Hafnarbraut 18. Byggingaráform
Málsnúmer: 2309772
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 150. fundur
Með tilvísan í deiliskipulagsskilmála fyrir Vesturvör 16-28 og Hafnarbraut 20 og breyttu deiliskipulagi Vesturvör 22-24 (Hafnarbraut 16-18) eru lögð fram að nýju f.h. lóðarhafa byggingaráform Skala arkitekta erindi dags. 13. september 2023.
Í byggingaráformunum kemur fram hvernig hönnun og frágangur hússins fellur að viðmiðum í almennum ákvæðum í skipulagsskilmálum og þeim dæmum eða fyrirmyndum sem fram koma á skýringarmyndum sem fylgja gildandi deiliskipulagi sem samþykkt var í bæjarstjórn 12. desember 2017. Ásamt því sem kemur fram í breyttu deiliskipulagi samþykkt í bæjarráði 20. júli 2023 og birt í B-deild Stjórnartíðinda 29. ágúst 2023. Á fundi skipulagsráðs nr. 149 þann 18. september 2023 var afgreiðslu málsins frestað. Þá lögð fram byggingaráform samantekt dags. 18. september 2023, afstöðumynd aðaluppdrátta og byggingarlýsing dags. 6. júlí og minnisblað skipulagsdeildar dags. 29. september 2023.
Helgi Steinar Helgason arkitekt frá Skala arkitektum gerir grein fyrir erindinu.
Skipulagsráð samþykkir framlögð byggingaráform með 6 atkvæðum enda verði deiliskipulagsskilmálum fylgt sbr. minnisblað skipulagsdeildar dags. 29. september 2023.
Helga Jónsdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins.
- Gildandi dsk breyttur uppdráttur
- Erindi dags. 13. september 2023.
- Gildandi dsk skilmálar
- Gildandi dsk uppdráttur
- Byggingaráforma samantekt Hafnarbraut 18 dags. 18. september 2023
- Gildandi deiliskipulag skýringarhefti B
- Aðaluppdrættir afstöðumynd og byggingarlýsing 6. júlí 2023
- Minnisblað skipulagsdeildar Hafnarbraut 18 dags. 29. september 2023
02
Skipulagsráð - 149. fundur
Með tilvísan í deiliskipulagsskilmála fyrir Vesturvör 16-28 og Hafnarbraut 20 og breyttu deiliskipulagi Vesturvör 22-24 (Hafnarbraut 16-18) eru lögð fram f.h. lóðarhafa byggingaráform Skala arkitekta erindi dags. 13. september 2023 og aðaluppdrættir 6. júlí 2023.
Í byggingaráformunum kemur fram hvernig hönnun og frágangur hússins fellur að viðmiðum í almennum ákvæðum í skipulagsskilmálum og þeim dæmum eða fyrirmyndum sem fram koma á skýringarmyndum sem fylgja gildandi deiliskipulagi sem samþykkt var í bæjarstjórn 12. desember 2017. Ásamt því sem kemur fram í breyttu deiliskipulagi samþykkt í bæjarráði 20. júli 2023 og birt í B-deild Stjórnartíðinda 29. ágúst 2023.
Lagt fram. Afgreiðslu frestað.