Kópavogsdalur. Endurskoðun deiliskipulags.
Málsnúmer: 1502159
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2811. fundur
Tillaga sem samþykkt var í skipulagsnefnd Kópavogs um að vinna nýtt deiliskipulag fyrir Kópavogsdal.
Bæjarráð vísar tillögunni til gerðar fjárhagsáætlunar næsta árs.
02
Skipulagsnefnd - 1273. fundur
Tillaga frá Margréti Júlíu Rafnsdóttur og Ásu Richardsdóttur:$line$Skipulagsnefnd Kópavogs samþykkir að vinna nýtt deiliskipulag fyrir Kópavogsdal en núgildandi skipulag er frá 1990.$line$$line$Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að tryggja fjármagn og mannafla til þessarar vinnu.$line$$line$Skipulagsnefnd Kópavogs vill leggja áherslu á fjölbreytta aðstöðu til útivistar fyrir almenning og græn svæði í Kópavogsdal.$line$$line$Vinna þarf framtíðarsýn um Kópavogsdal, sem er í þágu allra bæjarbúa.
Margrét Júlía Rafnsdóttir, Ása Richardsdóttir, Sverrir Óskarsson og Sigríður Kristjánsdóttir samþykktu tillöguna.$line$Andrés Pétursson var samþykkti ekki tillöguna.$line$Kristinn Dagur Gissurarson og Guðmundur Geirdal sátu hjá við afgreiðslu málsins.
03
Umhverfis- og samgöngunefnd - 71. fundur
Lögð fram bókun skipulagsnefndar frá nr. 1268 fundi, 9. nóvember 2015.$line$Fagnað er hugmyndum umhverfis- og samgöngunefndar hvað varðar Kópavogsdalinn en viljum við stíga varlega til jarðar og velja vandlega það sem í dalinn kemur. Tökum heilshugar undir með umhverfis- og samgöngunefnd um að endurskoða deiliskipulag dalsins.$line$Margrét Júlía Rafnsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir, Sverrir Óskarsson, Guðmundur Geirdal og Helga Elínborg Jónsdóttir.
Lagt fram og kynnt.
04
Skipulagsnefnd - 1268. fundur
Frá umhverfis- og samgöngunefnd:$line$Lögð fram til kynningar framkvæmdaáætlun fyrir Kópavogsdal 2016-2020 sem samþykkt var á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 29.9.2015.$line$Einnig lögð fram til kynningar tillaga að framkvæmdum fyrir sumarið 2016 í samræmi við framkvæmdaáætlun.
Fagnað er hugmyndum umhverfis- og samgöngunefndar hvað varðar Kópavogsdalinn en viljum við stíga varlega til jarðar og velja vandlega það sem í dalinn kemur. Tökum heilshugar undir með umhverfis- og samgöngunefnd um að endurskoða deiliskipulag dalsins.$line$Margrét Júlía Rafnsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir, Sverrir Óskarsson, Guðmundur Geirdal og Helga Elínborg Jónsdóttir.$line$$line$Lagt fram og kynnt.
05
Umhverfis- og samgöngunefnd - 70. fundur
Lögð fram tillaga að framkvæmdum sumarið 2016 í samræmi við framlagða framkvæmdaráætlun á 69.fundi umhverfis- og samgöngunefndar 16. September 2015.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma framlagða tillögu að framkvæmdum sem gerir ráð fyrir að lagðar verði fram tillögur í umhverfis- og samgöngunefnd fyrir vormánuði þar sem tilgreint verða verkefni og áætlaður kostnaður ofangreindra liða sem rúmast þá innan fjárhagsáætlunar framkvæmdaársins 2016.
06
Umhverfis- og samgöngunefnd - 69. fundur
Lögð fram framkvæmdaáæltun fyrir Kópavogsdal og fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar 2016.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma framlagða framkvæmdaráætlun og vísar erindinu til umhverfissviðs til úrvinnslu.
07
Skipulagsnefnd - 1263. fundur
Margrét Júlía Rafnsdóttir hóf máls á mikilvægi þess að deiliskipuleggja Kópavogsdalinn. Umræða um málið fór fram í nefndinni.
08
Umhverfis- og samgöngunefnd - 61. fundur
Farið yfir skipulag Kópavogsdals og lagðar fram hugmyndir um að unnið verði heildarskipulag fyrir svæðið.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma fyrir sitt leiti að skipulags- og byggingardeild hefji vinnu við heildarskipulagningu svæðisins.
09
Skipulagsnefnd - 1253. fundur
Farið yfir skipulag Kópavogsdals og lagðar fram hugmyndir um að unnið verði heildarskipulag fyrir dalinn.
Skipulagsnefnd samþykkti að skipulags- og byggingardeild hefji vinnu við heildarskipulagningu svæðisins.