Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Menningar- og mannlífsnefnd - 4. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - formaður
  • Jónas Skúlason - aðalfulltrúi
  • Helga Hauksdóttir - varaformaður
  • Margrét Vilborg Tryggvadóttir - aðalfulltrúi
  • Indriði Ingi Stefánsson - aðalfulltrúi
  • Ísabella Leifsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Guðmundur Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Vilborg Soffía Karlsdóttir

Ritari

  • Ása A. Kristjánsdóttir

Til fundarins er boðað sem aukafundar.

Dagskrá fundar

01

Kynning á erindisbréfi menningar- og mannlífsnefndar

Pálmi Þór Másson bæjarritari og Steinn Sigríðar Finnbogason lögmaður fara yfir tillögur að breytingum á erindisbréfi menningar- og mannlífsnefndar.

Pálmi Þór Másson og Steinn S. Finnbogason yfirgáfu fundinn kl. 17:29

Drög að erindisbréfi rædd.

02

Söfnunarsjóður fyrir útilistaverk

Tillaga ráðgjafanefndar Gerðarsafns um hvernig standa skuli að kaupum á útilistaverki menningar- og mannlífsnefndar.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir tillögu ráðgjafanefndar Gerðarsafns um val og kaup á útilistaverki fyrir bæjarfélagið.

03

Umsókn um styrk frá lista- og menningarsjóði Kópavogs

Beiðni um 500.000 króna styrk frá Óperukórnum í Reykjavík vegna stórtónleika í Eldborg, Hörpu þann 27. janúar 2025.

Menningar- og mannlífsnefnd getur því miður ekki orðið við styrkbeiðninni.

04

Beiðni um styrk til varðveislu á heimildarmynd Marteins Sigurgeirrsonar um sögu og endursmíði Kópavogsbúsins

Lionsklúbbur Kópavogs óskar eftir 500.000 króna styrk til varðveislu á heimildarmynd Marteins Sigurgeirssonar um sögu og endursmíði Kópavogsbúsins.

Menningar- og mannlífsnefnd hafnar beiðninni að svo stöddu og felur forstöðumanni að leiðbeina umsækjendum um réttan feril styrkumsókna.

05

Styrkumsókn vegna ljósaborðs og ljósabúnaðar

Leikfélag Kópavogs óskar eftir 2.867.479 króna styrk vegna kaupa á ljósaborði og ljósabúnaði, m.a. til að auka útleigumöguleika Leikfélagsins.

Menningar- og mannlífsnefnd getur því miður ekki orðið við styrkbeiðninni.

06

Umsókn um styrk frá lista- og menningarsjóði Kópavogs

Kristín Lárusdóttir óskar eftir styrk að upphæð einni milljón króna til að halda afmælistónleika í Salnum og bjóða upp á námskeið fyrir börn og útlendinga.

Menningar- og mannlífsnefnd getur því miður ekki orðið við styrkbeiðninni, en leggur til að umsækjandi beri hugmynd sína upp fyrir forstöðumann Salarins.

07

Umsókn um styrk frá lista- og menningarsjóði Kópavogs

Félag íslenskra píanóleikara óskar eftir styrk að upphæð 1.500.000 króna til að halda alþjóðlega píanókeppni, WPTA Iceland IPC 2025, í Salnum.

Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir styrk að upphæð kr. 800.000 til að standa straum að fyrstu alþjóðlegu píanókeppninni sem Félag íslenskra píanóleikara stendur fyrir í Salnum á þessu ári.

08

Umsókn um styrk frá lista- og menningarsjóði Kópavogs

Magni Rúnar Kristinsson / Sensor óskar eftir styrk að upphæð kr. 5.000.000 vegna gerðar stuttmyndarinnar Dauður.

Menningar- og mannlífsnefnd getur því miður ekki orðið við styrkbeiðninni.

09

Fyrirspurn um útilistaverk í Kópavogi

Beiðni um að Kópavogsbær veiti viðtöku og setji upp brjóstmynd af tónlistarmanninum Birni.

Menningar- og mannlífsnefnd aflaði álits ráðgjafanefndar Gerðarsafns.

Nefndin þakkar tónlistarmanninum Birni fyrir hugmyndina og góðan ásetning og felur forstöðumanni menningarmála að skoða mögulegar útfærslur á því að verkið geti staðið í Kópavogi í ákveðinn tíma.

10

Erindi um Kópavogssögu, afmælisgjöf til Kópavogsbúa

Tillaga frá Indriða Inga Stefánssyni um að forstöðumaður menningarmála leiti eftir samstarfssamningi við Sögufélagið um ritun sögu bæjarins.

Menningar- og mannlífsnefnd frestar málinu.

11

Erindi um styttu af Huldu Jakobsdóttur, afmælisgjöf til Kópavogsbúa

Tillaga frá Indriða Inga Stefánssyni um að forstöðumanni Gerðarsafns, í samstarfi við forstöðumann menningarmála, umhverfissvið og erfingja Huldu, kaupi styttu af Huldu Jakobsdóttur fyrrum bæjarstjóra og finni henni stað á áberandi stað í bæjarlandinu.

Menningar- og mannlífsnefnd ákveður að afla álits frá ráðgjafanefnd Gerðarsafns um útfærslu á minnisvarða um Huldu Jakobsdóttur fyrrum bæjarstjóra.