Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3263. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Andri Steinn Hilmarsson - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
  • Orri Vignir Hlöðversson - varaformaður
  • Jónas Már Torfason - aðalfulltrúi
  • Einar Jóhannes Guðnason - aðalfulltrúi
  • María Ellen Steingrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

01

Tillaga bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar um fullmislæg gatnamót við Breiðholtsbraut og Arnarnesveg

Frá umhverfissviði, dags. 28.08.2026, lögð fram umsögn varðandi tillögu bæjarfulltrúa Miðflokssins um mislæg gatnamót við Breiðholtsbraut og Arnarnesveg.

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar bæjarstjóra.

Umræður.

Ýmis erindi

02

Álit sveitarstjórna á vindorkuhugmyndum sem er til umfjöllunar í 6. áfanga rammaáætlunar

Frá faghópi 3 i 6. áfanga Rammáætlunar, lagt fram erindi varðandi vindorkuhugmyndir. Óskað er eftir umræðu hjá sveitarstjórninni um umsögn faghópsins og að athugasemdum sé skilað fyrir 18. september.

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.

Ýmis erindi

03

Áhrif 16. gr. laga nr. 55-1992 ef byggingar eru reistar á svæðum sem fyrir fram er vitað að eru sérlega næm fyrir náttúruhamförum

Frá Náttúruhamfaratryggingum Íslands, dags. 27.08.2026, lögð fram áminning um skipulag byggðar á þekktum hættusvæðum.

Lagt fram.

Ýmis erindi

04

Landsþing 2026 - Stefnumörkun

Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. dags. 01.09.2026, lögð fram drög að stefnumörkun næstu fjögurra ára sem rædd verður á landsþingi Sambandsins á Akureyri 23.-25. september næstkomandi.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

05

Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 13. fundur frá 27.08.2026

Fundargerð í sex liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

06

Menntaráð - 164. fundur frá 01.09.2026

Fundargerð í fimm liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

07

Skipulags- og umhverfisráð - 33. fundur frá 31.08.2026

Fundargerð í einum lið.

Lagt fram.

Erindi frá bæjarfulltrúum

08

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar varðandi kostnað vegna þjóðaratkvæðagreiðslu

Frá bæjarfulltrúa Miðflokks, dags. 31.08.2026, lögð fram fyrirspurn um kosntað vegna þjóðarakvæðagreiðslu.

Bæjarráð vísar málinu til umsagnar bæjarritara.

Erindi frá bæjarfulltrúum

09

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar varðandi félagslegt húsnæði

Frá bæjarfulltrúa Miðflokks, dags. 31.08.2026, lögð fram fyrirspurn varðandi nýtingu félagslegs húsnæðis.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra velferðarsviðs. Óskað er að umsögn berist eigi síðar en 5. nóvember.

Erindi frá bæjarfulltrúum

10

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar varðandi úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum

Frá bæjarfulltrúa Miðflokks, dags. 01.09.2026, lögð fram fyrirspurn varðandi úthlutun tíma í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar.

Bæjarráð vísar erindinu til lýðheilsu- og íþróttanefndar.