Beint í efni
Til baka í yfirlit

Að­ventu­há­tíð Kópa­vogs

Aðventuhátíð í Kópavogi verður haldin með pompi og pragt, laugardaginn 30. nóvember.

Aðventuhátíð í Kópavogi.
Aðventuhátíð í Kópavogi.

Aðventuhátíð í Kópavogi verður haldin með pompi og pragt, laugardaginn 30. nóvember. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri tendrar ljósin á jólatré Kópavogsbæjar við menningarhúsin við hátíðlega athöfn kl. 17. Jólasveinar bregða á leik, dansað verður í kringum jólatréð og fjöldi krakka í Kópavogi blása í lúðra og syngja falleg og skemmtileg jólalög. Boðið verður upp á fjölbreyttar aðventusmiðjur frá klukkan 15. Pólsk brúðusmiðja, fóðurkönglagerð fyrir fugla, jólagjafasmiðjur, jólatónlist og lesið verður upp úr jóladagatali sem Eygló Jónsdóttir rithöfundur skrifaði upp úr hugmyndum barna í Kópavogi. Systir jólasveinanna mætir með fullt af tröllafötum úr Grýluhelli og býður mannabörnum að klæða sig sem tröllabörn. Tröllastelpa kennir krökkum á öllum aldri að dansa við dillandi jólalög. Og að sjálfsögðu mæta jólasveinar á svæðið og leiða dans í kringum jólatréð ásamt vinkonu sinni henni Rófu. Nemendur úr Tónlistarskóla Kópavogs flytja fallega jólatónlist á aðventutónleikum á bókasafninu. Í forsal Salarins mun bæjarlistamaður Kópavogsbæjar, Kristofer Rodriguez Svönuson, trommu- og slagverksleikari bjóða upp á jólajazz ásamt Daníel Helgasyni gítarleikara og Hannesi Helgasyni hljómborðsleikara og Kvennakór Kópavogs flytur kyrrláta vetrartóna. Verið öll hjartanlega velkomin

Dagskrá:

Á útisvæði menningarhúsanna

15:00 - 16:30 Systir jólasveinanna mætir með fullt af tröllafötum úr Grýluhelli og býður mannabörnum að klæða sig sem tröllabörn. 15:00 - 16:30 Tröllastelpa kennir krökkum á öllum aldri að dansa við dillandi jólalög. 16:30 Jólalagasveifla með Skólahljómsveit Kópavogsbæjar Kórar úr Smáraskóla og Hörðuvallaskóla syngja jólalög ásamt Ástvaldi Traustasyni á harmonikku. Stjórnendur kóranna eru Ásta Magnúsdóttir og Ása Valgerður Sigurðardóttir. 17:00 Ásdís Kristjansdóttir bæjarstjóri tendrar ljósin á jólatré Kópavogsbæjar. Kynnar eru undraverur úr Jólalundi. Jólasveinar mæta og slá upp dansiballi í kringum jólatréð.

Bókasafn Kópavogs 15:00-16:30 Skreytum jólatré Gloríu 15:00-16:30 Jóladýr og jólaverur - föndur 15:00-16:30 Jólagjafasmiðja 11+ - þrívíddarpennar og perluarmbönd 15:15 / 15:45 / 16:15 Jólasögustund með Eygló Jónsdóttur 16:00 Nemendur í Tónlistarskóla Kópavogs spila jólalög Jólaratleikur og innpökkunarstöð á opnunartíma safnsins.

Gerðarsafn 14:00-16:00 Pólsk brúðusmiðja með Styrmi Erni Guðmundssyni og Agötu Mickiewicz 15:00-16:30 Dj. Sunna Ben þeytir jólaskífum og skemmtilegri músík á Krónikunni Sýningarnar Gerður grunnsýning, Óstöðugt land og Parabóla eru opnar frá 12:00 - 18:00.

Náttúrufræðistofa 15:00-16:30 Fóðurkönglar fyrir fugla- Fræðsla og föndur með líffræðingnum Hlyni Steinssyni. Grunnsýning Náttúrufræðistofu verður opin frá 11:00 - 17:00.

Salurinn 15:00: Fönkskotinn jólajazz með bæjarlistamanninum Kristófer Rodriguez Svönuson, slagverksleikara, Daníel Helgasyni, gítarleikara og Hannesi Helgasyn, hljómborðsleikara. 16:00: Vetrartónar með Kvennakór Kópavogs undir stjórn Margrétar Eir.

Við hlökkum til að sjá ykkur í hátíðarskapi