Velferðar- og mannréttindaráð - 20. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Björg Baldursdóttir - formaður
- Sigrún Bjarnadóttir - varaformaður
- Kristinn Jakobsson - aðalmaðurBoðaði forföllHaukur Már Hauksson - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalfulltrúi
- Hannes Þ. Hafstein Þorvaldsson - aðalfulltrúi
- Örn Arnarson - aðalfulltrúi
- Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir - aðalfulltrúi
- Thelma Bergmann Árnadóttir - aðalmaðurBoðaði forföllTrausti Örn Þórðarson - vara áheyrnarfulltrúiSat fundinn í staðinn
Starfsmenn
- Sigrún Þórarinsdóttir - Sviðsstjóri velferðarsviðs
- Jóhanna Lilja Ólafsdóttir - starfsmaður velferðarsviðs
Ritari
- Jóhanna Lilja Ólafsdóttir
Dagskrá fundar
Kynning á starfsemi skrifstofunnar.
Velferðar- og mannréttindaráð þakkar fyrir góða kynningu.
Nýjar reglur um húsnæði fyrir fatlað fólk lagt fram til afgreiðslu
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti drög að nýjum reglum um húsnæði fyrir fatlað fólk og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar.
Drög að breytingum á reglum um akstursþjónustu fatlaðs fólks lagt fram til afgreiðslu
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti drög að breytingum á reglum um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar.
Lögð fram til kynningar og umræðu að nýju drög að breytingum á reglum um akstursjónustu eldra fólks ásamt minnisblaði um breytingar á gjaldskrá.
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti drög að breytingum á reglum um akstursþjónustu fyrir eldra fólk og vísar þeim til umsagnar í öldungaráði.
05
Fyrirspurn Arnar Arnarsonar aðalmanns Samfylkingar í velferðar- og mannréttindaráði um frístunda- og tómstundaþjónustu fatlaðra barna
Fyrirspurn lögð fram.
Fyrirspurn vísað til úrvinnslu á mennta- og velferðarsviði.
Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.
Áfrýjun dags. 28.8.2026, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.
Fært í trúnaðarbók.
Úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála nr.110-2026 dags 16.6.2026 lagður fram til kynningar.
Lagt fram.
Áfrýjun dags. 13.8.2026, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.
Fært í trúnaðarbók.
Áfrýjun dags. 23.7.2026, ásamt tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.
Fært í trúnaðarbók.
Sviðsstjóri kynnir starfið á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs.