Kársnesstígur á sunnanverðu Kársnesi. Deiliskipulag.
Málsnúmer: 2103759
Ferill máls
01
Skipulags- og umhverfisráð - 25. fundur
Lögð fram að nýju tillaga á vinnslustigi að deiliskipulagi fyrir Kársnesstíg á sunnanverðu Kársnesi, dags. 31. október 2025. Tillagan var forkynnt frá 13. nóvember 2025 til 23. janúar 2026. Einnig eru lagðar fram athugasemdir, umsagnir og ábendingar sem fram komu á kynningartíma ásamt minnisblaði skipulagsfulltrúa dags. 30. janúar 2026 og minnisblaði skipulagsfulltrúa dags. 27. febrúar 2026. Jafnframt lögð fram breytingartillaga frá Helgu Jónsdóttur. Breytingartillögunni fylgir greinargerð og fylgiskjöl.
Breytingartillaga Helgu Jónsdóttur:
„Lagt er til að skipulags- og umhverfisráð feli skipulagsfulltrúa að afla greinargerðar óháðra faglegra sérfræðinga á útfærslum og umhverfisáhrifum mögulegra stofnstíga fyrir hjólreiðar á sunnanverðu Kársnesi sbr. 6.gr. skipulagslaga. Til samanburðar við fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu verði nálgun VSB verkfræðistofu, sem barst með athugasemdum Útivistarsamtaka Kársness. Þar er horft til Kópavogsbrautar sem stofnleiðar og tengibrautar hjólreiða ásamt Kársnesbraut og Urðarbraut. Til stuðnings er vísað í markmið aðalskipulags um hjólreiðaáætlun til að tryggja hjólatengingar milli heimila, skóla, þjónustustofnana og almenningssamgangna.“
Fundarhlé hófst kl. 17:50, fundi framhaldið kl. 18:11.
Fundarhlé hófst kl. 18:30, fundi framhaldið kl. 18:45.
Umræður.
Breytingartillaga ekki borin upp þar sem ráðið sammælist um eftirfarandi tillögu:
„Skipulags- og umhverfisráð felur umhverfissviði að endurmeta valkostagreiningu og leita álits óháðs aðila á mögulegum útfærslum á stofnstíg fyrir hjólreiðar á sunnanverðu Kársnesi.“
Samþykkt samhljóða
- Breytingartillaga frá Helgu Jónsdóttur í mars 2026
- Minnisblað skipulagsfulltrúa 27. febrúar 2026
- Umferðaröryggismat dags. í janúar 2023.
- Rýni á valkostum frá Urbana og Pláss dags. í apríl 2025.
- Minnisblað skipulagsfulltrúa, dags. 30. janúar 2026.
- skýringaruppdráttur drög dags. 31.10.2025
- Allar ábendingar sem bárust á vinnsl
- Skýringaruppdráttur dags. 31. október 2025
- Valkostagreining dags. 5. desember 2022.
- Tillaga á vinnslustigi. Skipulagsuppdráttur 2 af 2
- Umhverfismat Suðurströnd Kársnes
- Sanmingar íbúa vegna göngu
- Umsögn bæjarritara um fyrirspu
- Tillaga á vinnslustigi. Skipulagsuppdráttur 1 af 2.
- Minnisblað ReSource um umhverfisáhrif valkosta dags. 30. apríl 2025.
02
Skipulags- og umhverfisráð - 24. fundur
Með vísan til bókunar skipulags- og umhverfisráðs á fundi þann 2. febrúar 2026 er fulltrúum frá Útivistarsamtökum Kársness og Landssamtökum hjólreiðamanna boðið að koma fyrir ráðið til að fylgja eftir umsögnum sínum og gera nánari grein fyrir þeim sjónarmiðum sem þar koma fram.
Umræður.
03
Skipulags- og umhverfisráð - 23. fundur
Lögð fram að nýju að lokinni auglýsingu á vinnslustigi tillaga að nýju deiliskipulagi Kársnesstígs á sunnanverðu Kársnesi, dags. 31. október 2025. Viðfangsefni deiliskipulagsins eru endurbætur á Kársnesstíg á sunnanverðu Kársnesi með áherslu á að bæta aðgengi og öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Í því samhengi er lagt til að komið verði fyrir aðgreindum hjólastíg sem stuðlar að skýrari aðgreiningu ferðamáta og eykur öryggi allra vegfarenda. Skipulagssvæðið nær yfir Kársnesstíg og nærliggjandi svæði á milli Bakkabrautar 2 og Urðarbrautar og er í samræmi við stefnu og markmið Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040. Tillagan var kynnt á vinnslustigi frá 13. nóvember til 23. janúar 2026. Þá lagðar fram athugasemdir sem bárust á kynningartíma ásamt minnisblaði dags. 30. janúar 2026.
Kristjana H. Kristjánsdóttir verkefnastjóri og Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar gerðu grein fyrir erindinu.
Frestað. Samþykkt að bjóða fulltrúum frá Útivistarsamtökum Kársness og Landssamtökum hjólreiðamanna að koma fyrir ráðið til að fylgja eftir umsögnum sínum.
