Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Barnaskóli Kársness.

Málsnúmer: 2312032

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3268. fundur

Kynning á stöðu máls.

Kynning og umræður.

Gestir véku af fundi kl. 8:46


Bókun:

"Undirritaður setur spurningamerki við upplýsingagjöf meirihlutans og bæjarins er varðar Barnaskóla Kársness til kjörinna fulltrúa. Misræmi í upplýsingagjöf milli deilda vekja ekki upp mikið traust og upplifir undirritaður ákveðna leyndarhyggju yfir staðreyndum málsins.

Starfsmenn bæjarins og meirihlutinn geta ekki falið sig á bakvið hagsmuni bæjarins sem ástæðu þess að kjörnir fulltrúar fái ekki aðgang að heildarmyndinni."

Einar Jóhannes Guðnason


Bókun:

"Bæjarfulltrúi Viðreisnar telur fullt tilefni til þess að farið verið í óháða úttekt á framkvæmdum við Barnaskóla Kársness án tafar, allt frá undirbúningi verkefnisins til verkloka.

Viðreisn hefur ítrekað gagnrýnt hvernig staðið hefur verið að þessu verkefni og kallað eftir því að málið verði skoðað ofan í kjölinn. Heildarkostnaður við framkvæmdina nemur nú rúmlega 8,7 milljörðum króna og fyrirhuguð krafa Kópavogsbæjar á hendur verktakanum er tæpir 3,9 milljarðar króna. Hér er um gríðarlega fjármuni að ræða og það þarf að fara yfir hvað fór úrskeiðis, hvers vegna og hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir það.

Nú þegar framkvæmdinni er nær lokið og kostnaðaruppgjör liggur að mestu fyrir verður ekki séð að ástæða sé til að bíða lengur með slíka úttekt. Gerðardómsmálið snýst um ábyrgð verktakans gagnvart Kópavogsbæ, en það er ekki síður mikilvægt að skoða hvernig bærinn sjálfur stóð að undirbúningi, ákvarðanatöku, eftirliti og stjórnun verkefnisins.

Bæjarbúar eiga rétt á svörum um hvernig svo fór að ein umfangsmesta framkvæmd Kópavogsbæjar endaði með þessum hætti. Það er ekki nóg að sækja rétt bæjarins gagnvart verktakanum. Bæjaryfirvöld þurfa líka að vera tilbúin að skoða eigin ákvarðanir og vinnubrögð. Það er mikilvægt að draga lærdóm af þessu máli og tryggja að sambærileg mistök endurtaki sig ekki."

María Ellen Steingrímsdóttir


Bókun:

"Undirritaður harmar þann gríðarlega kostnað sem fallið hefur á bæjarsjóð vegna mistaka í framkvæmdum vegna Barnaskóla Kársness og riftunar á verksamningi í kjölfarið. Hægt er að fullyrða að um dýrasta grunnskóla landsins sé að ræða og er áfallinn kostnaður löngu orðinn margfeldi af upphaflegri kostnaðaráætlun. Veruleg óvissa er um hvort kostnaður endurheimtist frá verktakanum að óbreyttu jafnvel þótt Kópavogsbær beri sigur úr býtum í yfirstandandi málaferlum, enda liggur fyrir að verktakinn er í verulegum fjárhagserfiðleikum og hefur verið í greiðslustöðvun í um þrjú ár.

Líkt og fram hefur komið eru framkomnar upplýsingar ekki til þess fallnar að veita glögga mynd af ferlinu í heild. Undirritaður telur brýnt að farið verði yfir málið í heild sinni og lærdómur dreginn af því um hvað hafi farið úrskeiðis, hver raunverulegur kostnaður bæjarsjóðs hafi verið, hvort ákvarðanataka í kjölfar riftunar hafi verið forsvaranleg og hvaða úrbóta þurfi að grípa til svo að svona stórslys í framkvæmdum bæjarins eigi sér ekki aftur stað. Enginn þörf er á að bíða endanlegrar niðurstöðu málaferla enda liggja málsatvik um framkvæmd útboðs og eftirlit með framkvæmdunum af hálfu Kópavogsbæjar fyrir og munu ekki taka breytingum upp úr þessu."

Jónas Már Torfason


Bókun:

"Kostnaður við byggingu Barnaskóla Kársness er umfram áætlanir og það er óumdeilt, en hins vegar er það ekki rétt að kostnaðurinn sé margfeldi á við upphaflegar kostnaðaráætlanir. Mikilvægt er að halda staðreyndum málsins til haga og setja þær ákvarðanir sem hafa verið teknar í rétt samhengi.

Framkvæmdin var boðin út í samræmi við lög um opinber innkaup. Rizzani de Eccher átti lægsta gilda tilboðið og Kópavogsbæ bar að fylgja þeim reglum sem gilda um val á verktaka í opinberum útboðum.

