Langabrekka 2. Breytt deiliskipulag. Fyrirspurn.
Málsnúmer: 23092571
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 151. fundur
Lögð fram fyrirspurn Ívars Haukssonar byggingarverkfræðings dags. 13. október 2023 um breytingu á deiliskipulagi f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Löngubrekku.
Í gildandi deiliskipulagi eru 5 íbúðir heimilaðar, á 2 hæðum ásamt kjallara á lóðinni með 10 bílastæðum. Á lóðinni er hámarksbyggingarmagn 512m² og nýtingarhlutfall 0,65 miðað við lóðarstærð 795m². Í breytingunni felst að 5 íbúðir verði 6, byggingarmagn eykst um 19m² í 532m². Íbúð í kjallara myndi breytast í tvær og stækka með að nýta óútgrafin rými. Gert er ráð fyrir að fjölga um eitt bílastæði. Stærð og lögun byggingarreits gildandi deiliskipulags mun haldast óbreytt. Meðfylgjandi eru gildandi deiliskipulag frá 2007 og 2014, uppdráttur með tillögu að breytingu dags. 25. september 2023 og minnisblað skipulagsdeildar dags. 12. október 2023.
Skiplagsráð lítur neikvætt á framlagða fyrirspurn.