Aðventuhátíð Kópavogs
Aðventuhátíð Kópavogs verður haldin laugardaginn 2. desember en við það tilefni verða ljósin á jólatré Kópavogsbæjar við menningarhúsin tendruð kl.16.00.Kk

Aðventuhátíð Kópavogs verður haldin laugardaginn 2. desember en við það tilefni verða ljósin á jólatré Kópavogsbæjar við menningarhúsin tendruð.
Ævintýrapersónur úr Jólaskógi stíga á svið og jólasveinar bregða sér í bæinn en ljósin á trénu verða tendruð klukkan 16.00 þar sem fram kemur Kór Hörðuvallaskóla. Skólahljómsveit Kópavogs flytur jólatónlist frá 15:40 . Frá klukkan 13 verður boðið upp á fjölbreytta aðventudagskrá fyrir alla fjölskylduna. Ilmandi aðventuóróar, úkraínskt hátíðarskraut, lifandi tónlist og notaleg aðventustemning. Hægt verður að kaupa ljúffengar veitingar frá Krónikunni í Gerðarsafni og í Forsal Salarins en þar verður jólamarkaður með fallegu handverki frá Hlutverkasetri, Tau frá Tógó og Ás vinnustofu. Ljúfir hátíðartónar hljóma í flutningi kóra og tónlistarhópa. Á útisvæði verður hinn ómissandi Möndlubás með ristaðar aðventumöndlur til sölu.
Verið hjartanlega velkomin.
Aðventusmiðjur 13:00 - 15:45 Óróasmiðja ÞYKJÓ (Bókasafn) 13:00 - 15:45 Jólaperlusmiðja (Bókasafn) 13:00 - 15:45 Úkraínsk aðventusmiðja (Gerðarsafn) 13:00 - 15:45 Jólaskúlptúrsmiðja (Salurinn)
Jólasögustund í Náttúrufræðistofu 14:00 - 14:15 Jólakötturinn með Arndísi Þórarinsdóttur 15:00 - 15:15 Jólakötturinn með Arndísi Þórarinsdóttur (Náttúrufræðistofa)
Jólaörtónleikar 14:00 - 14:15 Samkór Kópavogs (Salurinn) 14:15 - 14:30 Kór Hörðuvallaskóla (Gerðarsafn) 14:30 - 14:45 Kvennakór Kópavogs (Salurinn) 15:15 - 15:30 Barnakór Smáraskóla (Bókasafn) 15:40 - 16:00 Skólahljómsveit Kópavogs (Útisvæði)
Jólasveifla í Salnum 15:00 - 15:40 Kjalar Martinsson Kollmar, söngur og píanó, Alexander Grybos, gítar, Hlynur Sævarsson, kontrabassi
Jólamarkaður í Salnum 13:00 - 16:00 Fallegt handverk til sölu frá Hlutverkasetri, Tau frá Tógó og Ás vinnustofu
Tendrun jólatrésins 16:00 - 16:30 Ævintýrapersónur úr Jólaskógi ásamt Kór Hörðuvallaskóla. Jólasveinar mæta í bæinn og dansa í kringum jólatréð.
Bókasafn og Náttúrufræðistofa eru opin frá 11:00 - 17:00 og Gerðarsafn frá12:00 - 18:00.
Veitingasala Krónikunnar verður í Gerðarsafni og í Salnum og Möndlubásinn verður með ilmandi möndlur til sölu á útisvæði frá 13:00 - 17:00.
Njótum aðventunnar saman


