Bæjarstjórn - 1253. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
- Margrét Friðriksdóttir - aðalfulltrúi
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllKaren Elísabet S Halldórsdóttir - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Guðmundur Gísli Geirdal - aðalmaðurBoðaði forföllGuðmundur Gísli Geirdal - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
- Einar Örn Þorvarðarson - aðalfulltrúi
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllBergljót Kristinsdóttir - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalfulltrúi
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Fundargerð í 12 liðum.
Lagt fram.
2.4 - 2202032 - Geirland - viðræður um sölu hluta jarðar
Frá bæjarlögmanni, lögð fram umsögn vegna framkominnar beiðni Dyljáar Ernu Eyjólfsdóttur um kaup á hluta af Geirlandi við Suðurlandsveg ásamt fasteignum. Bæjarráð frestaði erindinu 03.02.2022 og 17.02.2022.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 10 atkvæðum og hjásetu Sigurbjargar E. Egilsdóttur að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við beiðanda um sölu á húsakosti jarðarinnar.
Fundargerð í 20 líðum.
Lagt fram.
Fundarhlé hófst kl. 17:10, fundi fram haldið kl. 17:43
3.6 - 2203069 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2022
Frá fjámálastjóra, dags. 1. mars 2022, lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun vegna liðar nr. 5, málsnúmer 18031182.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagðan viðauka.
3.8 - 2201231 - Urðarhvarf 12, afturköllun lóðar
Frá bæjarlögmanni, dags. 22. febrúar 2022, lögð fram umsögn vegna afturköllunar lóðarúthlutunar: Urðarhvarf 12. Bæjarráð frestaði erindinu á fundi sínum 24. febrúar 2022.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjóra.
3.9 - 2008519 - Ósk um aðkomu Kópavogsbæjar að húsnæðismálum HSSK
Frá starfshópi um framtíðarhúsnæði fyrir Hjálparsveit skáta í Kópavogi, lögð fram skilagrein um valkosti nýs húsnæðis undir starfsemina. Bæjarráð frestaði erindinu 03.02.2022.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að fela bæjarstjóra að ganga til samninga HSSK með vísan til framlagðar viljayfirlýsingar.
Bókun:
Undirrituð taka undir niðurstöðu frá starfshópi um framtíðarhúsnæði fyrir Hjálparsveit skáta í Kópavogi en taka ekki undir forsendur í útreikningum sem byggðir eru á skipulagi fyrir reit nr.13.
Theodóra S. Þorsteinsdóttir
Einar Örn Þorvarðarson
- Scan_ah628_202202011528_001
- 2007-211118-Tónahvarf 10 - Hjálpasveit skáta Kópavogi - Tillaga A
- 210901 Tónahvarf 8 - VEB TEIKNINGAR
- Erindisbréf, undirrituð
- Kópavogur - Valkostagreining - HSSK-24.1.2022-lok_
- Kostnaðargreining Erlendar Birgissonar v. Tónahvarf 8
- Skilagrein starfshóps vegna framtíðarhúsnæðis HSSK
- Tónahvarf 10 - Athugasemdir HSSK
- TÓNAHVARF 8 KÓPAVOGI NOV 2021
- Viljayfirlýsing undirrituð
- Þarfagreining - skýrsla.
Fundargerð í tíu liðum.
Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.
Fundargerð í 11 liðum.
Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.
Fundargerð í tveimur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í tveimur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram.
9.1 - 2011714 - Vatnsendahæð - Vatnsendahvarf. Deiliskipulag
Lögð fram á vinnslustigi tillaga Arkþing nordic arkitekta dags. 11. febrúar 2022 fh. umhverfissviðs að deiliskipulagi nýs íbúðahverfis á Vatnsendahæð í Vatnsendahvarfi.
