Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 52. fundur
á Digranesvegi 1, Glaðheimar 1. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
- Karlotta Helgadóttir - fulltrúi skipulagsdeildar
- Harri Ormarsson - lögfræðingur
Ritari
- Karlotta Helgadóttir
Eftirtaldir verkefnastjórar kynntu mál á fundinum: Ester Anna Ármannsdóttir, Kristjana H. Kristjánsdóttir, Elín Mjöll Lárusdóttir og Freyr Snorrason.
Dagskrá fundar
Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 3. júlí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Kristjáns Georgs Leifssonar f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 9 við Hraunbraut er vísað til skipulagsfulltrúa til umsagnar eða ákvörðunar um grenndarkynningu. Sótt er um að byggja 108 m² viðbyggingu á tveimur hæðum með bílskúr á 1. hæð og stofu þar ofan á. Uppdrættir dags. 3. mars 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. júlí 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 1-11, 12, 14 og 16 við Hraunbraut. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.
Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 19. júní 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Ásgeirs Ásgeirssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 1-7 við Álftröð, nr. 2-8 við Skólatröð og nr. 2-4 við Háveg er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um 13 m² svalalokun á hluta af þaksvölum íbúðar nr. 0504. Uppdrættir dags. 15. október 2021, uppfærðir 7. apríl 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. júlí 2026 var erindinu vísað til umsagnar. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. ágúst 2026.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 18. ágúst 2026. Samræmist ekki deiliskipulagi.
Lögð fram að nýju byggingarleyfisumsókn Helgu Guðrúnar Vilmundardóttur arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 29 við Sunnubraut. Sótt er um að 29,9 m² ósamþykkt bátaskýli verði breytt í íbúðarrými og verði hluti af núverandi húsnæði. Ytra byrði hússins breytist, gluggum fjölgar, núverandi gluggar stækkaðir og hurðum bætt við. Hæð hússins helst óbreytt og lóðarmörk haldast óbreytt. Byggingarmagn eykst úr 356,2 m² í 386,1 m². Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,62 í 0,67. Uppdrættir dags. 5. febrúar 2026, uppfærðir 26. maí 2026. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 16. júní til 17. júlí 2026, athugasemd barst.
Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.
Lögð fram að nýju fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 64 við Kópavogsbraut dags. 30. júní 2026 um stækkun bílageymslna á lóðinni og að þeim verði breytt í íbúðarrými. Fyrirspurninni fylgja ódagsettar teikningar af fyrirhugaðri breytingu. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. júlí 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. ágúst 2026.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 21. ágúst 2026.
Lögð fram að nýju fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 8 við Grænatún dags. 24. júní 2026 um fjölgun bílastæða á lóðinni úr tveimur í fjögur og niðurtekt á kantsteini. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. júlí 2026 var erindinu vísað til umsagnar. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. ágúst 2026.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 25. ágúst 2026.
Lögð fram að nýju fyrirspurn Bjarna Óskars Þorsteinssonar arkitekts dags. 2. júlí 2026 f.h. Úlfsstaða ehf. um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 10 við Dimmuhvarf. Í breytingunni felst að núverandi hús á lóðinni verði rifið og að á lóðinni verði byggt einbýlishús og hesthús samtals 354 m². Uppdrættir dags. 2. júlí 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. júlí 2026 var erindinu vísað til umsagnar. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. ágúst 2026.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 25. ágúst 2026.
Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 17. júlí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 62 við Álfhólsveg er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að hækka þak og breyta útliti hússins. Uppdrættir dags. 12. nóvember 2023, uppfærðir 27. maí 2026 og skráningartafla dags. 12. nóvember 2023, uppfærð 20. maí 2025. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 10. ágúst 2026 var erindinu vísað til umsagnar.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 54, 56, 58, 60, 64, 64A, 67, 68, 69, 69A, 70, 71, 73A, 73B, 73C, 73D, 75, 77, 79A, 79B, 79C, 79D, 81 við Álfhólsveg og nr. 17, 17A, 19, 21, 26 við Bjarnhólastíg. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram skv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.
Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 17. júlí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Orra Árnasonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 4-8 við Álalind er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um svalalokun og sólskála. Uppdrættir dags. 26. júní 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 10. ágúst 2026 var erindinu vísað til umsagnar. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. ágúst 2026.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 25. ágúst 2026.
Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 17. júlí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Ólafar Flygenring arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 11 við Hlíðarhjalla er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um að breyta notkun bílskúrs í íbúðarrými. Uppdrættir dags. 2. júlí 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 10. ágúst 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. ágúst 2026.
Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 25. ágúst 2026.
Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 31. júlí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Jakobs Emils Líndal arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 9 við Huldubraut er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um fjölgun bílastæða á lóðinni. Uppdrættir dags. 30. júní 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 10. ágúst 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. ágúst 2026.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 25. ágúst 2026.
Lögð fram að nýju fyrirspurn Húsfélagsins lóðarinnar nr. 2 við Salaveg dags. 24. júní 2026 um stækkun lóðarinnar til að koma fyrir fleiri bílastæðum. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 10. ágúst 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. ágúst 2026.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 25. ágúst 2026.
Lögð fram að nýju fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 87 við Austurkór um að byggja 26,2 m² smáhýsi á lóð. Um er að ræða aukahús sem er ekki til búsetu. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. júlí 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. ágúst 2026.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 25. ágúst 2026.
Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 31. júlí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Helga S. Ólafssonar byggingarverkfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 14 við Álfatún er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um lengingu þaks yfir svalir og þakskyggni yfir anddyri. Uppdrættir dags. 20. júlí 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 10. ágúst 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 15, 16 og 17 við Álfatún. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram skv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.
Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 17. júlí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Hrólfs Carls Cela arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 9-15 við Nónsmára er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um að byggja þriðju hæð ofan á fjölbýlishús nr. 9-15 við Nónsmára, samtals 279 m². Uppdrættir dags. 25. mars 2023, uppfærðir 12. mars 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 10. ágúst 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið. Samræmist deiliskipulagi.
Lögð fram umsókn Kristrúnar Lárusdóttur Hunter arkitekts dags. 21. ágúst 2026 um f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 5 við Brekkuhvarf um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að núverandi einbýlishús á lóðinni verði rifið, að lóðinni verði skipt upp í sex lóðir og að byggð verði þrjú parhús á tveimur hæðum. Uppdrættir dags. 9. júlí 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 55 við Þinghólsbraut dags. 11. ágúst 2026 um fjölgun fasteignanúmer á lóðinni.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 17 við Birkigrund dags. 23. ágúst 2026 um stækkun innkeyrslu og bílastæðis, endurnýjun malbiks ásamt því að eldri steypta og gríður á gangstétt yrði fjarlægt.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.