Skipulags- og umhverfisráð - 23. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaðurBoðaði forföllHjördís Ýr Johnson - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalfulltrúi
- Kristinn Dagur Gissurarson - varaformaður
- Gunnar Sær Ragnarsson - aðalfulltrúi
- Helga Jónsdóttir - aðalfulltrúi
- Leó Snær Pétursson - aðalfulltrúi
- Hákon Gunnarsson - aðalfulltrúi
- Indriði Ingi Stefánsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
- Ásthildur Helgadóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Harri Ormarsson - lögfræðingur
Ritari
- Karlotta Helgadóttir
Kristinn Dagur Gissurarson varaformaður stýrði fundinum í fjarveru formanns.
Dagskrá fundar
2512022F - Skipulags- og umhverfisráð - 22. fundur frá 19.01.2026
25043169 - Silfursmári 1-7. Breyting á aðalskipulagi. Skipulagslýsing.
Bæjarstjórn vísar málinu til leiðréttingar og nýrrar efnismeðferðar hjá skipulagsfulltrúa.
2411179 - Silfursmári 1-7. Breytt deiliskipulag. Skipulagslýsing.
Bæjarstjórn vísar málinu til leiðréttingar og nýrrar efnismeðferðar hjá skipulagsfulltrúa.
25043616 - Nýbýlavegur 1. Breyting á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 6 atkvæðum.
2508452 - Bakkabraut 9-23. Svæði 8. Breytt deiliskipulag.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
Skipulags- og umhverfisráð - 22. fundur frá 19.01.2026.
25043169 - Silfursmári 1-7. Breyting á aðalskipulagi. Skipulagslýsing.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
2411179 - Silfursmári 1-7. Breytt deiliskipulag. Skipulagslýsing.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
25043616 - Nýbýlavegur 1. Breyting á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
2508452 - Bakkabraut 9-23. Svæði 8. Breytt deiliskipulag.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Lögð fram að nýju að lokinni auglýsingu á vinnslustigi tillaga að nýju deiliskipulagi Kársnesstígs á sunnanverðu Kársnesi, dags. 31. október 2025. Viðfangsefni deiliskipulagsins eru endurbætur á Kársnesstíg á sunnanverðu Kársnesi með áherslu á að bæta aðgengi og öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Í því samhengi er lagt til að komið verði fyrir aðgreindum hjólastíg sem stuðlar að skýrari aðgreiningu ferðamáta og eykur öryggi allra vegfarenda. Skipulagssvæðið nær yfir Kársnesstíg og nærliggjandi svæði á milli Bakkabrautar 2 og Urðarbrautar og er í samræmi við stefnu og markmið Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040. Tillagan var kynnt á vinnslustigi frá 13. nóvember til 23. janúar 2026. Þá lagðar fram athugasemdir sem bárust á kynningartíma ásamt minnisblaði dags. 30. janúar 2026.
Kristjana H. Kristjánsdóttir verkefnastjóri og Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar gerðu grein fyrir erindinu.
Frestað. Samþykkt að bjóða fulltrúum frá Útivistarsamtökum Kársness og Landssamtökum hjólreiðamanna að koma fyrir ráðið til að fylgja eftir umsögnum sínum.
- Minnisblað skipulagsfulltrúa, dags. 30. janúar 2026.
- Allar ábendingar sem bárust á vinnsl
- Skýringaruppdráttur dags. 31. október 2025
- Tillaga á vinnslustigi. Skipulagsuppdráttur 1 af 2.
- Tillaga á vinnslustigi. Skipulagsuppdráttur 2 af 2
- Umhverfismat Suðurströnd Kársnes
- Minnisblað ReSource um umhverfisáhrif valkosta dags. 30. apríl 2025.
- Rýni á valkostum frá Urbana og Pláss dags. í apríl 2025.
- Umferðaröryggismat dags. í janúar 2023.
- Valkostagreining dags. 5. desember 2022.
Lögð fram umsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Hæðarhvarf dags. 1. desember 2025 um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst aukning byggingarmagns 32,1 m2 vegna útbygginga yfir svölum, B-rými. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,44 í 0,49. Uppdrættir dags. 29. nóvember 2025 og skráningartafla ódags. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 8. desember 2025 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 22. desember 2025 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs.
Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. janúar 2026.
Kristjana H. Kristjánsdóttir gerði grein fyrir erindinu.
Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 22. janúar 2026 með fimm atkvæðum Andra Steins Hilmarssonar, Þorðvarðar Hrafns Ásgeirssonar, Leós Snæs Péturssonar Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar gegn atkvæði Gunnars Sæs Ragnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins.
- Umsögn dags. 22. janúar 2026
- Grunnmynd 1.hæðar dags. 29. nóvember 2025
- Grunnmynd 2. hæð, dags. 29. nóvember 2025.
- Beiðni um deiliskipulagsbreytingu dags. 30. nóvember 2025
- Afstöðumynd og byggingarlýsing dgas. 29. nóvember 2025
- 305-0-Ásýndir
- Skráningartafla og orkurammi, ódags.
