Söfnunarsjóður fyrir útilistaverk
Málsnúmer: 2302367
Ferill máls
01
Menningar- og mannlífsnefnd - 11. fundur
Val á nýju útilistaverki í Kópavogi.
Nefndin felur forstöðumanni menningarmála að taka málið áfram samkvæmt hugmyndum ráðgjafanefndar og í samtali við umhverfissvið og forstöðumann Gerðarsafns. Nefndin leggur áherslu á að horft verði til allra hverfa bæjarins við val á staðsetningu verksins. Jafnframt brýnir nefndin fyrir bæjarstjórn að gert sé ráð fyrir list í almannarými í nýjum hverfum bæjarins.
02
Menningar- og mannlífsnefnd - 4. fundur
Tillaga ráðgjafanefndar Gerðarsafns um hvernig standa skuli að kaupum á útilistaverki menningar- og mannlífsnefndar.
Menningar- og mannlífsnefnd samþykkir tillögu ráðgjafanefndar Gerðarsafns um val og kaup á útilistaverki fyrir bæjarfélagið.
03
Menningar- og mannlífsnefnd - 3. fundur
Tillaga ráðgjafanefndar Gerðarsafns um hvernig standa skuli að kaupum á útilistaverki menningar- og mannlífsnefndar.
Máli frestað.
04
Lista- og menningarráð - 148. fundur
Tillaga að stofnun söfnunarsjóðs til útilistaverkakaupa í Kópavogi.
Lista- og menningarráð óskar eftir því við bæjarráð að stofnaður verði söfnunarsjóður fyrir útilistaverk sem settur verði í fjárfestingaráætlun / stofn, fyrir árið 2024. Árið 2022 hélt ráðið eftir af fjárheimildum sínum kr. 3.000.000 sem ætlað var sem stofnfé til kaupa á útlistaverki fyrir bæjarfélagið. Það sama hyggst ráðið gera árið 2023. Þar sem ekki er unnt að flytja fjárheimildir á milli ára óskar lista- og menningarráð eftir því við bæjarráð að gert verði ráð fyrir kr. 6.000.000 í fjárfestingaráætlun fyrir útilistaverki fyrir árið 2024, sem nemur þá sparnaði ráðsins fyrir árin 2022 og 2023. Jafnframt er óskað eftir því að fjárheimild til úthlutunar lista- og menningarráðs á árunum 2024 og 2025 verði lækkaðar um kr. 3.000.000 hvort ár og fjárfestingaráætlun fyrir árin 2024 og 2025 hækki að sama skapi um kr. 3.000.000 bæði árin, sem renni þá í söfnunarsjóð fyrir útilistaverk í Kópavogi.