- Umhverfismat Suðurströnd Kársnes
- Tillaga á vinnslustigi. Skipulagsuppdráttur 2 af 2
- Umferðaröryggismat dags. í janúar 2023.
- Tillaga á vinnslustigi. Skipulagsuppdráttur 1 af 2.
- Valkostagreining dags. 5. desember 2022.
- Rýni á valkostum frá Urbana og Pláss dags. í apríl 2025.
- Allar ábendingar sem bárust á vinnsl
- Minnisblað skipulagsfulltrúa, dags. 30. janúar 2026.
- Skýringaruppdráttur dags. 31. október 2025
- Minnisblað ReSource um umhverfisáhrif valkosta dags. 30. apríl 2025.
04
Skipulags- og umhverfisráð - 20. fundur
Þann 11. nóvember 2025 samþykkti bæjarstjórn að tillaga að nýju deiliskipulagi Kársnesstígar yrði forkynnt á vinnslustigi. Kynningartími hófst 13. nóvember og lýkur 8. janúar 2026. Lögð er fram tillaga um framlengingu kynningartíma til 23. janúar 2026.
Samþykkt.
05
Bæjarstjórn - 1328. fundur
Lögð fram á vinnslustigi tillaga að nýju deiliskipulagi Kársnesstígs á sunnanverðu Kársnesi, dags. 31. október 2025, til forkynningar í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Viðfangsefni deiliskipulagsins eru endurbætur á Kársnesstíg á sunnanverðu Kársnesi með áherslu á að bæta aðgengi og öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Í því samhengi er lagt til að komið verði fyrir aðgreindum hjólastíg sem stuðlar að skýrari aðgreiningu ferðamáta og eykur öryggi allra vegfarenda. Skipulagssvæðið nær yfir Kársnesstíg og nærliggjandi svæði á milli Bakkabrautar 2 og Urðarbrautar og er í samræmi við stefnu og markmið Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040. Tillagan sem er á vinnslustigi til forkynningar er sett fram á tveimur skýringaruppdráttum dags. 31. október 2025. Tillögunni fylgir umhverfismat áætlunar dags. 29. október 2025 sem unnið er af Eflu. Einnig er lögð fram rýni á valköstum frá Urbana-Pláss dags. í apríl 2025, valkostagreining fyrir legu göngu- og hjólastígsins dags. 5. desember 2022, umferðaröryggisrýni frá Vegagerðinni dags. í janúar 2023 og minnisblað frá ReSource um umhverfisáhrif dags. 30. apríl 2025.
Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar og Kristjana H. Kristjánsdóttir verkefnastjóri gerðu grein fyrir tillögunni. Hrafnhildur Brynjólfsdóttir ráðgjafi frá Eflu gerði grein fyrir umhverfismati áætlunarinnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 8 atkvæðum gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur og Kolbeins Reginssonar og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur.
06
Bæjarráð - 3234. fundur
Lögð fram á vinnslustigi tillaga að nýju deiliskipulagi Kársnesstígs á sunnanverðu Kársnesi, dags. 31. október 2025, til forkynningar í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Viðfangsefni deiliskipulagsins eru endurbætur á Kársnesstíg á sunnanverðu Kársnesi með áherslu á að bæta aðgengi og öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Í því samhengi er lagt til að komið verði fyrir aðgreindum hjólastíg sem stuðlar að skýrari aðgreiningu ferðamáta og eykur öryggi allra vegfarenda. Skipulagssvæðið nær yfir Kársnesstíg og nærliggjandi svæði á milli Bakkabrautar 2 og Urðarbrautar og er í samræmi við stefnu og markmið Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040. Tillagan sem er á vinnslustigi til forkynningar er sett fram á tveimur skýringaruppdráttum dags. 31. október 2025. Tillögunni fylgir umhverfismat áætlunar dags. 29. október 2025 sem unnið er af Eflu. Einnig er lögð fram rýni á valköstum frá Urbana-Pláss dags. í apríl 2025, valkostagreining fyrir legu göngu- og hjólastígsins dags. 5. desember 2022, umferðaröryggisrýni frá Vegagerðinni dags. í janúar 2023 og minnisblað frá ReSource um umhverfisáhrif dags. 30. apríl 2025.
Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar og Kristjana H. Kristjánsdóttir verkefnastjóri gerðu grein fyrir tillögunni. Hrafnhildur Brynjólfsdóttir ráðgjafi frá Eflu gerði grein fyrir umhverfismati áætlunarinnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
07
Skipulags- og umhverfisráð - 18. fundur

Samþykkt með fimm atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar og Hákonar Gunnarssonar gegn atkvæði Helgu Jónsdóttur að framlögð tillaga verði forkynnt á vinnslustigi með vísan til 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Leó Snær Pétursson sat hjá við afgreiðslu málsins.
