Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1284. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Andri Steinn Hilmarsson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Elísabet Berglind Sveinsdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Ása Arnfríður Kristjánsdóttir - bæjarlögmaður

Ritari

  • Ása A. Kristjánsdóttir

Dagskrá fundar

01

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 375. fundur frá 01.09.2023

Fundargerð í fjórum liðum.

Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.

02

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 376. fundur frá 15.09.2023

Fundargerð í sjö liðum.

Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.

03

Bæjarráð - 3142. fundur frá 14.09.2023

Fundargerð í 13 liðum.

Lagt fram.

04

Bæjarráð - 3143. fundur frá 21.09.2023

Fundargerð i 22 liðum.

Lagt fram.


4.3 - 23091797 - Bókun 119. fundar svæðisskipulagsnefndar. Starfs- og fjárhagsáætlun 2024

Frá svæðisskipulagsnefnd, lögð fram til samþykktar tillaga að fjárhagsáætlun og starfsáætlun 2024.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 greiddum atkvæðum tillögu svæðisskipulagsnefndar að fjárhagsáætlun og starfsáætlun 2024.


05

Menntaráð - 118. fundur frá 19.09.2023

Fundargerð í 4 liðum.

Lagt fram.

06

Skipulagsráð - 149. fundur frá 18.09.2023

Fundargerð í 19 liðum.

Lagt fram.


6.12 - 23091649 - Bláfjallaleið 30. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Einars Ólafssonar, arkitekts, dags. 14. september 2023 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 30 við Bláfjallaleið. Í breytingunni felst stækkun byggingarreits félagshúss Ullar úr 2002 m² í 2389 m², eða um 387 m² til norðvesturs. Hámark byggingarmagns innan byggingarreits helst óbreytt.
Uppdráttur í mkv. 1:5000 dags. 15. september 2023.

Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með tilvísun í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.



6.15 - 23061397 - Fornahvarf 10. Breytt deiliskipulag

Lagt fram að nýju erindi Haraldar Ingvarssonar arkitekts dags. 16. júní 2023 þar sem óskað er eftir f.h. lóðarhafa, breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 10 við Fornahvarf. Á lóðinni í dag er íbúðarhús 144,6 m², geymsla 42,6 m² og hesthús 144 m². Samtals byggingarmagn á lóðinni 331,2 m². Í breytingunni felst að stækka íbúðarhúsið um 467 m² til norðurs á tveimur hæðum og kjallara ásamt úti vaðlaug að sunnanverðu og áorðinna breytinga þar með talið nýtt gufubað og stækkun á sólskála. Áætlað er einnig að byggja 185,5 m² vinnustofu á norð-austur hluta lóðarinnar, tvöfaldan 56,3 m² bílskúr á suð-vestur hluta lóðarinnar og að breyta geymslu að hluta til í gestahús og stækka það um 5,4 m². Byggingarmagn á lóðinni eykst um 714,2 m² og mun því eftir breytinguna verða um 1050 m². Lóðin er 4800 m² mun því nýtingarhlutfall á lóðinni hækka úr 0,07 í 0,22 við breytinguna. Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 10. janúar 2023 og 31. mars 2023. Á fundi skipulagsráðs 19. júní 2023 var samþykkt að grenndarkynna tillögu að breyttu deiliskipulagi. Kynningartíma lauk 3. ágúst 2023. Á fundi skipulagsráðs 21. ágúst 2023 voru athugasemdir lagðar fram, skipulagsráð vísaði þeim til umsagnar skipulagsdeildar. Þá lögð fram uppfærð umsögn skipulagsdeildar dags. 30. ágúst 2023 uppfærð 15. september 2023 ásamt uppfærðum deiliskipulagsuppdrætti dags. 26. júní 2023 og uppfærður 15. september 2023. Jafnframt lögð fram umsögn framkvæmdardeildar dags. 14. september 2023.

Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu dags. 26. júní 2023 með áorðnum breytingum dags. 15. september 2023. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.



