Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Okkar Kópavogur 2024 - 2027

Málsnúmer: 2402871

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3203. fundur

Frá verkefnastjóra íbúatengsla, lagðar fram og kynntar niðurstöður rafrænna kosninga Okkar Kópavogs sem fram fóru dagana 23. janúar til 6. febrúar 2025.

Kynning og umræður.

02

Bæjarráð - 3196. fundur

Frá verkefnastjóra íbúatengsla, lagt fram minnisblað, niðurstöður hugmyndasöfnunar, kjörseðlar, reglur og leiðbeiningar fyrir rafrænar kosningar í Okkar Kópavogi.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðar reglur um rafrænar kosningar í verkefninu, ásamt kjörseðli.

03

Bæjarráð - 3174. fundur

Frá verkefnastjóra íbúatengsla, lögð fram verkefnislýsing, kostnaðar-og tímaáætlun ásamt erindisbréfum.

Bæjarráð staðfestir með fjórum atkvæðum fyrirliggjandi erindisbréf og verkefnisáætlun. Einar Örn Þorvarðarson sat hjá.

04

Bæjarráð - 3170. fundur

Frá verkefnastjóra íbúatengsla, kynning á verkefninu Okkar Kópavogur sem fram fer í fimmta sinn árin 2024-2025.

Kynnt.