Tillaga bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar um fullmislæg gatnamót við Breiðholtsbraut og Arnarnesveg
Málsnúmer: 26071075
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3267. fundur
Frá bæjarstjóra, dags. 06.10.2026, lögð fram umsögn varðandi tillögu bæjarfulltrúa Miðflokks um fullmislæg gatnamót við Breiðholtsbraut og Arnarnesveg.
Bæjarráð hafnar framlagðri tillögu með þremur atkvæðum gegn atkvæðum Einars Jóhannesar Guðnasonar og hjásetu Jónasar Más Torfasonar.
Bókun bæjarráðs:
"Bæjarráð Kópavogs undirstrikar mikilvægi þess að möguleikinn á að gera gatnamótin mislæg eins og lausn 3 úr tillögum frá Eflu frá 09.09.2020 um hönnun gatnamóta Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar, verði fyrir hendi. Felur bæjarráð bæjarstjóra að hefja samtal við borgaryfirvöld um breytingar á Hverfisskipulagi Breiðholts, Seljahverfis, sem og á deiliskipulagi Arnarnesvegar, 3. áfanga, til þess að girða ekki fyrir þann möguleika til framtíðar."
Bókun:
"Undirritaður skilur vel að erfitt hafi verið að eiga við fyrri stjórnendur Reykjavíkurborgar þó hann furði sig á því að Kópavogsbær á sínum tíma hafi ekki nýtt stöðu sína betur í samningaviðræðum. En fortíðinni verður ekki breytt.
Þó það séu vonbrigði að tillögunni sé hafnað þá fagnar undirritaður því að farið verið í að tryggja möguleikann á því að geta gert gatnamótin fullmislæg í framtíðinni."
02
Bæjarráð - 3263. fundur
Frá umhverfissviði, dags. 28.08.2026, lögð fram umsögn varðandi tillögu bæjarfulltrúa Miðflokssins um mislæg gatnamót við Breiðholtsbraut og Arnarnesveg.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar bæjarstjóra.
Umræður.
03
Bæjarráð - 3261. fundur
Frá bæjarfulltrúa Miðflokks, dags. 18.07.2026. lögð fram tillaga um fullmislæg gatnamót við Breiðholtsbraut og Arnarnesveg,
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs með ósk um að umsögn berist eigi síðar en 3. september n.k.
Bókun:
"Undirritaður fagnar því að bæjarráð taki jákvætt í tillögu Miðflokksins að fela bæjarstjóra að hefja strax samtal við Reykjavíkurborg og Vegagerðina að gera gatnamótin við Arnarnesveg og Breiðholtsbraut að fullmislægum. Undirritaður er vongóður um að tillagan verði samþykkt er hún kemur aftur fyrir bæjarráð eigi síðar en 3. september."
Einar Jóhannes Guðnason