Auðbrekka þróunarsvæði. Svæði 4, Auðbrekka 15 til 27, oddatölur. Deiliskipulag. Forkynning.
Málsnúmer: 2201629
Ferill máls
01
Skipulags- og umhverfisráð - 27. fundur
Lögð fram að nýju að lokinni forkynningu á vinnslustigi tillaga skipulagsdeildar dags. 17. október 2025 að deiliskipulagi fyrir svæði 4 á þróunarsvæðinu í Auðbrekku (ÞR-2). Í tillögunni felst áframhaldandi þróun svæðisins úr athafnasvæði í blandaða byggð. Íbúðir á svæði 4 verða samtals 89 á svæði 4. Þriðjungi íbúða verður komið fyrir á efstu hæð í núverandi atvinnuhúsnæði sem breytt verður í íbúðarhúsnæði að hluta og hækkað um eina hæð. Nýbygging við Auðbrekku 15. Gert er ráð fyrir að byggingarmagn á svæðinu geti aukist um 6.300 m². Atvinnuhúsnæði verður áfram á jarðhæðum við Auðbrekku. Tillagan er sett fram á uppdrætti og skilmálahefti dags 17. október 2025. Einnig er lögð fram skipulagslýsing dags. 2015, uppfærð 17. október 2025, drög að umhverfismati dags. 17. október 2025, Áhættumati vegna loftslagsbreytinga dags 9. maí 2025, skýringahefti-B dags. í október 2025 og húsakönnun dags. október 2025. Tillagan var forkynnt 29. janúar til 12. mars 2026, athugasemdir bárust.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkir með sex atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar, Leós Snæs Péturssonar og Hákonar Gunnarssonar að fela skipulagsfulltrúa að vinna framlagða tillögu á vinnslustigi dags. 17. október 2025 áfram með hliðsjón af framkomnum athugasemdum og ábendingum á kynningartíma. Helga Jónsdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins.
- Uppfært hljóðkort janúar 2026
- Athugasemdir sem bárust á kynningartíma_Auðbrekka
- Minnisblað Mannvit um umhverfisáhrif dags 2015
- Húsakönnun 17. okt 2025
- Skipulagslýsing 2015 uppf. 17. okt 2025
- Uppdráttur 17. okt 2025
- Skilmálar 17.okt 2025
- Drög - Áhættumat vegna loftlagsbreytinga 26. janúar 2026
- Skýringarhefti B, dags 2014, uppf. okt 2025
02
Bæjarstjórn - 1328. fundur
Lögð fram á vinnslustigi tillaga skipulagsdeildar dags. 17. október 2025 að deiliskipulagi fyrir svæði 4 á þróunarsvæðinu í Auðbrekku (ÞR-2). Í tillögunni felst áframhaldandi þróun svæðisins úr athafnasvæði í blandaða byggð. Íbúðir á svæði 4 verða samtals 89 á svæði 4. Þriðjungi íbúða verður komið fyrir á efstu hæð í núverandi atvinnuhúsnæði sem breytt verður í íbúðarhúsnæði að hluta og hækkað um eina hæð. Nýbygging við Auðbrekku 15. Gert er ráð fyrir að byggingarmagn á svæðinu geti aukist um 6.300 m2. Atvinnuhúsnæði verður áfram á jarðhæðum við Auðbrekku.
Tillagan er sett fram á uppdrætti og skilmálahefti dags 17. október 2025.
Einnig er lögð fram skipulagslýsing dags. 2015, uppfærð 17. okt 2025, drög að umhverfismati dags. 17. október 2025, Áhættumati vegna loftslagsbreytinga dags 9. maí 2025, skýringarhefti-B dags. í október 2025 og húsakönnun dags. október 2025.
Brynja Guðnadóttir verkefnastjóri gerði grein fyrir erindinu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
03
Bæjarráð - 3232. fundur
Lögð fram á vinnslustigi tillaga skipulagsdeildar dags. 17. október 2025 að deiliskipulagi fyrir svæði 4 á þróunarsvæðinu í Auðbrekku (ÞR-2). Í tillögunni felst áframhaldandi þróun svæðisins úr athafnasvæði í blandaða byggð. Íbúðir á svæði 4 verða samtals 89 á svæði 4. Þriðjungi íbúða verður komið fyrir á efstu hæð í núverandi atvinnuhúsnæði sem breytt verður í íbúðarhúsnæði að hluta og hækkað um eina hæð. Nýbygging við Auðbrekku 15. Gert er ráð fyrir að byggingarmagn á svæðinu geti aukist um 6.300 m2. Atvinnuhúsnæði verður áfram á jarðhæðum við Auðbrekku.
Tillagan er sett fram á uppdrætti og skilmálahefti dags 17. október 2025.
Einnig er lögð fram skipulagslýsing dags. 2015, uppfærð 17. okt 2025, drög að umhverfismati dags. 17. október 2025, Áhættumati vegna loftslagsbreytinga dags 9. maí 2025, skýringarhefti-B dags. í október 2025 og húsakönnun dags. október 2025.
Brynja Guðnadóttir verkefnastjóri gerði grein fyrir erindinu.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
04
Skipulags- og umhverfisráð - 17. fundur

Samþykkt að framlögð tillaga verði forkynnt á vinnslustigi með vísan til 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
05
Skipulags- og umhverfisráð - 11. fundur
Lögð fram til kynningar tillaga umhverfissviðs á vinnslustigi að deiliskipulagi fyrir svæði 4 í Auðbrekku dags 12. júní 2025. Svæðið er skilgreint sem samgöngumiðað þróunarsvæði í gildandi aðalskipulagi, þar sem gert er ráð fyrir blandaðri byggð. Viðfangsefni tillögunnar snýr einkum að áframhaldandi þróun svæðis frá athafnasvæði yfir í blandaða byggð með sérstakri áherslu á gæði byggðar, góðum samgöngutengingum m.a. fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og almenningsrými. Haldið er áfram með heildarsýn fyrir framtíðarþróun sem var kynnt þegar deiliskipulag fyrir svæði 1, 2 og 3 var samþykkt 2016. Tillagan nær til lóða nr. 15, 17, 19, 21, 23 og 25-27 við Auðbrekku.
Uppdrættir í mkv. 1:2500 og 1:1000 dags. 28. maí 2025.
Brynja Guðnadóttir verkefnastjóri gerði grein fyrir erindinu.
Lagt fram og kynnt, umræður.
06
Skipulagsráð - 172. fundur
Kynning á drögum á vinnslustigi fyrir deiliskipulagsvinnu á þróunarsvæði Auðbrekku, nánar til tekið á svæði 4 (Auðbrekku 15-27). Áætlanir skipulagsdeildar um byggðarþróun á umræddum svæðum eru í samræmi við Aðalskipulag Kópavogs 2019-2040 og markmið í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2015-2040. Í ofangreindum skipulagsgögnum eru settar fram hugmyndir um að breyta og bæta ásýnd hverfisins með uppbyggingu verslunar- þjónustu og íbúðarhúsnæðis sem og opinna svæða og gönguleiða.
Skýringarhefti dags. 26. apríl 2014 og uppfært 18. október 2024.
Skipulagsráð samþykkir að hafin verði vinna við gerð deiliskipulags fyrir svæði 4 á þróunarsvæðinu í Auðbrekku (ÞR-2) og að ofangreind drög verði kynnt fyrir lóðarhöfum á svæðinu.