Vorið 2023 var öllum orðið ljóst að í óefni var komið og því steig bæjarstjórn sterkt inn með riftun og áformum og kröfugerð sem nú er komin fram. Verulegar tafir, alvarlegir ágallar og ítrekaðar vanefndir verktakans urðu til þess að bæjaryfirvöld brugðust við þessum hætti. Sú ákvörðun var bæði nauðsynleg og rétt, enda hefur gerðardómur þegar staðfest að riftunin hafi verið lögmæt. Rétt er að árétta að riftunin var samþykkt af öllum bæjarfulltrúum, úr meiri- og minnihluta, utan eins. Að mati meirihlutans hefur ákvörðunin um riftun sannað sig enda er í dag risinn glæsilegur skóli þar sem fer fram skólahald grunn- og leikskóla.

Meirihlutinn telur tilraunir til þess að gera pólitískan ágreining úr máli þar sem bæjaryfirvöld þurftu að bregðast við alvarlegum vanefndum verktaka ekki vera málefnalegar. Sjálfsagt er að fara yfir það sem betur hefði mátt fara en slík yfirferð ætti að byggja á staðreyndum en ekki pólitískum upphrópunum.

Hefði ekki verið gripið til þeirra afgerandi aðgerða sem bæjaryfirvöld ákváðu á sínum tíma er alls óvíst að skólinn væri risinn í dag."

Andri Steinn Hilmarsson

Orri Vignir Hlöðversson

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

02

Bæjarráð - 3259. fundur

Barnaskóli Kársness - Kynning á stöðu máls.

Kynning og umræður.

Gestir véku af fundi kl. 8:35.

Bókun:

"Fulltrúar minnihlutans þakka kynningu á stöðu mála og vænta frekari upplýsinga þegar framvinda málaferla er skýr. Eins telja fulltrúar minnihlutans fullt tilefni til að fram fari óháð úttekt á málinu til að hægt sé að draga af því lærdóm um hvað betur megi fara í útboðs- og framkvæmdamálum bæjarins."

Jónas Már Torfason

Einar Jóhannes Guðnason

María Ellen Steingrímsdóttir


Bókun:

"Á síðasta kjörtímabili var samþykkt í bæjarstjórn að fara í óháða úttekt þegar málinu er lokið."

Ásdís Kristjánsdóttir

Andri Steinn Hilmarsson

Hjördís Ýr Johnson

Orri Vignir Hlöðversson

03

Bæjarráð - 3253. fundur

Mál sett á dagskrá að beiðni bæjarfulltrúa Viðreisnar.

Kynning og umræður.

Gestir viku af fundi kl. 8:35

04

Menntaráð - 132. fundur

Skoða nýja byggingu skólans við Skólagerði.

Menntaráð fékk leiðsögn um nýja skólabyggingu við Skólagerði.

05

Menntaráð - 131. fundur

Farið yfir stöðu á byggingu Kársnesskóla við Skólagerði.

Ásthildur Helgadóttir, sviðstjóri umhverfissviðs og Ármann Halldórsson, deildarstjóri framkvæmdardeildar gerðu grein fyrir stöðu byggingar.

06

Bæjarráð - 3186. fundur

Lagðar fram mánaðarskýrslur fyrir júlí og ágúst 2024.

Kynning og umræður.

07

Bæjarráð - 3183. fundur

Staða framkvæmda við Kársnesskóla kynnt.

Kynning og umræður.

08

Bæjarráð - 3181. fundur

Lögð fram mánaðarskýrsla fyrir júní 2024.

Kynning og umræður.

09

Bæjarstjórn - 1292. fundur

Lögð fram tillaga um breytingar á Kársnesskóla. Máli frestað á fundi menntaráðs þann 5.desember 2023.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum tillögu um skipulagsbreytingar Kársnesskóla.

10

Bæjarráð - 3159. fundur

Lögð fram tillaga um breytingar á Kársnesskóla. Máli frestað á fundi menntaráðs þann 5.desember 2023.

Bæjarráð vísar tillögu um skipulagsbreytingar á Kársnesskóla til afgreiðslu bæjarstjórnar.

11

Menntaráð - 124. fundur

Lögð fram tillaga um breytingar á Kársnesskóla. Máli frestað á fundi menntaráðs þann 5.desember 2023.

Menntaráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögu um skipulagsbreytingar á Kársnesskóla með öllum greiddum atkvæðum og vísar tillögunni til bæjarráðs og bæjarstjórnar til afgreiðslu.

12

Menntaráð - 123. fundur

Lögð fram tillaga um breytingar á Kársnesskóla.

Máli frestað.