Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1275. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Hannes Steindórsson - aðalmaður
  • Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Sær Ragnarsson - varamaður

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Staða leikskólamála í dag, hvað veldur?

Dagskrármál að beiðni fulltrúa Framsóknarflokks, Sigrúnar Huldu Jónsdóttur.

Umræður.

02

Samræmd móttaka flóttafólks í Kópavogi

Dagskrármál að beiðni fulltrúa Pírata, Samfylkingar, Viðreisnar og Vina Kópavogs í bæjarstjórn.

Umræður.

Orri V. Hlöðversson vék af fundi kl. 18:18 og tók Gunnar Sær Ragnarsson varamaður sæti í hans stað.

Fundarhlé hófst kl. 18:21, fundi fram haldið kl. 18:38.

Bókun:

"Nú er að verða liðið ár frá því fyrrverandi bæjarstjóri sjálfstæðismanna staðfesti að Kópavogur væri kominn á lista yfir sveitarfélög sem ætluðu að taka þátt í samræmdri móttöku flóttafólks. Enn hefur enginn samningur litið dagsins ljós en flóttafólk sest á sama tíma að í Kópavogi með tilstuðlan Vinnumálastofnunar. Bæjarfélagið fær enga meðgjöf frá ríkinu með þessum einstaklingum. Brýnt er að flýta samningsgerð eins og hægt er til að gæta bæði hagsmuna flóttafólks og bæjarins. Með því að að taka fljótt og vel á móti fólki má styðja það til virkrar þátttöku í samfélaginu."

Bergljót Kristinsdóttir

Helga Jónsdóttir

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Theódóra Þorsteinsdóttir

Kolbeinn Reginsson


Bókun:

"Rétt er að árétta að Kópavogsbær er að þjónusta fjölda flóttafólks og mun gera það áfram.Gert er ráð fyrir að viðræðum um samræmda móttöku flóttafólks ljúki fljótlega og tillögur þess efnis verða kynntar innan skamms."

Ásdís Kristjánsóttir

Hjördís Ýr Johnson

Andri S. Hilmarsson

Hannes Steindórsson

Sigrún H. Jónsdóttir

Gunnar S. Ragnarsson

03

Bæjarráð - 3122. fundur frá 16.03.2023

Fundargerð í 20 liðum.

Lagt fram.

Fundarhlé hófst kl. 19:48, fundi fram haldið kl. 19:54.


3.1 - 23031177 - Viðaukar við fjárhagsáætlun 2023

Frá sviðsstjóra fjármálasviðs, lagður fram viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun 2023. Viðaukinn er vegna borunar rannsóknarborholu í Bláfjöllum, málsnúmer 2207106.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur framlagðan viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun 2023. Viðaukinn er vegna borunar rannsóknarborholu í Bláfjöllum, málsnúmer 2207106.


04

Bæjarráð - 3123. fundur frá 23.03.2023

Fundargerð í 23 liðum.

Lagt fram.


4.5 - 23031839 - Breyting á bæjarmálasamþykkt - valdframsal barnaverndarþjónustu

Frá lögfræðideild, dags. 21.03.2023, lögð fram breyting á bæjarmálasamþykkt vegna valdframsals barnarverndarþjónustu.

Bæjarráð samþykkir með öllum greiddum atkvæðum að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að vísa framlagðri breytingu á bæjarmálasamþykkt vegna valdframsals barnarverndarþjónustu til síðari umræðu.


05

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 363. fundur frá 24.02.2023

Fundargerð í tíu liðum.

Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.

06

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 364. fundur frá 14.03.2023

Fundargerð í þremur liðum.

Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.

07

Ungmennaráð - 36. fundur frá 20.03.2023

Fundargerð í þremur liðum.

Lagt fram.

08

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 97. fundur frá 08.03.2023

Fundagerð í tveimur liðum.

Lagt fram.

09

Velferðarráð - 116. fundur frá 13.03.2023

Fundargerð í fjórum liðum.

Lagt fram.

10

Íþróttaráð - 129. fundur frá 16.03.2023

Fundargerð í einum lið.

Lagt fram.

11

Leikskólanefnd - 150. fundur frá 16.03.2023

Lagt fram.


11.1 - 2302701 - Leikskólinn Kópasteinn

Lagt fram til samþykktar.

Leikskólanefnd samþykkir fyrir sitt leiti og vísar málinu áfram til afgreiðslu bæjarráðs.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagða tillögu um sameiningu leikskólans Skólatraðar og leikskólans Kópasteins.


12

Skipulagsráð - 139. fundur frá 20.03.2023

Fundargerð í 20 liðum.

