Æfingum í félagsmiðstöðvum eldri borgara fjölgar
Æfingum í félagsmiðstöðvum eldri borgara á vegum Virkni og vellíðan hefur verið fjölgað úr einni í tvær á viku.

Æfingum í félagsmiðstöðvum eldri borgara á vegum Virkni og vellíðan hefur verið fjölgað úr einni í tvær á viku.
Sumarið 2022 var farið af stað með æfingar á vegum Virkni og Vellíðan í félagsmiðstöðvum eldra fólks, Boðaþingi, Gjábakka og Gullsmára. Í ársbyrjun 2024 var ákveðið að fjölga æfingum úr einni æfingu á viku í tvær. Á æfingunum er lögð áhersla á styrk, þol, liðleika og jafnvægi sem er í takt við það sem rannsóknir sýna að séu æskilegar eldri aldurshópum. Fyrstu vikurnar fara vel af stað og góð þátttaka. Æfingar fara fram á miðvikudögum og föstudögum sem hér segir: Boðaþing: Miðvikudaga kl. 09.45 og föstudaga kl. 14.45. Gullsmári: Miðviku- og föstudaga kl. 10.45 Gjábakki: Miðviku- og föstudaga kl. 12.45 Þjálfari er Elísa Weisshappel. Virkni og vellíðan er heilsueflingarverkefni Kópavogsbæjar fyrir eldra fólk.


