Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Engihjalli - Þróunarverkefni

Málsnúmer: 1410481

Ferill máls

01

Umhverfis- og samgöngunefnd - 76. fundur

Lagðar fram fyrirhugaðar teikningar að endurbótum á götustæði við Engihjalla 1-25.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkti framlagða tillögu að teikningum að endurbótum á götustæði við Engihjalla 1-25.

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 70. fundur

Lögð fram kynningu á hugmyndarvinnu að þróunarverkefni í Engihjalla sem kynnt var á 56. fundi umhverfis- og samgöngunefndar 4. nóvermber 2014 og 1284. fundi skipulagsnefndar 3. nóvember 2014.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að vísa til umhverfissviðs að hefja hönnunarvinnu og kostnaðargreiningu og skila til nefndarinnar með hugmyndarvinnu frá Engihjallasamtökunum að leiðarljósi.

03

Umhverfis- og samgöngunefnd - 63. fundur

Lögð fram ósk varðandi göngu- og hjólreiðastíg meðfram Nýbýlaveg við Engihjalla 1 og Stórahjalla 2.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að fela umhverfissviði að koma með tillögur að útfærslu tengingu göngu- og reiðhjólastígs á svæðinu með tilliti til þess að styrkja núverandi tengingar útivistarsvæðis Kópavogsdals og Fossvogsdals.

04

Umhverfis- og samgöngunefnd - 61. fundur

Gert grein fyrir stöðu mála.

Gert grein fyrir stöðu mála.

05

Skipulagsnefnd - 1253. fundur

Greint frá stöðu mála.

Kynnt.

06

Skipulagsnefnd - 1249. fundur

Greint frá íbúaþingi sem haldið var í Álfhólsskóla laugardaginn 8. nóvember 2014 á vegum Engihjallasamtakanna.

Kynnt.

07

Umhverfis- og samgöngunefnd - 56. fundur

Kynnt hugmyndarvinna að þróunarverkefni í Engihjalla og fyrirhugað íbúaþing þann 8.11.2014.

Lagt fram og kynnt. Umhverfis- og samgöngunefnd fagnar einróma framtaki íbúasamtaka Engihjalla.

08

Skipulagsnefnd - 1248. fundur

Greint frá fundi með formanni skipulagsnefndar, formanni umhverfis- og samgöngunefndar, Engihjallasamtökunum og starfsmönnum skipulags- og byggingardeildar sem haldinn var mánudaginn 27.10.2014 í Fannborg 6.$line$$line$Greint frá íbúaþingi sem Engihjallasamtökin standa fyrir og verður haldið 8.11.2014 kl. 10:30-14:00 í Álfhólsskóla.

Kynnt.