Lagt fram.


12.10 - 22114380 - Vesturvör 22-24 (Hafnarbraut 16-18). Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju umsókn Scala arkitekta f.h. lóðarhafa dags. 7. nóvember 2022 um breytingu á deiliskipulagi lóðanna nr. 22 og 24 við Vesturvör. Í breytingunni felst að heiti lóðanna verði Hafnarbraut 16 (áður Vesturvör 24) og Hafnarbraut 18 (áður Vesturvör 22) þar sem aðkoma er ráðgerð frá Hafnarbraut. Lóðirnar stækki til norðurs samanlagt um 394,8 m², úr 5.135 m² í 5.529,8 m² og að í stað eins byggingarreits verði tveir stakstæðir byggingarreitir á lóðunum, einn á hvorri lóð. Heildarbyggingarmagn á lóðunum eykst um 4.990 m², úr 8.400 m² í 13.390 m² og íbúðum fjölgar um 32, úr 59 í 91 samtals á báðum lóðunum. Nýtingarhlutfall á lóðunum eykst úr 1.6 í 2.4 ofanjarðar og neðanjarðar á báðum lóðunum. Nýtingarhlutfall á Hafnarbraut 16 verður 2,15 og nýtingarhlutfall á Hafnarbraut 18 verður 2,69. Bílastæðum fjölgar um 15, úr 81 í 96 samanlagt á báðum lóðunum. Á fundi skipulagsráðs 14. nóvember 2022 var samþykkt að auglýsa tillöguna. Kynningartíma lauk 2. mars 2023, athugasemd barst. Á fundi skipulagsráðs 6. mars 2023 var erindinu vísað til umsagnar skipulagsdeildar. Lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 17. mars 2023.

Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með tilvísun í umsögn skipulagsdeildar dags. 17. mars 2023.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur og Kolbeins Reginssonar og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur og Bergljótar Kistinsdóttur.



12.11 - 2109353 - Vatnsendablettur 5. Breytt deiliskipulag

Lögð fram að nýju umsókn Sigurðar Hafsteinssonar byggingartæknifræðings dags. 22. nóvember 2022 f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 5 við Vatnsendablett. Í breytingu felst að lóðinni verði skipt í tvær lóðir, Vatnsendablettur 5 og 5A, og að reist verði einnar hæðar einbýlishús á nýrri lóð. Á lóðinni er í dag einnar hæðar einbýlishús og hesthús, núverandi byggingarmagn á lóðinni er 335,7m², lóðarstærð er 15.213 m² og núverandi nýtingarhlutfall á lóðinni er 0,02. Eftir breytingu yrði Vatnsendablettur 5, 13.404 m² að stærð með nýtingarhlutfall 0,03 og Vatnsendablettur 5A yrði 1.809 m² að stærð með nýtingarhlutfall 0,17. Gert er ráð fyrir að hámark bygggingarmagns á Vatnsendabletti 5A verði 300 m². Hámarkshæð nýbyggingar yrði 6,5 metrar og byggingarreitur 13x27m. Aðkoma yrði sameiginleg um lóð Vatnsendabletts 5 eftir núverandi heimkeyrslu. Einnig er lagt til að afmörkun lóðar og skipulagssvæðis ásamt legu reið- og göngustíga yrði uppfært í samræmi við gildandi mæliblað og núverandi legu stíga. Að öðru leiti verða skilmálar í gildandi deiliskipulagsáætlun óbreyttir.
Á fundi skipulagsráðs 28. nóvember 2022 var afgreiðslu frestað. Á fundi skipulagsráðs 19. desember 2022 var lagt fram uppfært skriflegt erindi og kynningaruppdráttur dags. 12. desember 2022, samþykki lóðareiganda dags. 1. september 2022 og minnisblað skipulagsdeildar dags. 13. desember 2022 og samþykkt var að auglýsa tillöguna. Kynningartíma lauk 2. mars 2023, umsögn barst. Á fundi skipulagsráðs 6. mars 2023 var erindinu vísað til umsagnar skipulagsdeildar. Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 17. mars 2023 ásamt uppfærðum uppdrætti dags. 17. mars 2023.

Skipulagsráð samþykkir tillöguna með áorðnum breytingum dags. 17. mars 2023 og tilvísun í umsögn skipulagsdeildar dags. 17. mars 2023.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.



12.12 - 2201817 - Hafnarbraut 10, breytt deiliskipulag.

