Starfshópur - heildarsýn fyrir Kópavogsdal
Málsnúmer: 2309454
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3201. fundur
Lagðar fram tillögur skipulagsfulltrúa, dags 9. janúar 2025, um næstu skref skipulagsvinnu í Kópavogsdal í samræmi við niðurstöður fundar bæjarfulltrúa og starfshóps um heildarsýn fyrir Kópavogsdal þann 3. september 2024. Þar var skipulagsfulltrúa falið að móta tillögur um næstu skref í skipulagsvinnu við Kópavogsdal, s.s. endurskoðun deiliskipulags, byggðar á tillögum starfshópsins sem lagðar voru fyrir bæjarráð þann 23. maí s.á.
Þá lagðar fram tillögur starfshópsins um heildarsýn fyrir Kópavogsdal ásamt viðaukum 1 og 2, dags. 12. apríl 2024
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðar tillögur að áframhaldandi skipulagsvinnu í Kópavogsdal og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við þær og eftir föngum í samráði við skipulags- og umhverfisráð.
02
Íþróttaráð - 146. fundur
Á fundinn mættu Hjördís Ýr Johnson, formaður skipulagsráðs og Auður D. Kristinsdótti, skipulagsfulltrúi og kynntu niðurstöður starfshóps um heildarsýn fyrir Kópavogsdal.
Íþróttaráð þakkar fyrir kynninguna.
03
Bæjarráð - 3174. fundur
Lagðar fram tillögur starfshóps um heildarsýn fyrir Kópavogsdal. Bæjarráð frestaði erindinu á fundi sínum 16.05.2024.
Lagt fram og kynnt.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að efna til vinnufundar með bæjarfulltrúum um aðgerðaráætlun og næstu skref.
04
Bæjarráð - 3173. fundur
Lagðar fram tillögur starfshóps um heildarsýn fyrir Kópavogsdal.
Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar.
05
Bæjarstjórn - 1289. fundur
Heildarsýn fyrir Kópavogsdal. Vinna starfshóps.
06
Umhverfis- og samgöngunefnd - 169. fundur
Heildarsýn fyrir Kópavogsdal. Vinna starfshóps.
Lagt fram og kynnt.
07
Ungmennaráð - 42. fundur
Óskað eftir umsögn frá ungmennaráði varðandi heildarsýn fyrir Kópavogsdal.
Ungmennaráð er sátt við skipulag svæðisins eins og það er í dag, en ráðið benti á að þörf sé á viðhaldi á svæðinu svo sem á göngustígum og lýsing.
08
Bæjarráð - 3144. fundur
Á fundi bæjarráðs þann 7. september sl. voru lögð fram í bæjarráði drög að erindisbréfi starfshóps og þau samþykkt með breytingum og vísað til skipunar á næsta fundi bæjarráðs. Málinu var á ný frestað á fundi bæjarráðs þann 14. september s.l.
Bæjarráð samþykkir tilnefnir eftirtalda aðila í starfshópinn:
Hjördís Ýr Johnson
Andri Steinn Hilmarsson
Kristinn D. Gissurarson
Auður D. Kristinsdóttir
Íris Svavarsdóttir
Hákon Gunnarsson
Tryggvi Felixson
09
Bæjarráð - 3142. fundur
Á fundi bæjarráðs þann 7. september sl. voru lögð fram í bæjarráði drög að erindisbréfi starfshóps og þau samþykkt með breytingum og vísað til skipunar á næsta fundi bæjarráðs.
Bæjarráð frestar málinu til næsta fundar.
10
Bæjarráð - 3141. fundur
Frá bæjarstjóra, lögð fram drög að erindisbréfi starfshópsins.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum stofnun starfshópsins, ásamt framlögðum drögum að erindisbréfi svo breyttum.
Skipun hópsins er vísað til næsta fundar bæjarráðs.