Bæjarráð - 3174. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Orri Vignir Hlöðversson - formaður
- Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllTheódóra S Þorsteinsdóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Helga Jónsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllHelga Jónsdóttir - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
Starfsmenn
- Ása Arnfríður Kristjánsdóttir - bæjarlögmaður
Ritari
- Ása A. Kristjánsdóttir
Dagskrá fundar
Kynning á þróunarverkefninu Kveikjum neistann. Verkefnið er 10 ára þróunar- og rannsóknarverkefni með heildstæða nálgun á skólastarfið, er stutt af Vestmannaeyjabæ, menntamálaráðuneyti, Háskóla Íslands og Samtökum atvinnulífsins. Áherslur verkefnisins snúa að læsi, stærðfræði, náttúrufræði, hreyfingu og hugarfari nemenda og tengjast þróun á kennsluháttum, kennsluefni og starfsþróun og ráðgjöf til kennara og skólastjórnenda.
Kynning.
Frá bæjarstjóra, lagt fram erindi bæjarstjóra varðandi hlutverk bæjarráðs og bæjarstjóra við gerð ársreiknings.
Sigurbjörg Egilsdóttir, Bergljót Kristjánsdóttir, Thelma Bergmann Árnadóttir og Einar Örn Þorvarðarson óska eftir að dagskrárliðnum verði frestað til næsta fundar vegna fjarveru Helgu Jónsdóttur.
Tillögunni er hafnað með þrem atkvæðum Orra Hlöðverssonar, Andra Steins Hilmarsson og Hjördísar Ýr Johnson.
Málið er lagt fram.
,,Á síðasta fundi bæjarstjórnar Kópavogs voru settar fram alvarlegar ásakanir á opinberum vettvangi um verklagið við gerð og samþykkt ársreiknings.
Eðli málsins samkvæmt verður að svara þessum ásökunum á sama vettvangi, strax á næsta fundi bæjarstjórnar. Með því að fallast á tillögu minnihlutans um frestun verður ekki unnt að ræða málið á fundi bæjarstjórnar 28. júní nk. og því getur meirihlutinn ekki orðið við þeirri beiðni.
Hjördís Ýr Johnson, Orri Hlöðversson, Ásdís Kristjánsdóttir og Andri Steinn Hilmarsson"
Lagðar fram tillögur starfshóps um heildarsýn fyrir Kópavogsdal. Bæjarráð frestaði erindinu á fundi sínum 16.05.2024.
Lagt fram og kynnt.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að efna til vinnufundar með bæjarfulltrúum um aðgerðaráætlun og næstu skref.
Lögð fram minnisblað sprettshóps um rýni mötuneyta.
Lagt fram og kynnt.
Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 30.04.2024, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til útboðs á sérleyfissamningi um rekstur hleðslustöðva fyrir
rafbíla í Kópavogi.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagt erindi og veitir heimild til útboðs sérleyfissamningi um rekstur hleðslustöðva fyrir rafbíla í Kópavogi.
Frá verkefnastjóra íbúatengsla, lögð fram verkefnislýsing, kostnaðar-og tímaáætlun ásamt erindisbréfum.
Bæjarráð staðfestir með fjórum atkvæðum fyrirliggjandi erindisbréf og verkefnisáætlun. Einar Örn Þorvarðarson sat hjá.
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 28/2024, kæra á ákvörðun byggingarfulltrúa Kópavogsbæjar frá 8. mars 2024 um að hafna byggingarleyfisumsókn um 126,5 m2 viðbyggingu með einni íbúð á tveimur hæðum á vesturhlið hússins á lóðinni Melgerði 11. Samhliða lagt fram minnisblað lögfræðideildar.
Lagt fram.
Lagður fram úrskurður kærunefndar jafnréttismála í máli Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur
gegn Kópavogsbæ. Mál nr. 16/2023.
Lagt fram.
,,Undirrituð fagnar því að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hafi loks leiðrétt kynjahallann í nefndarskipan eftir afskipti kærunefndar jafnréttismála.
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir"
Frá lögfræðideild, lagt fram til staðfestingar bæjarráðs erindi varðandi forsetakosningar 1. júní 2024.
