Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillaga bæjarfulltrúa Jónasar Más Torfasonar um skipun samráðsvettvangs

Málsnúmer: 26081190

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3265. fundur

Á fundi bæjarráðs þann 10. september var lögð fram umsögn bæjarstjóra um tillögu að skipun samráðsvettvangs um framkvæmdir í miðbæ Kópavogs. Á þeim fundi var óskað eftir kynningu frá samskiptahóp um nýjan Miðbæ.

Kynning og umræður.

Gestir viku af fundi kl.8:54.

Tillögunni hafnað með þremur atkvæðum, gegn atkvæði Eydísar Ingu Valsdóttur og hjásetu Einars Jóhannesar Guðnasonar.

Bókun:

"Meirihluti bæjarráðs leggur áherslu á skýra upplýsingagjöf, gott samráð og virk samskipti við íbúa og aðra hagaðila vegna framkvæmda í miðbæ Kópavogs.

Fyrir liggur að þegar hefur verið komið á umfangsmiklu upplýsingaflæði vegna framkvæmdanna, meðal annars með skilgreindum tengiliðum, upplýsingasíðum, póstlista, sérstöku netfangi og upplýsingafundum. Með vísan til umsagnar og kynningar samskiptahóps um nýjan miðbæ telur bæjarráð mikilvægt að byggja áfram á því starfi og þeim samskiptaleiðum sem þegar eru til staðar og efla þær eftir því sem verkefninu vindur fram. Bæjarráð telur því ekki þörf á að koma á fót öðrum samhliða samráðsvettvangi eða sérstakri undirbúningsnefnd til viðbótar við þann sem þegar er til staðar.

Áfram verði lögð áhersla á öfluga upplýsingagjöf, virkt samráð og að brugðist sé við ábendingum íbúa og annarra hagaðila."

Andri Steinn Hilmarsson

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri Vignir Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson


Bókun:

"Fulltrúi Samfylkingar þakkar fyrir góða kynningu. Við viljum þó benda á að fyrirspurn um málið, dags. 2. júlí 2026, sem tekin var fyrir á fundi skipulags- og umhverfisráðs 6. júlí og vísað til umhverfissviðs, er enn ósvarað.

Þrátt fyrir upplýsingamiðlun af hálfu bæjarins liggur fyrir að upplifun íbúa er sú að upplýsingagjöf hafi ekki verið nægileg og að rask á svæðinu hafi verið verulegt yfir langan tíma og enn séu ár eftir af framkvæmdartíma.

Í ljósi þessa teljum við miður að tillögu um samráðsvettvang vegna framkvæmdanna sé hafnað. Reynslan af framkvæmdunum til þessa sýnir að þörf er á auknu samtali og reglulegu samráði milli bæjarins, framkvæmdaraðila og þeirra íbúa sem verða fyrir mestum áhrifum af framkvæmdunum.

Fyrir liggur að viðbragðsáætlanir eru til staðar, en skortur á kynningu þeirra og upplýsingagjöf til íbúa hefur skapað óvissu og óöryggi meðal þeirra sem búa næst framkvæmdasvæðinu. Samfylkingin telur mikilvægt að íbúar fái skýrar upplýsingar um öryggisráðstafanir og viðbrögð vegna mögulegra óhappa á framkvæmdatíma."

Eydís Inga Valsdóttir

02

Bæjarráð - 3264. fundur

Frá bæjarstjóra, lögð fram umsögn um tillögu að skipun samráðsvettvangs um framkvæmdir í miðbæ Kópavogs.

Lagt fram.

Umræður.

Bæjarráð óskar eftir kynningu frá samskiptahópnum á næsta fund bæjarráðs.

03

Bæjarráð - 3261. fundur

Frá bæjarfulltrúa Samfylkingar, dags. 18.08.2026, lögð fram tillaga um skipun samráðsvettvangs vegna framkvæmda í miðbæ Kópavogs.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillöguni til bæjarstjóra til umsagnar.