- Tillaga á vinnslustigi skipulagsuppdráttur 1 af 2 drög_311025
- Umhverfismat Efla, dags. 29.10.2025
- Kársnesstígur - valkostagreining_útsent
- Tillaga á vinnslustigi skipulagsuppdráttur 2 af 2 drög_311025
- Útivistarstígur um Kársnes - mat á valkostum
- Stígur um sunnanvert Kársnes_Valkostagreining_2023.01.11_Öryggismat
- ReSource_Minnisblad, dags 30.apríl 2025_Göngustígur Kópavogur
- skýringaruppdráttur drög dags. 31.10.2025
08
Bæjarstjórn - 1310. fundur
Á fundi skipulagsráðs þann 19. apríl 2021 var samþykkt í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að hafin yðri vinna við gerð deiliskipulags fyrir hjóla- og göngustíga á sunnanverðu Kársnesi. Fyrirhugaður stígur er skilgreindur í Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 sem stofnleið hjólreiða. Stofnstígar tengja saman sveitarfélög og hverfishluta. Skilgreining og uppbygging stofnstíganets höfuðborgarsvæðisins er hluti af samgöngusáttmála ríkisins og sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins.
Þá er lögð fram valkostagreining fyrir legu göngu- og hjólastígs um sunnanvert Kársness dags. 5. desember 2022 og umferðaröryggisrýni Vegagerðarinnar dags. í janúar 2023.
Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar gerði grein fyrir erindinu.
Kristjana H. Kristjánsdóttir, verkefnastjóri hverfisáætlana tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
09
Skipulagsráð - 174. fundur
Á fundi skipulagsráðs þann 19. apríl 2021 var samþykkt í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að hafin yðri vinna við gerð deiliskipulags fyrir hjóla- og göngustíga á sunnanverðu Kársnesi. Fyrirhugaður stígur er skilgreindur í Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 sem stofnleið hjólreiða. Stofnstígar tengja saman sveitarfélög og hverfishluta. Skilgreining og uppbygging stofnstíganets höfuðborgarsvæðisins er hluti af samgöngusáttmála ríkisins og sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins.
Þá er lögð fram valkostagreining fyrir legu göngu- og hjólastígs um sunnanvert Kársness dags. 5. desember 2022 og umferðaröryggisrýni Vegagerðarinnar dags. í janúar 2023.
Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar gerði grein fyrir erindinu.
Kristjana H. Kristjánsdóttir, verkefnastjóri hverfisáætlana tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Lagt fram og kynnt.
10
Bæjarráð - 3049. fundur
Á fundi skipulagsráðs þann 19. apríl 2021 óskaði umhverfissvið heimildar skipulagsráðs til að hefja deiliskipulagsvinnu fyrir aðskilda hjóla- og göngustíg á sunnanverðu Kársnesi með tilvísan til 1.mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og í samræmi við stofnleiðanet hjólreiða á höfuðborgarsvæðinu.
Skipulagsráð samþykkti erindið. Í kjölfarið óskuðu íbúar á Sunnubraut 31, 35, 39 og 41 eftir fundi með fulltrúum frá umhverfissviði um fyrirhugaðar framkvæmdir. Þá lagðar fram athugasemdir ofangreindra íbúa við áformin dags. 1. júní 2021 ásamt fundargerð dags. 1. júní 2021.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
11
Skipulagsráð - 100. fundur
Á fundi skipulagsráðs þann 19. apríl 2021 óskaði umhverfissvið heimildar skipulagsráðs til að hefja deiliskipulagsvinnu fyrir aðskilda hjóla- og göngustíg á sunnanverðu Kársnesi með tilvísan til 1.mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og í samræmi við stofnleiðanet hjólreiða á höfuðborgarsvæðinu.
Skipulagsráð samþykkti erindið. Í kjölfarið óskuðu íbúar á Sunnubraut 31, 35, 39 og 41 eftir fundi með fulltrúum frá umhverfissviði um fyrirhugaðar framkvæmdir. Þá lagðar fram athugasemdir ofangreindra íbúa við áformin dags. 1. júní 2021 ásamt fundargerð dags. 1. júní 2021.
Lagt fram.
12
Umhverfis- og samgöngunefnd - 141. fundur
Lögð fram kynning á upphafi deiliskipulagsvinnu fyrir hjólastíg á sunnanverðu Kársnesi með tilvísan til 1. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Brú yfir Fossvoginn og uppbygging á vestanverðu Kársnesi felur í sér aukið vægi stígsins bæði hvað varðar samgöngur og útivist. Minnisblað dags. 14. apríl 2021 ásamt viðaukum A og B frá Eflu verkfræðistofu dags. 21. apríl 2020.
Lagt fram.
13
Bæjarstjórn - 1237. fundur
Umhverfissvið Kópavogs óskar heimildar skipulagsráðs Kópavogs að hefja deiliskipulagsvinnu fyrir hjólastíg á sunnanverðu Kársnesi með tilvísan til 1. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Brú yfir Fossvoginn og uppbygging á vestanverðu Kársnesi felur í sér aukið vægi stígsins bæði hvað varðar samgöngur og útivist. Minnisblað dags. 14. apríl 2021 ásamt viðaukum A og B frá Eflu verkfræðistofu dags. 21. apríl 2020.
14
Skipulagsráð - 96. fundur

Skipulagsráð samþykkir að hafin verði vinna við deiliskipulag hjóla- og göngustíga á sunnanverðu Kársnesi.