Skipulags- og umhverfisráð - 34. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Hjördís Ýr Johnson - formaður
- Andri Steinn Hilmarsson - varaformaður
- Árnína Steinunn Kristjánsdóttir - aðalfulltrúi
- Guðmundur Jóhann Jónsson - aðalfulltrúi
- Kristinn Dagur Gissurarson - aðalfulltrúi
- Orri Thor Eggertsson - aðalfulltrúi
- Eydís Inga Valsdóttir - aðalfulltrúi
- Beitir Ólafsson - aðalmaðurBoðaði forföllEinar Jóhannes Guðnason - vara áheyrnarfulltrúiSat fundinn í staðinn
- Pétur Björgvin Sveinsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
- Andrea Kristinsdóttir - verkefnastjóri
- Karlotta Helgadóttir - fulltrúi skipulagsdeildar
- Harri Ormarsson - lögfræðingur
- Guðrún Edda Finnbogadóttir - skrifstofustjóri umhverfissviðs
Ritari
- Karlotta Helgadóttir
Dagskrá fundar
Skipulags- og umhverfisráð - 32. fundur frá 17.08.2026
26032451 - Askalind 2. Breytt deiliskipulag.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
26042448 - Stígagerð í botni Kópavogs. Umsókn um framkvæmdaleyfi.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
26012129 - Hlíðarhvarf 21. Breytt deiliskipulag.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Skipulags- og umhverfisráð - 32. fundur frá 17.08.2026
26012129 - Hlíðarhvarf 21. Breytt deiliskipulag.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
26032451 - Askalind 2. Breytt deiliskipulag.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
26042448 - Stígagerð í botni Kópavogs. Umsókn um framkvæmdaleyfi.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 27 við Hafnarbraut dags. 11. febrúar 2026 um að fallið verði frá kröfu rammahluta aðalskipulags um að lóðir nr. 25 og 27 við Hafnarbraut séu deiliskipulagðar sem ein heild og að lóðarhafa verði veitt heimild til að hefja vinnu við deiliskipulag lóðarinnar. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 23. febrúar 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs.
Helgi Steinar Helgason arkitekt frá Skala arkitektum gerði grein fyrir erindinu.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Lögð fram til kynningar tillaga Klasa sem var hlutskörpust í samkeppni um þróun lóðarinnar við Dalveg 1, unnin af Tendra arkitektum dags. 30. júní 2025, vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á lóðinni.
Sólveig Jóhannsdóttir þróunarstjóri Klasa og Jóhann Sigurðsson arkitekt frá Tendra arkitektum gerðu grein fyrir erindinu.
Freyr Snorrason verkefnastjóri tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Lagt fram og kynnt.
Bókun:
„Undirritaður þakkar fyrir góða kynningu á fyrirhugaðri uppbyggingu við Dalveg 1. Við áframhaldandi vinnu telur Miðflokkurinn mikilvægt að horft verði sérstaklega til tengingar við þá verslun og þjónustu sem þegar er hinum megin við veginn, þannig að uppbyggingin styrki heildarsvæðið. Líkt og við aðra uppbyggingu í Kópavogi er ekki gert ráð fyrir að Kópavogsbúar ferðist um á bílum. Því væri gagnlegt að sjá þarfagreiningu á fjölda bílastæða út frá fyrirhugaðri aðsókn, sérstaklega í ljósi þeirrar þjónustu og viðburða sem verða á svæðinu. Miðflokkurinn setur spurningarmerki við kröfu um umhverfisvottun bygginga á svæðinu. Kröfur ættu frekar að snúa að gæðum og líftíma bygginga en að skora stig í grænu bókhaldi. Meta þarf áhrif slíkra kvaða á byggingar- og rekstrarkostnað og hvort þær skili raunverulegu virði. Meginmarkmiðið ætti fyrst og fremst að vera vandað og hagkvæmt húsnæði sem stenst tímans tönn. Vaxandi vandamál vegna myglu í byggingum ættu jafnframt að kalla á vandaðri vinnubrögð, ekki meint grænni vinnubrögð.“
Einar Jóhannes Guðnason.
Bókun:
„Kópavogsbær gerði ekki kröfu um umhverfisvottun bygginga á svæðinu heldur er það ákvörðun þróunaraðila verkefnisins. Kröfur um gæði og líftíma bygginga eru mikilvægar en meirihlutinn setur spurningamerki við bókun sem finnur að því að uppbyggingaraðili í Kópavogi vinni markvisst að því að minnka umhverfisáhrif framkvæmdanna, meðal annars með kröfum um lága orkunotkun húsa, gæði byggingarefna og byggingavörunotkun, eins og Svansvottun felur í sér.
Varðandi bílastæðafjölda skoðast það síðar í skipulagsferlinu en mikilvægt er að bílastæða- og aðkomumál séu með þeim hætti að þau anni umferð húsanna og valdi ekki álagi á bílastæði í nágrenninu.“
Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Kristinn Dagur Gissurarson, Guðmundur Jóhann Jónsson og Árnína Steinunn Kristjánsdóttir
Lagt fram erindi Ásdísar Auðar Ómarsdóttur dags. 24. ágúst 2026 um breytingu á ljósastýringu gatnamóta Ásbrautar, Sæbólsbrautar og Kársnesbrautar.
Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Vísað til umsagnar deildarstjóra gatnadeildar.
Bókun:
„Undirritaður telur fráleitt að Kópavogsbær verji tíma og fjármunum í að finna nýjar leiðir til að þrengja að bílaumferð og Reykjavíkurvæða umferðarkerfi Kópavogs enn frekar. Í tillögunni er X-fyrirkomulagið við Borgarholtsbraut og Urðarbraut nefnt sem fyrirmynd en Miðflokkurinn lagði nýlega til að það verði fjarlægt enda íþyngi það umferð óþarflega mikið, þó óhófleg þétting byggðar í boði meirihlutans spili þar vissulega einnig inn í. Vísað er til slysakorts Samgöngustofu og Strava-hitakorts. Frá 2016 hefur þó aðeins eitt slys tengt hjólreiðum verið skráð á gatnamótunum sem eru til umræðu, þegar hjólreiðamaður hjólaði þvert yfir akbraut. Aftur á móti hafa orðið ítrekaðar aftanákeyrslur við beygju inn á Kársnesbraut og er það merki um að umferð sé ekki nægilega greið. Nýleg reynsla við Smáralind sýnir að lokun beygjuvasa og breytingar í þágu hjólaumferðar hafa ekki sjálfkrafa aukið öryggi, þvert á móti hefur slysum á óvörðum vegfarendum fjölgað. Hitakort Strava bendir einnig til að fáir hjóli þá leið og má því velta upp á hvaða rökum sú ákvörðun var byggð.
Kópavogsbær á að greiða fyrir öllum faramátum og hámarka öryggi allra vegfarenda. Breytingar sem flækja umferð og draga úr afkastagetu eiga hins vegar að byggjast á raunverulegum gögnum og sýnilegum öryggisávinningi, ekki hugmyndafræði sem byggist á þvingaðri breytingu á ferðavenjum.“
Einar Jóhannes Guðnason.
Bókun:
„Undirrituð fagna erindinu. Íbúar hafa ítrekað vakið athygli á hættum sem gangandi og hjólandi vegfarendur standa frammi fyrir við gatnamót Kársnesbrautar, Sæbólsbrautar og Ásbrautar. Foreldrar barna í leikskólanum Marbakka hafa meðal annars komið ábendingum um umferðaröryggi á svæðinu á framfæri við Kópavogsbæ. Fyrirhugaðar eru breytingar á svæðinu og í samþykktu deiliskipulagi Ásbrautar er gert ráð fyrir göngu- og hjólabrú yfir Kársnesbraut. Ekki liggur þó fyrir hvenær sú framkvæmd verður að veruleika. Undirrituð telja mikilvægt að erindið verði skoðað vel og fundin lausn á þeim hættum sem steðja að gangandi og hjólandi vegfarendum við gatnamótin á meðan beðið er eftir fyrirhuguðum breytingum á svæðinu, ekki síst í ljósi þess að umferð um gatnamótin mun bara aukast í kjölfar aukinnar uppbyggingar á Kársnesinu. Umferðaröryggi gangandi og hjólandi, og þá sérstaklega barna, þarf að vera í forgangi.“
Eydís Inga Valsdóttir, Orri Thor Eggertsson og Pétur Björgvin Sveinsson.
Með tilvísun í skilmála í deiliskipulagi Vatnsendahvarfs dags. 14. nóvember 2023 eru lögð fram byggingaráform Andra Klausen arkitekts dags. 29. maí 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 2-4 við Skólahvarf. Í byggingaráformum kemur fram hvernig hönnun og frágangur mannvirkja og lóða falla að viðmiðum í almennum ákvæðum í skipulagsskilmálum í gildandi deiliskipulagi Vatnsendahvarfs. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 6. júlí 2026 var erindinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Einnig lagður fram lóðaruppdráttur dags. 4. september 2026 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. september 2026.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 4. september 2026 eru ekki gerðar athugasemdir við að sótt verði um byggingarleyfi á grundvelli framlagðra gagna dags. 4. september 2026.
Með tilvísun í skilmála í deiliskipulagi Vatnsendahvarfs dags. 14. nóvember 2023 eru lögð fram að nýju byggingaráform Andra Klausen arkitekts ódags. f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 1-3 við Stöðvarhvarf. Í byggingaráformum kemur fram hvernig hönnun og frágangur mannvirkja og lóða falla að viðmiðum í almennum ákvæðum í skipulagsskilmálum í gildandi deiliskipulagi Vatnsendahvarfs. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 17. ágúst 2026 var erindinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Einnig er lagður fram lóðaruppdráttur dags. 4. september 2026 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. september 2026.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 4. september 2026 eru ekki gerðar athugasemdir við að sótt verði um byggingarleyfi á grundvelli framlagðra gagna.
Lögð fram umsókn Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts dags. 9. júní 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 9 við Dimmuhvarf um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að lóðinni er skipt í tvær lóðir fyrir parhús í stað einbýlishúss, tilfærsla á byggingarreit og verður nýtingarhlutfallið 0,55. Þrjú bílastæði verða á hvorri lóð. Uppdrættir dags. 9. júní 2026, uppfærðir 7. júlí 2026 og 1. september 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 10. ágúst 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. september 2026.
Ester Anna Ármannsdóttir verkefnastjóri tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Samþykkt að framlögð umsókn um breytingu á deiliskipulagi verði auglýst með vísan til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Lögð fram að nýju umsókn Kristins Ragnarssonar arkitekts dags. 16. janúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 1B og 510 við Vatnsendablett og landeiganda um breytingu á aðal- og deiliskipulagi. Í breytingunni felst breytt landnotkun á opnu svæði skv. aðalskipulagi sem afmarkast af Elliðavatni til norðurs, lóðinni Kríunes til austurs, lóðunum við Vatnsendablett 1A og 716 til 718 til suðurs og lóðunum við Vatnsendablett 710 til 712 til vesturs í íbúðabyggð. Gert er ráð fyrir 18 nýjum einbýlishúsalóðum á svæðinu. Umsókninni fylgir greinargerð dags. 30. desember 2025, uppdráttur og skýringarmyndir dags. 11. desember 2024, hönnunaráætlun ódags. og framkvæmdaáætlun ódags. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 17. ágúst 2026 var afgreiðslu málsins frestað. Einnig er kögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. ágúst 2026 og erindi lóðarhafa dags. 24. ágúst 2026.
Fundarhlé hófst kl. 17:19 , fundi fram haldið kl. 17:58.
Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. ágúst 2026 með þremur atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Árnínu Steinunnar Kristjánsdóttur og Guðmundar Jóhanns Jónssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Andri Steinn Hilmarsson, Kristinn Dagur Gissurarson, Orri Thor Eggertsson og Eydís Inga Valsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Bókun:
„Framlögð tillaga er umtalsverð þétting á svæði sem er skilgreint í aðalskipulagi sem opið svæði og kallar því á heildarskoðun á svæðinu. Þó er nauðsynlegt koma gatnagerð og tengdum innviðum í betra horf á svæðinu. Undirrituð leggja áherslu á mikilvægi þess að Kópavogsbær haldi áfram samtali við landeigenda hvað varðar gatnagerð og nauðsynlegu viðhaldi á tengdum innviðum. Telja undirrituð einnig ástæðu til að skoða möguleikann á að hraða aðgerðum fyrir veturinn sem tryggja umferðaröryggi á svæðinu, s.s. götulýsingu“
Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson og Hjördís Ýr Johnson.
Bókun:
„Miðflokkurinn harmar að umsókn landeiganda og lóðarhafa á Vatnsendabletti sé hafnað. Sú niðurstaða skýtur skökku við stefnu Sjálfstæðisflokksins, sem skilgreinir eignarrétt sem grundvallarmannréttindi sem beri að styrkja og vernda. Miðflokkurinn telur að eðlilegra hefði verið að leyfa málinu að fara áfram í skipulagsferli, auglýsa tillöguna, kalla eftir umsögnum og meta umhverfisáhrif hennar eftir því sem við á. Sérstaklega er óviðunandi að höfnuninni fylgi hvorki tillaga um næstu skref né tímasett áætlun um þá heildstæðu stefnumótun sem vísað er til. Málið hverfur ekki við höfnun og sú staða sem íbúar búa við hverfur ekki heldur.
Fyrir liggur að gatnagerð, viðhaldi gatna og umferðaröryggi á svæðinu er ábótavant og að unnið hefur verið að lausnum í samráði við Kópavogsbæ. Þá hefur þegar farið fram umfangsmikil vinna við hönnun gatna, fráveitu og annarra innviða, auk þess hafa svo gott sem allir íbúar á svæðinu lýst stuðningi við fyrirhugaðar framkvæmdir. Miðflokkurinn telur því að bæjaryfirvöld verði nú að leggja fram raunhæf næstu skref og tímasetta leið til lausnar. Það er ekki boðlegt að hafna fyrirliggjandi leið án þess að geta jafnframt sagt íbúum hvaða leið eigi þá að fara og hvenær raunhæf lausn muni liggja fyrir.“
Einar Jóhannes Guðnason
Bókun:
„Fulltrúar Samfylkingarinnar og Viðreisnar gera fyrirvara við ákvörðun meirihlutans um að hafna umsókn um breytingu á aðal- og deiliskipulagi á Vatnsendabletti 1B.
Málið hefur verið lengi til meðferðar og mikil vinna verið lögð í undirbúning þess, bæði af hálfu umsækjenda og Kópavogsbæjar. Ljóst er að umtalsverðum tíma og fjármunum hefur verið varið í vinnslu málsins áður en komist var að þeirri niðurstöðu að hafna umsókninni.
Þörf er á úrbótum á svæðinu, meðal annars hvað varðar gatnagerð, lýsingu, fráveitu og umferðaröryggi. Við gagnrýnum að málið hafi fengið að vera svo lengi í vinnslu án þess að skýr niðurstaða liggi fyrir eða fullreynt sé hvort unnt væri að ná ásættanlegri niðurstöðu í samtali við umsækjendur og íbúa svæðisins.
Vandaðri og markvissari málsmeðferð hefði getað komið í veg fyrir að svo miklum tíma og fjármunum yrði varið án niðurstöðu. Það er sérstaklega ámælisvert í ljósi þess að brýn úrlausnarefni á svæðinu, þar á meðal varðandi umferðaröryggi barna og uppbyggingu innviða, eru enn óleyst og ekki liggur fyrir hvenær ráðist verður í nauðsynlegar úrbætur.
Eydís Inga Valsdóttir, Orri Thor Eggertsson og Pétur Björgvin Sveinsson.
Bókun:
„Við ítrekum fyrri bókun að ráðist verði í aðgerðir til að tryggja umferðaröryggi fyrir íbúa á svæðinu og að farið verði í heildarendurskoðun á því.“
Árnína Steinunn Kristjánsdóttir , Guðmundur Jóhann Jónsson og Hjördís Ýr Johnson.
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Helgu Guðrúnar Vilmundardóttur arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 29 við Sunnubraut. Sótt er um að 29,9 m² ósamþykkt bátaskýli verði breytt í íbúðarrými sem hluti af núverandi húsnæði. Ytra byrði hússins breytist, gluggum fjölgar, núverandi gluggar stækka og hurðum bætt við. Hæð hússins og lóðarmörk haldast óbreytt. Byggingarmagn eykst úr 356,2 m² í 386,1 m². Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,62 í 0,67. Uppdrættir dags. 5. febrúar 2026, uppfærðir 26. maí 2026. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 16. júní til 17. júlí 2026, athugasemd barst. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. ágúst 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. ágúst 2026.
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 26. ágúst 2026. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Lögð fram beiðni lóðarhafa lóðarinnar nr. 1 við Dofrakór dags. 3. júlí 2026 um endurupptöku umsóknar um breytingu á deiliskipulagi dags. 27. febrúar 2026. Skipulags- og umhverfisráð synjaði umsókninni og var afgreiðslan staðfest á fundi bæjarstjórnar 23. júní 2026. Lögð fram uppfærð tillaga Jens Arnars Árnasyni arkitekt dags. 9. júlí 2026, f.h. lóðarhafa að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar. Í gildi er deiliskipulag Hörðuvalla, samþykkt í bæjarráði 24. júlí 2003, með síðari breytingum. Lóðin er á svæði 7, reit 1. Í tillögunni felst að byggingarreitur á austurhluta núverandi íbúðarhúss stækkar og heimiluð verði viðbygging á einni hæð með þaksvölum, allt að 59,5 m² að flatarmáli, með tengingu við núverandi íbúð. Gert er ráð fyrir nýrri útidyrahurð á efri hæð núverandi húss með tengingu út á þaksvalir. Þá er sótt um að lóðin verði stækkuð um 78 m² til austurs inn á bæjarland og að felld verði úr gildi áður samþykkt deiliskipulagsbreyting frá 3. apríl 2008 sem heimilaði stækkun byggingarreits til norðausturs fyrir garðskýli á einni hæð. Uppdrættir dags. 9. júlí 2026. Einnig er lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa dags. 3. september 2026.
Samþykkt að framlögð umsókn um breytingu á deiliskipulagi dags. 9. júlí 2026 verði grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir hagsmunaaðilum á lóðum nr. 2 og 4 við Desjakór og nr. 2 og 4 við Dofrakór.
Lagt fram erindi frá Samtökum orkusveitafélaga dags. 13. júlí 2026 ásamt kynningarefni.
Lagt fram.