Bæjarstjórn fundar klukkan 9.30
Bæjarstjórnarfundur hefst klukkan 9.30 þriðjudaginn 24.nóvember í stað 16.00 sem er hefðbundinn fundartími Bæjarstjórnar Kópavogs.

Á dagskrá fundarins er seinni umræða um fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2027 og er ræðutími kjörinna fulltrúa ótakmarkaður.
Bæjarstjórnarfundur er í beinni útsendingu og er hægt að fylgjast með útsendingunni um vef Kópavobæjar.
Fjárhagsáætlun var lögð fram til fyrri umræðu þriðjudaginn 10.nóvember.