Bæjarráð staðfestir framlögð gögn frá lögfræðideild.
Frá Garðlist, dags. 29.04.2024, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir framlagi frá Kópavogsbæ til gjafar til handa Grindvíkinga.
Bæjarráð frestaði erindinu á fundi sínum 16.05.2024.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarsjóra.
11
Til umsagnar frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (gjaldfrjálsar skólamáltíðir), 1114. mál
Frá nefnda- greiningarsviði Alþingis, dags. 17.05.2024, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (gjaldfrjálsar skólamáltíðir), 1114. mál.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs og bæjarlögmanns.
Fundargerð 260. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 19.04.2024.
Lagt fram.
Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.
14.1 - 2002676 - Stefnumótun - nefndir ráð
Drög að loftslagsstefnu og aðgerðaráætlun til umræðu og afgreiðslu bæjarráðs. Encho Plamenov, Karen Jónasdóttir starfsmenn umhverfissviðs og Jakob Sindri Þórsson starfsmaður stjórnsýslusviðs gera grein fyrir erindinu.
Meirihluti umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir fyrir sitt leiti loftslagsstefnu með þremur atkvæðum og vísar henni til bæjarráðs. Tveir nefndarfulltrúar sitja hjá.
Meirihluti umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir fyrir sitt leiti aðgerðaráætlun loftslagsstefnu með þremur atkvæðum og vísar henni til bæjarráðs. Tveir nefndarfulltrúar sitja hjá.
Bókun:
Undirrituð telja að drög að aðgerðaáætlun loftslagsstefnu þurfi frekari vinnu við, en skv. þeim er oft óljóst hvaða aðgerða er verið er að grípa til. En í drögunum segir oft að stuðla eigi að einhverju eða auka áherslu á eitthvað en ekki sagt nákvæmlega hvað eigi að gera og hvenær, en þetta á við m.a. um markmið um aukna gróðursetningu og orkuskipti í samgöngum. Einnig benda undirrituð á það að ekki er hægt að samþykkja stefnu í samræmi við 5. gr. c laga um loftlagsmál og skilja eftir aðgerðirnar þar sem stefnan byggir lögum skv. á markmiðum og aðgerðum og því eingöngu hægt að skilja á milli markmiða og aðgerða stefnunar. En það var ekki gert. Stefna sem ekki er unnið eftir nær ekki markmiðum sínum, mannekla getur skýrt skort á eftirfylgni en afsakar ekki, bærinn verður að leggja nægjanlegt fjármagn til að hægt sé að fylgja þeim stefnum sem hann hefur sett sér.
Andrés Pétursson
Björn Þór Rögnvaldsson
Indriði Ingi Stefánsson
Jane Victoria Appleton
Bókun:
Meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar telur að fyrirliggjandi gögn og svör
fagaðila bæjarins séu nægjanleg til að taka málið áfram.
Bergur Þorri Benjamínsson
Guðjón Ingi Guðmundsson
Svava H. Friðgeirsdóttir
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.
Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.
15.1 - 2404015F - Bæjarstjórn - 1299. fundur frá 14.05.2024
Skipulagsráð - 163. fundur frá 06.05.2024
2208454 - Kársnes þróunarsvæði. Rammahluti aðalskipulags.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
2201623 - Bláfjöll. Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir rannsóknarborholum í Bláfjöllum.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
24021321 - Dalaþing 20-22. Breytt deiliskipulag.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
2401786 - Vesturvör 32B. Breytt deiliskipulag. Fjarskiptaloftnet.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
24021940 - Fossahvarf 7. Breytt deiliskipulag.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
15.2 - 23101239 - Dalvegur 30. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram að nýju umsókn Andra Klausen arkitekts dags. 13. október 2023 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 30 við Dalveg um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst breytt lögun og sameining byggingarreita 30B og 30C í einn reit, 30A. Byggingarmagn ofanjarðar eykst um 55 m². Nýtingarhlutfall ofanjarðar á lóðinni helst óbreytt. Byggingarreitur neðanjarðar stækkar og heildarbyggingarmagn á lóðinni, ofanjarðar og neðanjarðar eykst úr 4.000 m² í 14.600 m². Fyrirkomulag bílastæða á lóðinni breytist, heimilt verður að koma fyrir allt að 250 bílastæðum neðanjarðar, heildarfjöldi bílastæða á lóðinni helst óbreyttur alls 470 stæði. Hæðir byggingarreita verða óbreyttar, 3 hæðir ásamt kjallara. Staðföng bygginga á lóðinni breytast úr 30A, 30B og 30C í 30 og 30A.
Á fundi skipulagsráðs þann 4. mars 2024 var erindið lagt fram að lokinni kynningu ásamt athugasemdum sem bárust á kynningartíma. Afgreiðslu var frestað og vísað til umsagnar skipulagsdeildar.
Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 17. maí 2024 ásamt uppfærðum uppdrætti dags. 30. apríl 2024.
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir vék af fundi kl. 17:35.
Skipulagsráð samþykkir með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar og Hákonar Gunnarssonar framlagða tillögu með áorðnum breytingum dags. 30. apríl 2024 ásamt þeim breytingum á skilmálum sem lagðar eru til í umsögn skipulagsdeildar dags. 17. maí 2024. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Gunnar Sær Ragnarsson, Theódóra S. Þorsteinsdóttir og Helga Jónsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Bókun:
„Undirrituð telur ófullnægjandi að notaðar séu gamlar umferðamælingar og tekur undir þær áhyggjur sem koma fram í umsögn Vegagerðarinnar um betri greiningar með tilliti til afkasta og slysahættu.“
Theódóra Þorsteinsdóttir.
Bókun:
„Umferðarspár eru unnar eftir viðurkenndum aðferðum og þeim bestu sem völ er á. Fleiri en ein verkfræðistofa hefur komið að þeirri vinnu. Miðað við umferðarspá, sem m.a. gerir ráð fyrir nýjum tengivegi við Reykjanesbraut og tekur mið af nýrri umferð sem hefur orðið á Dalvegi frá því að mælingar voru gerðar, getur Dalvegur annað þeirri umferðaraukningu sem mun verða á svæðinu. Þetta hefur ítrekað komið fram við skipulagsferlið. Samtal við Vegagerðina um bætt umferðaröryggi er í gangi og tengist það ekki fyrirhugaðri uppbyggingu á Dalvegi 30 og 32 sérstaklega heldur snýr það að almennt bættu umferðaröryggi gatnamóta Dalvegar og Nýbýlavegar.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.
Bókun:
„Hvað varðar breytingar á skipulagsskilmálum, þá telur undirritaður að hægt hefði verið að leita frekari leiða til að ná málamiðlun og jákvæðri niðurstöðu fyrir bæði nærliggjandi íbúabyggð og framtíðarstarfsemi á Dalvegi 30 og 32.“
Gunnar Sær Ragnarsson.
Bókun:
„Í umferðargreiningu VSÓ er miðað við minna byggingarmagn heldur en verið er að samþykkja hér. Vegagerðin kallar eftir betri greiningu með tilliti til afkasta og slysahættu og tengist beint fyrirhugaðri uppbyggingu fyrir Dalveg 30 og 32. Einnig óskaði Vegagerðin sérstaklega eftir því að betri grein sé gerð fyrir áhrifum þessara breytinga á umferðaröryggi áður en ákvörðun er tekin um breytta útfærslu við tengingar inn á Reykjanesbraut.“
Theódóra S. Þorsteinsdóttir.