- Skematísk grunnmynd og ásýnd dags. 29. nóvember 2025
- Snið AA og BB dags. 29. nóvember 2025
- 3D mynd
Lögð fram að nýju til afgreiðslu tillaga Hrólfs Carls Cela arkitekts dags. 12. febrúar 2024 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 1-17 við Nónsmára að breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst tilfærsla íbúða milli lóða og hækkun byggingarreita úr tveimur hæðum í þrjár á norðurhluta lóðanna. Heildarfjöldi íbúða á lóðunum tveimur helst óbreyttur, 100 íbúðir. Á lóðinni nr. 11-17 er íbúðum fjölgað úr 45 í 47 íbúðir. Hámarksflatarmál ofanjarðar er aukið um 490 m², úr 4.840 m² í 5.330 m², við það hækkar nýtingarhlutfall lóðarinnar úr 0,92 í 1,01. Á lóðinni nr. 1-9 er íbúðum fækkað úr 55 í 53 íbúðir og stigahúsum fjölgar um eitt, úr fjórum í fimm. Nyrsti hluti byggingarreits hækkar úr tveimur í þrjár hæðir. Hámarksflatarmál ofanjarðar er aukið um 1.240 m², úr 5.960 m² í 7.200 m², við það hækkar nýtingarhlutfall úr 0,94 í 1,10. Lóðin stækkar um 185 m², úr 6.360 m² í 6.545 m² til austurs að göngu- og hjólastíg meðfram Smárahvammsvegi. Tillagan var auglýst frá 23. október til 15. janúar 2026, athugasemdir bárust. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 19. janúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Lagt fram að nýju ásamt uppfærðum uppdrætti dags. 30. janúar 2026 og umsögn skipulagsfulltrúa ásamt fylgiskjölum dags. 30. janúar 2026. Einnig eru lögð fram andmæli lóðarhafa við framkomnum athugasemdum dags. 26. janúar 2026 og 28. janúar 2026.
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 30. janúar 2026 með fimm atkvæðum Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Þorðvarðar Hrafns Ásgeirssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar og Hákonar Gunnarssonar gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur og Leó Snæs Péturssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Fundarhlé hófst kl. 17:08, fundi framhaldið kl. 17:32.
Bókun:
„Undirrituð leggjast gegn breytingu á deiliskipulagi Nónhæðar. Þegar deiliskipulag liggur fyrir eftir vandaðan undirbúning og víðtækt samráð geta einstakir lóðarhafar ekki vænst breytinga til hagsbóta fyrir sig nema veigamiklar nýjar ástæður komi fram sem réttlæta þá breytingu. Nýjar upplýsingar sem réttlæta breytingu á deiliskipulaginu hafa ekki komið fram. Það er varhugavert fordæmi og rýrir trúverðugleika stjórnvalda ef þau gefa þau skilaboð að breyting á samþykktu deiliskipulag sé samningsatriði eftir á. Þetta mál hefur tafist vegna ítrekaðra breytingabeiðna og dráttur á verklokum er óhæfilegur og óásættanlegur fyrir íbúa í nágrenninu.“
Helga Jónsdóttir, Indriði Ingi Stefánsson og Leó Snær Pétursson.
Bókun:
„Eins og kemur fram í umsögn skipulagsfulltrúa hafa þær breytingar sem felast í tillögu að breyttu deiliskipulagi Nónsmára 1-9 og 11-17 óveruleg áhrif á nærliggjandi byggð og munu ekki raska hagsmunum nágranna að teljandi marki.“
Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson, Gunnar Sær Ragnarsson og Þorvarður Hrafn Ásgeirsson.
- Nónsmári 1-17_breytt dsk_umsögn skipulagsfulltrúa_janúar 2026
- Umsögn skipulagsfulltrúa 30 janúar 2026_fylgiskjöl
- Uppfærður uppdráttur dags 30 janúar 2026
- Auglýst tillaga að breyttu deiliskipulagi
- Andmæli f.h. lóðarhafa dags 26 janúar 2026
- Andmæli f.h. lóðarhafa dags. 28. janúar 2026
- Athugasemdir sem bárust á kynningartíma
Lögð fram að nýju fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 5 við Brekkuhvarf dags. 10. nóvember 2025 um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst m.a. uppskipting lóðarinnar í tvær einbýlishúsalóðir, sbr. fyrri fyrirspurn dags. 26. maí 2025. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 8. desember 2025 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 15. desember 2025 var afgreiðslu frestað. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. janúar 2026.
Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 29. janúar 2026 með sex atkvæðum Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Þorvarðar Hrafns Ásgeirssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar, Leós Snæs Péturssonar og Hákonar Gunnarssonar. Helga Jónsdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins.
Með tilvísun í deiliskipulagsskilmála í deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 10 við Urðarhvarf dags. 23. júní 2025 eru lögð fram byggingaráform frá Studio B dags. 9. janúar 2026. Einnig lagðir fram uppdrættir dags. 9. janúar 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 28. janúar 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Lögð fram fyrirspurn varabæjarfulltrúa Hákonar Gunnarssonar dags. 14. janúar 2026 um framkvæmdir á Fannborgarreit. Einnig langt fram svar sviðsstjóra umhverfissviðs dags. 14. janúar 2026 við fyrirspurn.
Lagt fram.