Álit sveitarstjórna á vindorkuhugmyndum sem er til umfjöllunar í 6. áfanga rammaáætlunar
Málsnúmer: 26082000
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3265. fundur
Frá umhverfissviði, lögð fram umsögn um vindorkuhugmyndir sem eru til umfjöllunar í 6. áfanga rammaáætlunar.
Lagt fram.
Bókun bæjarráðs:
"Bæjarráð bendir á að óvissa sé um möguleg grenndaráhrif virkjananna, þar á meðal sjónræn áhrif og á hljóðvist, ekki síst með hliðsjón af upplandi Kópavogs, m.a. við Bláfjöll og Gunnarshólma. Gerir bæjarráð því fyrirvara við virkjunarhugmyndirnar að svo stöddu og kemur til með að gera betur grein fyrir afstöðu sveitarfélagsins á seinni stigum málsins, komi til þess. Bæjarstjóra er falið að taka umræðu um málið á vettvangi SSH."
02
Bæjarráð - 3264. fundur
Kynning frá fulltrúa faghóps 3 í rammaáætlun um áhrif virkjunarhugmynda.
Kynning og umræður.
Gestur vék af fundi kl. 9:13
03
Bæjarráð - 3263. fundur
Frá faghópi 3 i 6. áfanga Rammáætlunar, lagt fram erindi varðandi vindorkuhugmyndir. Óskað er eftir umræðu hjá sveitarstjórninni um umsögn faghópsins og að athugasemdum sé skilað fyrir 18. september.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.