Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hafnarbraut 10. Byggingaráform

Málsnúmer: 23091653

Ferill máls

01

Skipulagsráð - 150. fundur

Með tilvísan í deiliskipulagsskilmála fyrir Hafnarbraut 2-10, Kársnesbraut 108-114 og breyttu deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 10 við Hafnarbraut eru lögð fram að nýju f.h. lóðarhafa byggingaráform Skala arkitekta erindi dags. 13. september 2023. Í byggingaráformunum kemur fram hvernig hönnun og frágangur hússins fellur að viðmiðum í almennum ákvæðum í skipulagsskilmálum og þeim dæmum eða fyrirmyndum sem fram koma á skýringarmyndum sem fylgja gildandi deiliskipulagi sem samþykkt var í bæjarstjórn 14. nóvember 2017. Ásamt því sem kemur fram í breyttu deiliskipulagi samþykkt í sveitarstjórn 28. mars 2023 og birt í B-deild Stjórnartíðinda 22. maí 2023. Á fundi skipulagsráðs nr. 149 þann 18. september 2023 var afgreiðslu málsins frestað. Þá lögð fram byggingaráform samantekt dags. 2. október 2023, afstöðumynd aðaluppdrátta og byggingarlýsing dags. 16. júní 2023 og minnisblað skipulagsdeildar dags. 29. september 2023.

Helgi Steinar Helgason arkitekt frá Skala arkitektum gerir grein fyrir erindinu.

Skipulagsráð samþykkir framlögð byggingaráform með 6 atkvæðum enda verði deiliskipulagsskilmálum fylgt sbr. minnisblað skipulagsdeildar dags. 29. september 2023.

Helga Jónsdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins.

02

Skipulagsráð - 149. fundur

Með tilvísan í deiliskipulagsskilmála fyrir Hafnarbraut 2-10, Kársnesbraut 108-114 og breyttu deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 10 við Hafnarbraut eru lögð fram f.h. lóðarhafa byggingaráform Skala arkitekta erindi dags. 13. september 2023 og aðaluppdrættir dags. 16. júní 2023.

Í byggingaráformunum kemur fram hvernig hönnun og frágangur hússins fellur að viðmiðum í almennum ákvæðum í skipulagsskilmálum og þeim dæmum eða fyrirmyndum sem fram koma á skýringarmyndum sem fylgja gildandi deiliskipulagi sem samþykkt var í bæjarstjórn 14. nóvember 2017. Ásamt því sem kemur fram í breyttu deiliskipulagi samþykkt í sveitarstjórn 28. mars 2023 og birt í B-deild Stjórnartíðinda 22. maí 2023.

Lagt fram. Afgreiðslu frestað.