30 ára afmæli Hótel- og matvælaskólans fagnað
30 ára afmæli Hótel- og veitingaskólans í MK var fagnað með opnu húsi og skemmtilegum viðburðum föstudaginn 5. september.

30 ára afmæli Hótel- og veitingaskólans í MK var fagnað með opnu húsi og skemmtilegum viðburðum föstudaginn 5. september.
„Þessi dagur fór fram úr okkar björtustu væntingum. Við áttum von á góðri aðsókn, en alls ekki þessum mikla fjölda gesta,“ segir Haraldur J. Sæmundsson framkvæmdastjóri skólans.
Keppt var í kleinuhringjagerð, gúrkuskurði, japönsku matreiðslunámskeiði þar sem undirstaðan í kimchi-gerð var kennd og Artic Young Chef-undankeppninni svo eitthvað sé nefnt.
Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri var einn af dómurunum í kleinuhringjakeppninni en það var Marína Björk Halldórsdóttir, bakaranemi hjá Gulla Arnar, sem bar sigur úr býtum.
Auk Ásdísar sátu þau Billy Long, sendirherra Bandaríkjanna á Íslandi, Unnar Þór Bjarnason, lögreglumaður og starfsmaður Samfélagslögreglunnar og Pétur Sigurbjörn Pétursson hjá BVT, en þau styrktu keppnina og gáfu verðlaun.