Lagt fram að nýju erindi Skala arkitekta fh. lóðarhafa lóðarinnar nr. 10 við Hafnarbraut dags. 26. janúar 2022, þar sem sótt er um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar. Í breytingunni felst að íbúðum fjölgi um 8, verði 48 í stað 40 í sama rými og fyrir er og að bílageymsla verði stækkuð neðanjarðar og fjöldi bílastæða á lóð verði í samræmi við íbúðastærðir.
Uppdrættir í mkv. 1:1000 og 1:2000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 14. janúar 2022. Á fundi skipulagsráðs 28. febrúar 2022 var samþykkt að auglýsa tillöguna. Kynningartíma lauk 2. mars 2023, athugasemdir bárust. Á fundi skipulagsráðs 6. mars 2023 var erindinu vísað til umsagnar skipulagsdeildar. Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 17. mars 2023 ásamt uppfærðum uppdrætti dags. 17. mars 2023.

Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með fjórum atkvæðum. Kolbeinn Reginsson greiddi atkvæði gegn tillögunni. Theódóra S. Þorsteinsdóttir og Bergljót Kristinsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjastjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur, Kolbeins Reginssonar, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur og hjásetu Bergljótar Kistinsdóttur.



12.13 - 23011596 - Þinghólsskóli. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga umhvefissviðs að breyttu deiliskipulagi á lóð Kópavogsbrautar 58. Þinghólsskóli, samþykkt í bæjarstjórn 26. september 2000 og birt í B-deild stjórnartíðinda 20. nóvember 2000. Í breytingunni felst að komið verði fyrir byggingarreit á einni hæð fyrir 2 samtengdar lausar skólastofur á suðvestur hluta lóðarinnar. Hámarks hæð byggingarreits er áætluð 3 metrar og áætluð stærð byggingarreits er um 141m². Skólastofum er ætlað að mæta skammtímaþörf fyrir kennslustofur þar til nýr Kársnesskóli við Skólagerði verður tekinn í notkun. Þær verða síðan fjarlægðar aftur og skólalóð sett í fyrra horf sem malbikað leiksvæði. Svæðið er skilgreint fyrir samfélagsþjónustu í Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2014. Uppdráttur í mkv.1:1000, 1:2000 og 1:200 dags. 6. febrúar 2023.
Á fundi skipulagsráðs 6. febrúar 2023 var samþykkt að grenndarkynna tillöguna. Kynningartíma lauk 13. mars 2023, engar athugasemdir bárust.

Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.



12.14 - 23011662 - Selbrekka 20. Kynning á byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi byggingarfulltrúa dags. 13. janúar 2023 þar sem umsókn KRark arkitekta f.h. lóðarhafa um byggingarleyfi er vísað til skipulagsráðs. Í breytingunni felst að byggt verði við efri hæð hússins, svefnherbergi stækkað um 15,8 m². Byggingarmagn eykst úr 233,1 m² í 248,9 m². Nýtingarhlutfall eykst úr 0,27 í 0,29. Skýringaruppdættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 30. nóvember 2015. Á fundi skipulagsráðs 6. febrúar 2023 var samþykkt að grenndarkynna tillöguna. Kynningartíma lauk 13. mars 2023, engar athugasemdir bárust.

Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.


13

Menntaráð - 111. fundur frá 21.03.2023

Fundagerð í fjórum liðum.

Lagt fram.


13.3 - 2303310 - Hörðuvallaskóli

Tillaga um skipulagsbreytingar lögð fram.

Menntaráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögu um skipulagsbreytingar á Hörðuvallaskóla með öllum greiddum atkvæðum og vísar tillögunni til bæjarráðs og bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagða tillögu um skipulagsbreytingar á Hörðuvallaskóla.


14

Fundargerð 553. fundar stjórnar SSH frá 06.03.2023

Fundargerð 553. fundar stjórnar SSH frá 06.03.2023.

Lagt fram.

15

Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á skíðasvæðunum frá 17.02.2023

Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á skíðasvæðunum frá 17.02.2023.

Lagt fram.

16

Fundargerð 478. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 14.03.2023

Fundargerð 478. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 14.03.2023.

Lagt fram.

17

Fundargerð 920. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 17.03.2023

Fundargerð 920. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 17.03.2023.

Lagt fram.

Fundarhlé hófst kl. 20:17, fundi fram haldið kl. 20:25.

Bókun bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn Kópavogs sendir hlýjar kveðjur til Fjarðabyggðar í ljósi þeirra hamfara sem hafa dunið þar yfir.
Hugur okkar er hjá íbúum Fjarðabyggðar sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín og standa nú í ströngu við að takast á við afleiðingar atburðanna."