Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1272. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Andri Steinn Hilmarsson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Hannes Steindórsson - aðalmaður
  • Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Nónhæð úrskurður umhverfis- og auðlindamála frá 20. janúar 2023 í máli nr. 92/2022

Erindi frá bæjarfulltrúa Viðreisnar.

Umræður.

02

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 361. fundur frá 27.01.2023

Fundargerð í sex liðum.

Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.

03

Bæjarráð - 3116. fundur frá 26.01.2023


3.6 - 2301001F - Umhverfis- og samgöngunefnd - 160. fundur frá 17.01.2023

Fundargerð í fimm liðum.

Lagt fram.

Mál nr. 3 í fundargerð umhverfis- og samgöngunefndar nr. 160 - Breytingar á umferðarrétti:

Bæjarráð samþykkir með 11 atkvæðum framlagða tillögu.

04

Bæjarráð - 3117. fundur frá 02.02.2023

Fundargerð í 14 liðum.

Lagt fram.


4.6 - 22115185 - Endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar

Frá BRÚ lífeyrissjóði, lagt fram erindi um Endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar. Lagt er til við sveitarfélagið að endurgreiðsluhlutfall launagreiðenda á greiddum lífeyri í réttindasafni Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar fyrir árið 2023 verði óbreytt frá fyrra ári eða 71%.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til samþykktar bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum tillögu að endurgreiðsluhlufalli fyrir árið 2023.


05

Bæjarráð - 3118. fundur frá 09.02.2023

Fundargerð í níu liðum.

Lagt fram.

06

Menntaráð - 108. fundur frá 07.02.2023

Fundargerð í sex liðum.

Lagt fram.

07

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 95. fundur frá 01.02.2023

Fundargerð í fjórum liðum.

Lagt fram.

08

Ungmennaráð - 34. fundur frá 23.01.2023

Fundargerð í þremur liðum.

Lagt fram.

09

Skipulagsráð - 136. fundur frá 06.02.2023

Fundargerð í 15 liðum.

Lagt fram.


9.10 - 2212438 - Melgerði 21. Kynning á byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 9. desember 2022, þar sem umsókn
Gunnlaugs Ó. Johnson arkitekts um byggingarleyfi f.h. lóðarhafa er vísað til skipulagsráðs. Í breytingunni felst að stofa íbúðar á neðri hæð í suðvesturhorni hússins, verði stækkuð um 15.3 m². Auk þess verði byggðar svalir á efri hæð, austast á suðurhlið hússins. Byggingarmagn á lóðinni eykst úr 259,8 m² í 275,1 m². Nýtingarhlutfall eykst úr 0,32 í 0,34.
Meðfylgjandi: Uppdrættir í mkv. 1:100 dags. 19. október 2022.
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. desember 2022 var samþykkt með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breytingum á neðri og efri hæð hússins verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Melgerði 19, 23 og Vallargerði 20, 22 og 24.
Kynnningartíma lauk 27. janúar 2023, engar athugasemdir bárust.

Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.



9.11 - 22032545 - Sæbólsbraut 34A, breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju umsókn lóðarhafa Sæbólsbraut 34A um breytingu á deiliskipulagi, skv. teikningum KJ Hönnun dags. 23. mars 2022. Óskað er eftir heimild til þess að byggja yfir svalir á austurhlið (16 m²), nýta rými undir palli efri hæðar á vesturhlið fyrir útigeymslu (17 m²), lagnarými á neðri hæð verði geymsla (40 m²) og bílgeymsla stækkuð (6 m²). Alls nýtanleg stækkun 79 m². Húsnæðið er 311,1 m² og verður því 390,1 m². Nýtingarhlutfall er 0,4, verði 0,5.
Meðfylgjandi: Skýringaruppdrættir dags. 5. janúar 2022 í mkv. 1:100 og 1:50.
Á fundi skipulagsráðs 2. maí 2022 var samþykkt með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skiplagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Sæbólsbrautar 32-40, 41, 43, 45, 47, 49, 51 og 53.
Kynningartíma lauk 31. janúar 2022, engar athugasemdir bárust.

Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.



9.5 - 2112277 - Suðurlandsvegur í Kópavogi og Mosfellsbæ, frá Fossvöllum að Hólmsá. Deiliskipulag.

Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga verkfræðistofunar Eflu f.h. umhverfissviðs Kópavogsbæjar og Mosfellsbæjar að deliskipulagi Suðurlandsvegar í Kópavogi og Mosfellsbæ. Skipulagssvæðið er rúmir 67,3 ha að stærð, um 5,6 km að lengd og liggur frá Geithálsi vestan Hólmsár, í Mosfellsbæ, að tvíbreiðum hluta Suðurlandsvegar, austan Lögbergsbrekku. Í tillögunni er gert ráð fyrir að núverandi Suðurlandsvegur verði breikkaður til norðurs og verði samfelldur stofnvegur með tveimur akreinum í hvora akstursstefnu. Gert er ráð fyrir vegamótum við Geirland ásamt hliðarvegum/tengivegum í Lækjarbotnum, Gunnarshólma og Geirlandi. Markmið deiliskipulagsins er að auka þjónustustig samgangna á svæðinu og bæta umferðaröryggi. Uppdrættir og greinargerð dags. 30. júní 2022 í mkv 1:10000.
Á fundi skipulagsráðs 15. ágúst 2022 samþykkti skipulagsráð með tilvísun í 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að deiliskipulagi yrði auglýst. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Á fundi bæjarstjórnar 23. ágúst 2022 var afgreiðsla skipulagsráðs staðfest.
Kynningartíma lauk 14. október 2022, athugasemdir bárust.
Á fundi skipulagsráðs 17. október 2022 var afgreiðslu málsins frestað og vísað til umsagnar skipulagsdeildar.
Tillagan er sett fram á uppdrætti og í greinargerð, dags. 30. júní 2022 og uppfærð 2. febrúar 2023.
Þá lögð fram sameiginleg umsögn Kópavogsbæjar og Mosfellsbæjar ásamt samantekt um málsmeðferð dags. í febrúar 2023.

Skipulagsráð samþykkir með fjórum atkvæðum framlagða tillögu að deiliskipulagi, dags. 30. júní 2022 og uppfærða tillögu, dags. 2. febrúar 2023 með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. í febrúar 2023 með fimm atkvæðum. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Helga Jónsdóttir, Theódóra S. Þorsteinsdóttir og Bergljót Kristinsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 6 atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur, Kolbeins Reginssonar, Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Theódóru S. Þorsteinsdóttur.



9.6 - 2201623 - Bláfjöll. Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir rannsóknarborholum í Bláfjöllum

Lagt fram erindi Hauks Einarssonar verkfræðistofunnar Mannvit f.h. Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu dags. 17. janúar 2023. Óskað er eftir útgáfu framkvæmdaleyfis fyrir borun á rannsóknarholum nr. 1 og 3 á Bláfjallasvæðinu. Á fundi skipulagsráðs 31. janúar 2022 var samþykkt framkvæmdaleyfi fyrir fjórar rannsóknarborholur. Nú hefur í samráði við Umhverfisstofnun staðsetningu á holu 1 verið breytt. Veldur því að slóði að holunni verður um 1.100 metrar í stað 1.700 metrar áður og slóði fer ekki yfir viðkvæmt svæði í hrauni. Fyrir liggur samþykki Umhverfisstofnunar, staðfesting á starfsleyfi Heilbrigðiseftirlits og staðfesting forsætisráðuneytis vegna framkvæmda í Þjóðlendu. Meðfylgjandi er skýringaruppdráttur dags. 17. janúar 2023 ásamt eldri viðaukum.

Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.


10

Velferðarráð - 113. fundur frá 23.01.2023

Fundargerð í fimm liðum.

Lagt fram.

11

Fundargerð 917. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 20.01.2023

Fundargerð 917. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 20.01.202

Lagt fram.

12

Fundargerð 918. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 27.01.2023

Fundargerð 918. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 27.01.2023

Lagt fram.

13

Fundargerð 409. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 17.01.2023

Fundargerð 409. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 17.01.2023

Lagt fram.

14

Fundargerð 101. fundar stjórnar Markaðsstofu Kópavogs frá 12.01.2023

Fundargerð 101. fundar stjórnar Markaðsstofu Kópavogs frá 12.01.2023

Lagt fram.

15

Fundargerð 364.fundar stjórnar Strætó frá 06.01.2023

Fundargerð 364.fundar stjórnar Strætó frá 06.01.2023

Lagt fram.

16

Fundargerð 113. fundar stjórnar svæðisskipulagsnefndar frá 20.01.2023

Fundargerð 113. fundar stjórnar svæðisskipulagsnefndar frá 20.01.2023

Lagt fram.

17

Fundargerð 365. fundar stjórnar Strætó frá 20.01.2023

Fundargerð 365. fundar stjórnar Strætó frá 20.01.2023

Lagt fram.

18

Fundargerð 1. fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes frá 30.01.2023

Fundargerð 1. fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes frá 30.01.2023

Lagt fram.

19

Fundargerð 246. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 27.01.2023

Fundargerð 246. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 27.01.2023

Lagt fram.

20

Kosningar í almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins 2022-2026

Kosning varamanns í amannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins.

Teitur Erlingsson er kjörinn varamaður í almannavarnarnefnd.