20 ára afmæli Hæfingarstöðvarinnar
Hæfingarstöðin Dalvegi er 20 ára um þessar mundir.

Hæfingarstöðin Dalvegi er 20 ára um þessar mundir. Starfsfólk þar vinnur ýmis verkefni en með hæfingu er átt við starfs- og félagsþjálfun í þeim tilgangi að draga úr áhrifum fötlunar og auka hæfni til starfa og þátttöku í daglegu lífi. Lögð er áhersla á þjálfun sem viðheldur og eykur starfsþrek, sjálfstæði í vinnubrögðum og félagslega færni.
Í tilefni afmælisins er opinn handverksmarkaður í hæfingarstöðinni sem er til húsa að Dalvegi 18. Markaðurinn er opinn á opnunartíma hæfingarstöðvarinnar, frá kl. 08.00-16.00.
Sigrún Þórarinsdóttir sviðsstjóri kíkti í heimsókn í tilefni afmælisins og hitti þá Jón Kristján Rögnvaldsson skrifistofustjóra starfsstöðva og Þórð Guðmundsson yfirþroskaþjálfa á Hæfingastöðinni.
Fyrir áhugasöm er vert að benda á að aðkoman er í porti bakvið húsið.


