Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hlíðarhvarf 21. Breytt deiliskipulag.

Málsnúmer: 26012129

Ferill máls

01

Skipulags- og umhverfisráð - 32. fundur

Lögð fram umsókn Sigurðar Hilmars Ólafssonar dags. 24. janúar 2026 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 21 við Hlíðarhvarf. Í breytingunni felst að fyrirhugað einbýlishús á lóðinni verði á einni hæð í stað tveggja og nái samtals 13,5 m² út fyrir byggingarreit til vesturs. 1,9 m þar sem það er mest (6,8 m²) og 0,8 m þar sem það er minna (6,7 m²), ásamt því að ná 1,0 m út fyrir byggingarreit til norðurs, samtals 11,2 m². Nýtingarhlutfall lóðar verður 0,30. Þá eru bílastæði og aðkoma færð frá suð-austurhorni í norð- austurhorn, miðað við deiliskipulag. Tillagan var grenndarkynnt frá 20. maí til 21. júní 2026. Einnig eru lagðar fram athugasemdir sem bárust á kynningartímanum ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. ágúst 2026 og greinargerð skipulagshönnuða dags. 16. júlí 2026.

Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 14. ágúst 2026 með sex atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Andra Steins Hilmarssonar, Árnínu Steinunnar Kristjánsdóttur, Guðmundar Jóhanns Jónssonar, Eydísar Ingu Valsdóttur og Orra Thors Eggertssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins.

02

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 50. fundur

Lögð fram að lokinni grenndarkynningu umsókn Sigurðar Hilmars Ólafssonar dags. 24. janúar 2026 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 21 við Hlíðarhvarf. Í breytingunni felst að fyrirhugað einbýlishús á lóðinni verði á einni hæð í stað tveggja og nái samtals 13,5 m² út fyrir byggingarreit til vesturs. 1,9 m þar sem það er mest (6,8 m²) og 0,8 m þar sem það er minna (6,7 m²), ásamt því að ná 1,0 m út fyrir byggingarreit til norðurs, samtals 11,2 m². Nýtingarhlutfall lóðar verður 0,30. Þá eru bílastæði færð frá suð-austurhorni í norð- austurhorn, miðað við deiliskipulag. Uppdrættir ásamt greinargerð dags. í febrúar 2026. Umsóknin var grenndarkynnt frá 20. maí til 21. júní 2026. Athugasemdir bárust.

Vísað til umsagnar.

03

Skipulags- og umhverfisráð - 26. fundur

Lögð fram umsókn Sigurðar Hilmars Ólafssonar dags. 24. janúar 2026 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 21 við Hlíðarhvarf. Í breytingunni felst að fyrirhugað einbýlishús á lóðinni verði á einni hæð í stað tveggja og nái samtals 13,5 m² út fyrir byggingarreit til vesturs. 1,9 m þar sem það er mest (6,8 m²) og 0,8 m þar sem það er minna (6,7 m²), ásamt því að ná 1,0 m út fyrir byggingarreit til norðurs, samtals 11,2 m². Nýtingarhlutfall lóðar verður 0,30. Þá eru bílastæði færð frá suð-austurhorni í norð- austurhorn, miðað við deiliskipulag. Uppdrættir ásamt greinargerð dags. í febrúar 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 23. febrúar 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs.

Samþykkt með fimm atkvæðum Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar, Leós Snæs Pétursson og Hákonar Gunnarssonar að framlögð umsókn um breytingu á deiliskipulagi verði grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir hagsmunaaðilum á lóðum nr. 16-20 við Hlíðarhvarf.

Hjördís Ýr Johnson og Helga Jónsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.

04

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 40. fundur

Lögð fram umsókn Sigurðar Hilmars Ólafssonar dags. 24. janúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 21 við Hlíðarhvarf um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að byggja á lóðinni einbýlis hús á einni hæð og nái samtals 13,5 m² út fyrir byggingarreit til vesturs. 1,9 m þar sem það er mest (6,8 m²) og 0,8 m þar sem það er minna (6,7 m²), ásamt því að ná 1,0 m út fyrir byggingarreit til norðurs, samtals 11,2 m². Nýtingarhlutfall lóðar verður 0,30. Þá eru bílastæði færð frá suð-austurhorni í norð- austurhorn, miðað við deiliskipulag. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 28. janúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.

05

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 39. fundur

Lögð fram umsókn Sigurðar Hilmars Ólafssonar dags. 24. janúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 21 við Hlíðarhvarf um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að byggja á lóðinni einbýlis hús á einni hæð og nái samtals 13,5 m² út fyrir byggingarreit til vesturs. 1,9 m þar sem það er mest (6,8 m²) og 0,8 m þar sem það er minna (6,7 m²), ásamt því að ná 1,0 m út fyrir byggingarreit til norðurs, samtals 11,2 m². Nýtingarhlutfall lóðar verður 0,30. Þá eru bílastæði færð frá suð-austurhorni í norð- austurhorn, miðað við deiliskipulag.

Vísað til meðferðar skipulagsdeildar.