Vegtenging milli Stjörnugrófar og Fossvogsbrúnar fyrir strætó.
Málsnúmer: 2109382
Ferill máls
01
Skipulags- og umhverfisráð - 19. fundur
Lagt fram að nýju erindi frá Strætó bs. dags. 8. september 2025 þar sem óskað er eftir því að Reykjavíkurborg og Kópavogur hefji undirbúning að byggingu strætóvegar milli Stjörnugrófar og Fossvogsbrúnar ásamt því að setja upp hlið og tvær nýjar stoppistöðvar í Reykjavík og Kópavogi. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 3. nóvember 2025 var erindinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. nóvember 2025.
Einnig eru lagðar fram athugasemdir Jóns Kristjáns Rögnvaldssonar, skrifstofustjóra starfsstöðva og þróunar á velferðarsviði dags. 6. nóvember 2025 ásamt fylgiskjali og athugasemdir frá Landssamtökum hjólreiðamanna dags. 11. nóvember 2025.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 12. nóvember 2025.
02
Skipulags- og umhverfisráð - 18. fundur
Lagt fram erindi frá Strætó bs. dags. 8. september 2025 þar sem óskað er eftir því að Reykjavíkurborg og Kópavogur hefji undirbúning að byggingu strætóvegar milli Stjörnugrófar og Fossvogsbrúnar ásamt því að setja upp hlið og tvær nýjar stoppistöðvar í Reykjavík og Kópavogi.
Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Fundarhlé kl. 16:48, fundi framhaldið kl. 16:58.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa með sex atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Leós Snæs Péturssonar, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar gegn atkvæði Gunnars Sæs Ragnarssonar.
03
Skipulagsráð - 144. fundur
Lögð fram og kynnt fyrirspurn Strætó bs, dags 17. apríl 2023. Breytingin felur í sér að koma á fót vegtengingu einungis ætluðum Strætó, sem myndi tengja á milli Fossvogsbrúnar og Stjörnugrófar í tengslum við breytingar á heildarleiðarkerfi Strætó á höfuðborgarsvæðinu.
Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 15. júní 2023.
Skipulagsráð leggst ekki gegn framlagðri fyrirspurn en leggur ríka áherslu á að umferðaröryggi verði tryggt við göngu- og hjólastíg í Fossvogsdal og við íbúðakjarnann við Fossvogsbrún 2A. Jafnframt skal huga sérstaklega að fyrirkomulagi bílastæða í Fossvogsbrún.
04
Skipulagsráð - 141. fundur
Lögð fram fyrirspurn frá Strætó bs. um að koma á fót vegtengingu milli Fossvogsbrúnar og Stjörnugrófar í Reykjavík. Vegtengingin yrði aðeins ætluð strætisvögnum. Framkvæmdin yrði liður í breytingu á heildarleiðarneti Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Ragnheiður Einarsdóttir og Sólrún Svava Skúladóttir frá Strætó bs. ásamt Daða Baldri Ottóssyni frá Eflu gera grein fyrir erindinu.
Lagt fram og kynnt. Vísað til umsagnar umhverfissviðs.
05
Umhverfis- og samgöngunefnd - 161. fundur
Fyrirspurn Strætó bs. um koma á fót vegtengingu einungis ætluðum Strætó, sem myndi tengja á milli Smiðjuvegar og Stjörnugrófar í tengslum við breytingar á heildarleiðaneti Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Fulltrúar Strætó og Eflu kynna tillöguna.
Lagt fram og kynnt