Gatnamót Ásbrautar, Sæbólsbrautar og Kársnesbrautar.
Málsnúmer: 26082085
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1345. fundur
Lagt fram erindi Ásdísar Auðar Ómarsdóttur dags. 24. ágúst 2026 um breytingu á ljósastýringu gatnamóta Ásbrautar, Sæbólsbrautar og Kársnesbrautar.
Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
02
Skipulags- og umhverfisráð - 35. fundur
Lagt fram að nýju erindi Ásdísar Auðar Ómarsdóttur dags. 24. ágúst 2026 um breytingu á ljósastýringu gatnamóta Ásbrautar, Sæbólsbrautar og Kársnesbrautar.
Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 7. september 2026 var erindinu vísað til umsagnar deildarstjóra gatnadeildar. Einnig er lögð fram umsögn deildarstjóra gatnadeildar dags. 18. september 2026.
Birkir Rútsson, deildarstjóri gatnadeildar, tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Lagt fram.
Bókun:
„Miðflokkurinn fagnar því að unnið sé að úrbótum og að farið verði í nauðsynlegar lagfæringar á gatnamótunum. Fyrirhuguð brú fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur mun létta á götuþverun,auðvelda ljósastýringu og auka umferðaflæði. Hins vegar telur Miðflokkurinn að hugmyndir um skásetta þverun muni hægja verulega á umferðaflæði og að þess háttar ljósastýring sé með öllu óþörf. Kópavogsbær á ekki að stuðla að því að þrengja að bílaumferð. Markmiðið á ávallt að vera að finna lausnir sem greiða fyrir umferð, án þess þó að það komi niður á öryggi óvarinna vegfarenda.“
Beitir Ólafsson
Bókun:
„Fulltrúar Samfylkingarinnar telja að umsögn gatnadeildar staðfesti þörfina á úrbótum á gatnamótunum, sérstaklega með tilliti til öryggis gangandi og hjólandi vegfarenda. Við teljum of langt að bíða fram á næsta sumar með úrbætur og óskum eftir að gatnadeild meti hvaða aðgerða sé hægt að grípa til strax til að bæta öryggi á gatnamótunum. Að öðrum kosti leggjum við til að kannað verði hvort hægt sé að flýta fyrirhuguðum framkvæmdum.“
Eydís Inga Valsdóttir og Orri Thor Eggertsson.
Bókun:
„Meirihlutinn tekur undir mikilvægi þess að ráðast í framkvæmdir á gatnamótum Ásbrautar, Sæbólsbrautar og Kársnesbrautar til þess að tryggja umferðaröryggi. Það er fyrirhugað að tengja Ásbraut og Sæbólshverfi með göngu- og hjólabrú og verða gatnamótin tekin samhliða. Vegna bókunar fulltrúa Miðflokksins er rétt að taka fram að í umsögn Gatnadeildar kemur fram að hugmyndir um skásetta þverun séu óþarfar vegna göngu- og hjólabrúarinnar. Það er ekki tímabært að tala sig niður á endanlegar útfærslur á meðan málið er til skoðunar.“
Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson og Kristinn Dagur Gissurarson.
03
Skipulags- og umhverfisráð - 34. fundur
Lagt fram erindi Ásdísar Auðar Ómarsdóttur dags. 24. ágúst 2026 um breytingu á ljósastýringu gatnamóta Ásbrautar, Sæbólsbrautar og Kársnesbrautar.
Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Vísað til umsagnar deildarstjóra gatnadeildar.
Bókun:
„Undirritaður telur fráleitt að Kópavogsbær verji tíma og fjármunum í að finna nýjar leiðir til að þrengja að bílaumferð og Reykjavíkurvæða umferðarkerfi Kópavogs enn frekar. Í tillögunni er X-fyrirkomulagið við Borgarholtsbraut og Urðarbraut nefnt sem fyrirmynd en Miðflokkurinn lagði nýlega til að það verði fjarlægt enda íþyngi það umferð óþarflega mikið, þó óhófleg þétting byggðar í boði meirihlutans spili þar vissulega einnig inn í. Vísað er til slysakorts Samgöngustofu og Strava-hitakorts. Frá 2016 hefur þó aðeins eitt slys tengt hjólreiðum verið skráð á gatnamótunum sem eru til umræðu, þegar hjólreiðamaður hjólaði þvert yfir akbraut. Aftur á móti hafa orðið ítrekaðar aftanákeyrslur við beygju inn á Kársnesbraut og er það merki um að umferð sé ekki nægilega greið. Nýleg reynsla við Smáralind sýnir að lokun beygjuvasa og breytingar í þágu hjólaumferðar hafa ekki sjálfkrafa aukið öryggi, þvert á móti hefur slysum á óvörðum vegfarendum fjölgað. Hitakort Strava bendir einnig til að fáir hjóli þá leið og má því velta upp á hvaða rökum sú ákvörðun var byggð.
Kópavogsbær á að greiða fyrir öllum faramátum og hámarka öryggi allra vegfarenda. Breytingar sem flækja umferð og draga úr afkastagetu eiga hins vegar að byggjast á raunverulegum gögnum og sýnilegum öryggisávinningi, ekki hugmyndafræði sem byggist á þvingaðri breytingu á ferðavenjum.“
Einar Jóhannes Guðnason.
Bókun:
„Undirrituð fagna erindinu. Íbúar hafa ítrekað vakið athygli á hættum sem gangandi og hjólandi vegfarendur standa frammi fyrir við gatnamót Kársnesbrautar, Sæbólsbrautar og Ásbrautar. Foreldrar barna í leikskólanum Marbakka hafa meðal annars komið ábendingum um umferðaröryggi á svæðinu á framfæri við Kópavogsbæ. Fyrirhugaðar eru breytingar á svæðinu og í samþykktu deiliskipulagi Ásbrautar er gert ráð fyrir göngu- og hjólabrú yfir Kársnesbraut. Ekki liggur þó fyrir hvenær sú framkvæmd verður að veruleika. Undirrituð telja mikilvægt að erindið verði skoðað vel og fundin lausn á þeim hættum sem steðja að gangandi og hjólandi vegfarendum við gatnamótin á meðan beðið er eftir fyrirhuguðum breytingum á svæðinu, ekki síst í ljósi þess að umferð um gatnamótin mun bara aukast í kjölfar aukinnar uppbyggingar á Kársnesinu. Umferðaröryggi gangandi og hjólandi, og þá sérstaklega barna, þarf að vera í forgangi.“
Eydís Inga Valsdóttir, Orri Thor Eggertsson og Pétur Björgvin Sveinsson.