Örútboð - Endurskoðun Kópavogsbæjar 2024
Málsnúmer: 2406733
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3182. fundur
Frá deildarstjóra innkaupadeildar, dags. 12.08.2024, lagðar fram niðurstöður örútboðs á endurskoðun. Óskað er eftir heimild bæjarráðs að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita heimild til þess að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Grant Thornton endurskoðun ehf.
02
Bæjarstjórn - 1302. fundur
Frá deildarstjóra innkaupadeildar, dags. 10.06.2024, lagðar fram upplýsingar um örútboð vegna innkaupa á endurskoðun Kópavogsbæjar á grundvelli rammasamnings Ríkiskaupa.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum umbeðna heimild til örútboðs um endurskoðun Kópavogsbæjar
03
Bæjarstjórn - 1302. fundur
Frá deildarstjóra innkaupadeildar, dags. 10.06.2024, lagðar fram upplýsingar um örútboð vegna innkaupa á endurskoðun Kópavogsbæjar á grundvelli rammasamnings Ríkiskaupa.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum umbeðna heimild til örútboðs um endurskoðun Kópavogsbæjar.
04
Bæjarráð - 3177. fundur
Frá deildarstjóra innkaupadeildar, dags. 10.06.2024, lagðar fram upplýsingar um örútboð vegna innkaupa á endurskoðun Kópavogsbæjar á grundvelli rammasamnings Ríkiskaupa.
Bæjarráð vísar tillögu um heimild til örútboðs til afgreiðslu bæjarstjórnar.