Bókun:
„Eins og kemur fram í gögnum málsins hefur VSÓ notast við nýjustu talningar hverju sinni og notast við sömu spálíkön og hafa verið notuð í skipulagsvinnu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Umferðargreiningar á Dalvegi 32 gera ráð fyrir 16.000 fermetrum ofanjarðar en þeir eru í raun færri, eða 14.892 fermetrar. Þar er því gert ráð fyrir meira byggingarmagni ofanjarðar en er hér til samþykktar. Á Dalvegi 30 eru aukning fermetra neðanjarðar og hefur aukning byggingarmagns því ekki áhrif á umferðarsköpun samkvæmt umferðarlíkönum. Deiliskipulag er í gildi fyrir tengingar Dalvegar og Reykjanesbrautar við Dalveg 22-28.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson
Bókun:
„Heildarbyggingarmagn á lóð við Dalveg 32 eykst úr 9.300 m² í 18.618 m². Fram kemur að í umferðargreiningu VSÓ að heildarbyggingarmagn fyrir Dalveg 32 sé 16.000 m². Þetta eru upplýsingar sem lagðar eru fyrir fundinn.“
Theódóra S. Þorsteinsdóttir.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
- Dalvegur 30_breytt deiliskipulag_umsögn skipulagsdeildar_17 maí 2024_skipulagsráð
- Dalvegur 30_breyt deiliskipulag_umsögn skipulagsdeildar_fylgiskjöl 1-24
- Dalvegur 30-breytt deiliskipulag_uppfærður uppdráttur dags 30. apríl 2024
- 1558-231115-Dalvegur 30-Deiliskipulag-breyting
- 1558-240503-DSK breyting-skilmálar
- Dalvegur 30_deiliskipulag_uppdráttur dags 22 september 2020
- Dalvegur 30_deiliskipulag_skipulagsskilmálar dags 25 ágúst 2020
15.3 - 22114327 - Dalvegur 32 A, B, C. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram að nýju tillaga Arkís arkitekta dags. 7. nóvember 2022 f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi Dalvegar 32 A, B og C.
Í breytingunni felst að byggingarreitur Dalvegar 32B minnkar til austurs, byggingarreitur Dalvegar 32C stækkar og færist til á lóðinni. Byggingarreitur Dalvegar 32C hækkar jafnframt úr 2 hæðum ásamt kjallara í 2-4 hæðir ásamt kjallara og 6 hæðir ásamt kjallara austast á lóðinni. Heildarbyggingarmagn á lóð eykst úr 9.300 m² í 18.618 m². Svæðisnýting eykst úr 0.4 í 0.8. Nýtingarhlutfall lóðar verður 1. Fyrirkomulag og fjöldi bílastæða á lóð breytist. Gert verður ráð fyrir akstursleið til vesturs frá lóðarmörkum Dalvegar 32 inn á lóðina að Dalvegi 30
Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:1000 ásamt skýringarmyndum. Tillögunni fylgir jafnframt umferðargreining frá VSÓ ráðgjöf dags. í október 2022, mat á áhrifum á hljóðvist frá Hljóðvist Ráðgjöf og Hönnun dags. 3. október 2022, skugga/vind/loftslagsgreiningar frá Reflex Arkitekter dags. 7. nóvember 2022.
Á fundi skipulagsráðs þann 4. mars 2024 var erindið lagt fram að lokinni kynningu ásamt athugasemdum sem bárust á kynningartíma. Afgreiðslu var frestað og vísað til umsagnar skipulagsdeildar.
Þá er lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 17. maí 2024 ásamt uppfærðum uppdrætti dags. 14. maí 2024.
Skipulagsráð samþykkir með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar og Hákonar Gunnarssonar gegn atkvæði Theódóru S. Þorsteinsdóttur framlagða tillögu með áorðnum breytingum dags. 14. maí 2024 ásamt þeim breytingum á skilmálum sem lagðar eru til í umsögn skipulagsdeildar dags. 17. maí 2024. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Gunnar Sær Ragnarsson og Helga Jónsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Bókun:
„Undirrituð telur ófullnægjandi að notaðar séu gamlar umferðamælingar og tekur undir þær áhyggjur sem koma fram í umsögn Vegagerðarinnar um betri greiningar með tilliti til afkasta og slysahættu.“
Theodóra Þorsteinsdóttir.
Fundarhlé hófst kl. 18:25, fundi fram haldið kl. 18:38.