6.17 - 23052131 - Hraunbraut 14. Kynning á byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi byggingarfulltrúa dags. 26. maí 2023 þar sem umsókn Luigi Bartolozzi arkitekts dags. 11. mars 2021 um byggingarleyfi f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 14 við Hraunbraut er vísað til skipulagsráðs. Á lóðinni stendur steinsteypt þriggja hæða hús með þremur íbúðum og sambyggðum bílskúr, byggt 1968. Sótt er um að 57,6 m² rými undir bílskúrnum sem er skráð sem geymsla verði breytt í samþykkta íbúð. Uppdrættir í mkv. 1:500 ásamt byggingarlýsingu dags. 11. mars 2021. Á fundi skipulagsráðs 3. júlí 2023 var samþykkt að grenndarkynna tillöguna og kynningartíma lauk 14. september 2023. Engar athugasemdir bárust.

Skipulagsráð samþykkir erindið með sex atkvæðum gegn atkvæði Kristins Dags Gissurarsonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 10 atkvæðum og hjásetu Hjördísar Ýr Johnsson.



6.9 - 23091454 - Dalsmári 13. Stækkun Tennishallar. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Rebekku Pétursdóttur dags. 13. september 2023 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 13 við Dalsmára um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst stækkun lóðarinnar um 10m frá núverandi lóðamörkum í austur, alls um 660 m2 ásamt tillögu að viðbyggingu við núverandi hús á lóðinni alls um 1.800 m² að flatarmáli.
Uppdráttur í mkv. 1:1000 og 1:500 ódags. ásamt skýringarmyndum og fylgiskjal, ódags.

Skipulagsráð samþykkir með fimm atkvæðum gegn atkvæði Hákons Gunnarssonar og með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi verði auglýst. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Helga Jónsdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 7 atkvæðum. Bergljót Kristinsdóttir, Orri Hlöðversson, Helga Jónsdóttir og Kolbeinn Reginsson sátu hjá.

Helga Jónsdóttir og Bergljót Kristinsdóttir gerðu grein fyrir atkvæðum sínum.
Hjördís Ýr Johnsson gerði grein fyrir atkvæði sínu.


07

Velferðarráð - 123. fundur frá 11.09.2023

Fundargerð í fimm liðum.

Lagt fram.

08

Fundargerð 111. fundar stjórnar Markaðsstofu frá 01.09.2023

Fundargerð 111. fundar stjórnar Markaðsstofu Kópavogs frá 01.09.2023.

Lagt fram.

09

Fundargerð 119. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 08.09.2023

Fundargerð 119. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 08.09.2023.

Lagt fram.

10

Fundargerð 563. fundar stjórnar SSH frá 04.09.2023

Fundargerð 563. fundar stjórnar SSH frá 04.09.2023.

Lagt fram.

11

Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á skíðasvæðunum frá 29.08.2023

Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á skíðasvæðunum frá 29.08.2023.

Lagt fram.

12

Fundargerð 43. eigendafundar stjórnar Strætó frá 04.09.2023

Fundargerð 43. eigendafundar stjórnar Strætó frá 04.09.2023.

Lagt fram.

13

Fundargerð 251. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 30.06.2023

Fundargerð 251. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 30.06.2023.

Lagt fram.

14

Fundargerð 252. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 08.09.2023

Fundargerð 252. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 08.09.2023.

Lagt fram.

15

Fundargerð 43. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 04.09.2023

Fundargerð 43. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 04.09.2023.

Lagt fram.

16

Fundargerð 483. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 27.06.2023

Fundargerð 483. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 27.06.2023.

Lagt fram.

17

Fundargerð 484. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 11.08.2023

Fundargerð 484. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 11.08.2023.

Lagt fram.

18

Fundargerð 932. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 08.09.2023

Fundargerð 932. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 08.09.2023.

Lagt fram.

19

Fundargerð 933. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 18.09.2023

Fundargerð 933. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 18.09.2023.

Lagt fram.

20

Kosningar í íþróttaráð 2022-2026

Kosning varmanns í íþróttaráð.

Þorvar Hafsteinsson tekur sæti Daða Rafnssonar sem varamaður fyrir Samfylkinguna.

21

Kosningar í leikskólanefnd 2022-2026

Kosning áheyrnarfulltrúa í leikskólanefnd.

Heiða Björg Þórbergsdóttir tekur sæti Guðrúnar Birnu Le Sage de Fontenay sem áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar.