Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Framkvæmd við gatnamót Nýbýlavegar, Ástúns og Þverbrekku

Málsnúmer: 26091867

Ferill máls

01

Skipulags- og umhverfisráð - 36. fundur

Vegagerðin og umhverfissvið sækja um framkvæmdaleyfi, dags. 1. október 2026, á grundvelli aðalskipulags til endurbóta á gatnamótum Nýbýlavegar, Ástúns og Þverbrekku í samræmi við framlögð gögn. Framkvæmdir munu hefjast um leið og leyfi fæst og taka um það bil 3 mánuði eða eftir tíðarfari. Ekki verður lokað fyrir umferð um gatnamótin á framkvæmdatíma en vænta má einhverja tímabundinna tafa. Í framkvæmdinni felst endurgerð núverandi gatnamóta þar sem beygjuvasar og framhjáhlaup verða aflögð, ný umferðarljós sett upp og aðstaða gangandi og hjólandi vegfarenda bætt. Lagður verður nýr göngustígur að gatnamótunum og gönguþveranir styttar til að auka öryggi allra vegfarenda.

02

Skipulags- og umhverfisráð - 35. fundur

Lagt fram erindi bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar dags. 15. september 2026 þar sem óskað er eftir því að á fundi bæjarráðs fari fram umræða um framkvæmdir við gatnamót Nýbýlavegar, Ástúns og Þverbrekku. Á fundi bæjarráðs þann 17. september 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs til kynningar.

Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar og Cecilía Þórðardóttir verkefnastjóri frá Vegagerðinni tóku sæti á fundinum undir þessum lið.

Lagt fram. Umræður.

Bókun:

„Miðflokkurinn setur sig ekki upp á móti nauðsynlegu viðhaldi við gatnamótin en lýsir sig mótfallinn fyrirhugaðri framkvæmd og telur hana með öllu óþarfa. Það er fráleitt að Kópavogsbær leiti en leiða til þess að þrengja að bílaumferð og Reykjavíkurvæða umferðarskipulag í bænum. Með því að fjarlægja beygjuvasa mun það skerða umferðarflæði inn og út úr hverfinu og skapa óþarfa biðraðir upp Þverbrekku og niður Ástún. Slíkt mun óhjákvæmilega leiða til þess að umferð frá aðliggjandi götum innan hverfisins munu eiga í miklum erfiðleikum með að komast inn á bæði Þverbrekku og Ástún á háannatíma. Reynsla af lokun beygjuvasa er varðar umferðaröryggi óvarðra vegfarenda hefur þegar sýnt sig í Kópavogi, en slysum á þeim hefur fjölgað við Smáralind eftir að beygjuvasar voru fjarlægðir þar. Viðbragðsaðilar hafa einnig bent á að gatnamót þar sem beygjuvasar hafa verið afnumdir valdi erfiðleikum í útköllum. Þá eiga stærri ökutæki sem notuð eru við björgunarstarf, svo sem slökkvi- og körfubílar, erfitt með að athafna sig á gatnamótum þar sem beygjur og beygjuradíus inn í hverfin hafa verið þrengd. Einnig ber að hlusta á íbúa svæðisins sem eru alfarið á móti framkvæmdinni og þeirri aðferðafræði sem átti að viðhafa við hana. Miðflokkurinn kallar eftir skýru verklagi við framkvæmdir sem þessar, það á að vera skipulags- og umhverfisráð sem setji sýnina, sem embættismenn framfylgja síðan.“

Beitir Ólafsson.

Bókun:

„Málið hefur ekki fengið efnislega umfjöllun hjá ráðinu en það verður þegar umsókn um framkvæmdaleyfi kemur fyrir skipulags- og umhverfisráð.“

Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson og Kristinn Dagur Gissurarson.

03

Bæjarráð - 3265. fundur

Frá bæjarfulltrúa Miðflokks, dags. 15.09.2026, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir umræðu í bæjarráði um framkvæmd við gatnamót Nýbýlavegar, Ástúns og Þverbrekku.

Kynning á stöðu málsins,

Umræður.

Gestir viku af fundi kl. 9:25

Bæjarráð felur sviðsstjóra umhverfissviðs að leiðbeina Vegagerðinni um réttan farveg málsins. Málinu jafnframt vísað til Skipulags- og umhverfisráðs til kynningar.