Bókun:
„Umferðarspár eru unnar eftir viðurkenndum aðferðum og þeim bestu sem völ er á. Fleiri en ein verkfræðistofa hefur komið að þeirri vinnu. Miðað við umferðarspá, sem m.a. gerir ráð fyrir nýjum tengivegi við Reykjanesbraut og tekur mið af nýrri umferð sem hefur orðið á Dalvegi frá því að mælingar voru gerðar, getur Dalvegur annað þeirri umferðaraukningu sem mun verða á svæðinu. Þetta hefur ítrekað komið fram við skipulagsferlið. Samtal við Vegagerðina um bætt umferðaröryggi er í gangi og tengist það ekki fyrirhugaðri uppbyggingu á Dalvegi 30 og 32 sérstaklega heldur snýr það að almennt bættu umferðaröryggi gatnamóta Dalvegar og Nýbýlavegar.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson
Bókun:
„Hvað varðar breytingar á skipulagsskilmálum, þá telur undirritaður að hægt hefði verið að leita frekari leiða til að ná málamiðlun og jákvæðri niðurstöðu fyrir bæði nærliggjandi íbúabyggð og framtíðarstarfsemi á Dalvegi 30 og 32.“
Gunnar Sær Ragnarsson.
Bókun:
„Í umferðargreiningu VSÓ er miðað við minna byggingarmagn heldur en verið er að samþykkja hér. Vegagerðin kallar eftir betri greiningu með tilliti til afkasta og slysahættu og tengist beint fyrirhugaðri uppbyggingu fyrir Dalveg 30 og 32. Einnig óskaði Vegagerðin sérstaklega eftir því að betri grein sé gerð fyrir áhrifum þessara breytinga á umferðaröryggi áður en ákvörðun er tekin um breytta útfærslu við tengingar inn á Reykjanesbraut.“
Theódóra S. Þorsteinsdóttir.
Fundarhlé hófst kl. 18:45, fundi fram haldið kl. 18:54.
Bókun:
„Eins og kemur fram í gögnum málsins hefur VSÓ notast við nýjustu talningar hverju sinni og notast við sömu spálíkön og hafa verið notuð í skipulagsvinnu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Umferðargreiningar á Dalvegi 32 gera ráð fyrir 16.000 fermetrum ofanjarðar en þeir eru í raun færri, eða 14.892 fermetrar. Þar er því gert ráð fyrir meira byggingarmagni ofanjarðar en er hér til samþykktar. Á Dalvegi 30 eru aukning fermetra neðanjarðar og hefur aukning byggingarmagns því ekki áhrif á umferðarsköpun samkvæmt umferðarlíkönum. Deiliskipulag er í gildi fyrir tengingar Dalvegar og Reykjanesbrautar við Dalveg 22-28.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson
Bókun:
„Heildarbyggingarmagn á lóð við Dalveg 32 eykst úr 9.300 m² í 18.618 m². Fram kemur að í umferðargreiningu VSÓ að heildarbyggingarmagn fyrir Dalveg 32 sé 16.000 m². Þetta eru upplýsingar sem lagðar eru fyrir fundinn.“
Theódóra S. Þorsteinsdóttir.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
- Dalvegur 32_breytt deiliskipulag_umsögn skipulagsdeildar_17 maí 2024_skipulagsráð
- Dalvegur 32_breytt deiliskipulag_umsögn skipulagsdeildar_fylgiskjöl 1-30
- 22-048-1-01 Deiliskipulagsuppdráttur_20240516
- Dalvegur 32_tillaga að breyttu deiliskipulagi_uppdráttur dags 7 nov 2022
- dalvegur-32-skilmalar-og-greinargerd-28-11-20221070 (1)
- Dalvegur 32_dsk_13 07 2007
- Dalvegur 32_br dsk_08 06 2018
15.6 - 24033581 - Lyngheiði 20. Kynning á byggingarleyfisumsókn.
Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 22. mars 2024 þar sem umsókn Sigríðar Arngrímsdóttur arkitekts f.h. lóðarhafa um byggingarleyfi er vísað til skipulagsráðs. Sótt er um 30,4m² viðbyggingu á einni hæð við suðurhlið hússins. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,26 í 0,30. Á fundi skipulagsráðs þann 6. maí 2024 var erindið lagt fram og afgreiðslu var frestað.
Þá eru lagðir fram uppfærðir uppdrættir dags. 11. maí 2024 ásamt uppfærðu minnisblaði skipulagsdeildar dags. 17. maí 2024.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð umsókn um byggingarleyfi verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 18 og 22 við Lyngheiði og nr. 39 og 41 við Digranesveg.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.