Beint í efni

Bú­seta og stuðn­ing­ur

Kópavogsbær rekur íbúðakjarna og heimili fyrir fatlað fólk sem hefur verið hannað með þarfir fatlaðs fólks í huga.

Fatlað fólk á rétt á húsnæði í samræmi við þarfir þess og óskir. Þjónusta stendur þeim til boða sem styður við sjálfstæða búsetu og á að auðvelda aðlögun og þátttöku í samfélaginu.

Heim­ili og íbúða­kjarnar

Bú­seta og stuðn­ing­ur
Búseta og stuðningur

Fatlað fólk sem þarf sérstakt húsnæði og stuðning getur sótt um búsetu í íbúðakjörnum. Þar fær fólk þjónustu eftir sínum þörfum allan sólarhringinn eða hluta úr degi.

Stuðn­ing­ur á eig­in heim­ili

Fatlað fólk hefur rétt á að velja hvernig og hvar það býr.

Í Kópavogi getur fatlað fólk fengið stuðning við heimilishald og til að lifa sjálfstæðu lífi hvort sem er í eigin íbúð, leiguíbúð á almennum markaði eða félagslegri leiguíbúð á vegum Kópavogsbæjar.

Hvernig er sótt um stuðning á heimili?

Sótt er um stuðnings- og stoðþjónustu á Minn Kópavogur.