Megintilgangur deiliskipulagsvinnunnar er að móta hverfi með vistvænum áherslum í samræmi við markmið Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040. Deiliskipulagssvæðið er um 29 hektarar og liggur að mörkum Reykjavíkur, Kórahverfis og Hvörfum í Vatnsenda. Gert er ráð fyrir nýju íbúðahverfi með fjölbreyttu formi íbúða, leikskóla og útivistarsvæðum ásamt verslun- og þjónustu. Tillagan gerir ráð fyrir 500 íbúðum alls, þar af um 150-200 íbúðum í sérbýli, (einbýli, raðhús/parhús). Hámarkshæð bygginga er 3 hæðir auk kjallara.
Uppdrættir í mkv. 1:2000 og greinargerð dags. 11. febrúar 2022.
Þá lögð fram tillaga að samráðsáætlun dags. 25. febrúar 2022.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna framlagða vinnslutillögu skv. samráðsáætlun. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
9.5 - 2201817 - Hafnarbraut 10, breytt deiliskipulag.
Lagt fram á ný erindi Skala arkitekta fh. lóðarhafa dags. 26. janúar 2022, þar sem sótt er um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar. Í breytingunni felst að íbúðum fjölgi um 8, verði 48 í stað 40 í sama rými og fyrir er og að bílageymsla verði stækkuð neðanjarðar og fjöldi bílastæða á lóð verði í samræmi við íbúðastærðir.
Uppdrættir í mkv. 1:1000 og 1:2000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 14. janúar 2022.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
9.6 - 2109355 - Nýbýlavegur 32. Kynning á byggingarleyfisumsókn.
Lagt fram á ný erindi Einars Ólafssonar arkitekts dags. 9. september 2021 fh. lóðarhafa Nýbýlavegar 32. Í erindinu er óskað eftir að að byggja skyggni yfir innganga íbúða á þriðju hæð og bæta við tveimur gluggum á austur- og vesturhlið. Uppdrættir dags. 17. desember 2021.
Á fundi skipulagsráðs 20. desember 2021 var samþykkt með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Nýbýlavegar 30, Dalbrekku 27, 29, 56 og 58. Kynningartíma lauk 31. janúar 2022, engar athugasemdir bárust.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
9.7 - 2201461 - Hlíðarvegur 15, kynning á byggingaleyfisumsókn.
Lagt fram erindi Tripóli arkitekta fh. lóðarhafa þar sem sótt er um að byggja fjölbýlishús á lóðinni í stað einbýlishúss. Í breytingunni felst að núverandi hús á lóðinni, einbýlishús frá árinu 1945, 114,4 m² að flatarmáli verði rifið. Á lóðinni verði reist 459,1 m² (byggingarmagn ofanjarðar og geymsla í kjallara) fjölbýlishús með fjórum íbúðum á tveimur hæðum og kaldri bílgeymslu í kjallara fyrir átta bíla. Lóðin er 850 m², nýtingarhlutfallið 0,13 og eftir breytingar verður það 0,94 með bílgeymslu. Greinargerð og uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 6. desember 2021.
Skipulagsráð hafnar erindinu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum og hafnar erindinu.
Fundargerð í tveimur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í sjö liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 23 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.
Margrét Friðriksdóttir er kosin aðalmaður í lista-og menningarráð í stað Guðmundar Gísla Geirdal.
Jón Finnbogason er kosinn varamaður í stað Margrétar Friðriksdóttur.
Hjördís Ýr Johnson er kosin aðalmaður í stað Guðmundar Gísla Geirdal.
Jón Finnbogason er kosinn varamaður í stað Hjördísar Ýr Johnson.
Karen E. Halldórsdóttir er kosin aðalmaður í notendaráði fatlaðs fólks í stað Guðmundar Gísla Geirdal.
Hjördís Ýr Johnson er kosin varamaður í öldungaráð í stað Guðmundar Gísla Geirdal.
Karen E. Halldórsdóttir er kosin sem varamaður í skipulagsráð í stað Guðmundar Gísla Geirdal.
Margrét Friðriksdóttir er kosin varamaður í stað Guðmundar Gísla Geirdal í umhverfis- og samgöngunefnd.