lóðarstækkun nemur 840 m² að flatarmáli. Stærð lóðarinnar eykst úr 5.287 m² í 6.157 m². Nýtingarhlutfall lækkar úr 0.67 í 0.58. Fyrirhuguð lóðarstækkun er til að koma fyrir stækkun á bílastæðaplani, gert er ráð fyrir að bílastæðum fjölgi um 16 stæði og að heildarfjöldi bílastæða verði 87.
Á fundi skipulagsráðs þann 6. maí 2024 var afgreiðslu málsins frestað.
Uppdrættir í mvk. 1:500 og 1:2000 dags. 12. apríl 2024.
Skipulagsráð hafnar framlagðri umsókn um breytingu á deiliskipulagi.
Skipulagsráð leggst gegn því að skilmálum gildandi deiliskipulags sé breytt þar sem gert er ráð fyrir opnu óbyggðu svæði og skógræktarsvæði á umræddum stað. Því svæði er ætlað að aðskilja athafnalóðir í Tóna- og Turnahvarfi frá íbúðarhúsalóðum við Álfkonuhvarf og nýju íbúðarhverfi í Vatnsendahvarfi. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.
Fundargerð 497. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 07.05.2024.
Lagt fram.
Frá Sorpu bs., dags. 27.05.2024, lagt fram svar frá við fyrirspurn bæjarráðsfulltrúa sem beint var til Sorpu í febrúar sl.
Lagt fram.
11
Erindi frá bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur um lóðarleigusamning fyrir Nýbýlaveg 1
Lagt fram svohljóðandi erindi frá bæjarfulltrúa Viðreisnar: Óska eftir því að fá lóðarleigusamning fyrir Nýbýlaveg 1 á dagskrá í bæjarráðs til umræðu. Bæði gamla samninginn og þann nýja sem var undirritaður árið 2022.
Lagðir fram umbeðnir samningar.
Umræður.
12
Ósk bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur um samantekt á tekjum á gjaldskrá Umhverfissviðs
Lagt fram svohljóðandi erindi frá bæjarfulltrúa Viðreisnar: Óska eftir því að fá samantekt á tekjum á gjaldskrá umhverfissviðs. Heildartekjur fyrir árin 2021, 2022 og 2023.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra fjármálasviðs.