Beint í efni

Stuðn­ing­ur í skóla­starfi

Leik- og grunnskólar í Kópavogi eru skólar án aðgreiningar þar sem öll börn eiga að fá nám og stuðning við hæfi.

Hve­nær er gott að leita stuðn­ings?

Foreldrar og forsjáraðilar sem hafa áhyggjur af líðan, námi eða félagslegri stöðu barns geta rætt við kennara eða annað starfsfólk skólans. Þar geta þau fengið leiðbeiningar um næstu skref.

Einnig er hægt að hafa samband við skólaþjónustuna sem vinnur með nemendum, foreldrum og skólum á heildrænan hátt.

Gott er að leita stuðnings ef áhyggjur vakna um:

  • Námserfiðleika
  • Þroskafrávik
  • Félagslega erfiðleika
  • Einelti
  • Vanlíðan

Stuðn­ing­ur í grunn­skól­um

Ef foreldrar óska eftir stuðningi fyrir barn sitt eða aðkomu sérfræðinga er best að hafa samband við umsjónarkennara barnsins eða annað starfsfólk skólans.

Í grunnskólum Kópavogs starfa meðal annars:

Skóla­þjón­usta

Skólaþjónustan vinnur með nemendum, foreldrum og skólum á heildrænan hátt.

Áhersla er meðal annars á:

  • Snemmtæka íhlutun.
  • Gott upplýsingaflæði milli skólastiga.
  • Samvinnu milli skóla, foreldra og sérfræðinga.
  • Fræðslu fyrir börn, foreldra og starfsfólk.

Ráðgjöf og sérfræðiþjónusta

Ef foreldrar óska eftir ráðgjöf eða stuðningi fyrir barn sitt er best að byrja á að hafa samband við kennara eða annað fagfólk skólans.

Í gegnum skólaþjónustuna er meðal annars veitt:

Sér­stök stuðn­ings­úr­ræði

Stuðn­ing­ur við börn og fjöl­skyld­ur

Ef stuðningur innan skólastarfs dugar ekki til er fjölbreytt ráðgjöf og stuðningur í boði hjá velferðarsviði Kópavogs.

Sjá nánar

Námskeið

Að verða betri ég


Á menntasviði starfar forvarnarteymi sem samanstendur af fjölskyldufræðingi og foreldra- og uppeldisfræðingi. Teymið heldur námskeið í grunnskólum Kópavogs fyrir nemendahópa þar sem meginmarkmiðið er að efla tengslamyndum og stuðla að því að nemendum líði vel, bæði í leik og starfi.

Unnið er að því að:

  • Efla ábyrgð, viðhorf og skilning nemenda á líðan sinni.
  • Styrkja sjálfsmynd.
  • Efla samkennd
  • Ýta undir afstæða hugsun.
  • Stuðla að jákvæðu viðhorfi og vellíðan.
  • Læra og þjálfa núvitund.

Forvarnarteymið veitir einnig ráðgjöf til foreldra og býður upp á ýmis námskeið og fræðslu um uppeldi og velferð barna.

Skil milli skóla­stiga

Þegar barn flyst milli skólastiga er lögð áhersla á gott samstarf og upplýsingaflæði. Markmiðið er að tryggja samfellu í stuðningi og námi.