Beint í efni
Til baka í yfirlit

Af­hentu bæj­ar­stjóra und­ir­skrift­ar­lista vegna Þorra­sala

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs tók við undirskriftalista frá íbúum í Þorrasölum þar sem íbúar mótmæla harðlega áformum Garðabæjar um lagningu vegar frá Vorbraut að Öldusölum.

Undirskriftarlisti íbúa í Þorrasölum afhentur.
Geir Jón Grettisson og Bertha Kristín Jónasdóttir íbúar í Þorrasölum ásamt Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra við afhendingu undirskriftarlista íbúa.

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs tók við undirskriftalista frá íbúum í Þorrasölum þar sem íbúar mótmæla harðlega áformum Garðabæjar um lagningu vegar frá Vorbraut að Öldusölum. Undirskriftalistinn var afhentur af þeim Geir Jón Grettissyni og Berthu Kristínu Jónasdóttur íbúum í Þorrasölum 9 en alls skrifuðu 351 íbúi undir listann.

„Ég tel mikilvægt að Kópavogsbúar séu meðvitaðir um afstöðu bæjarins sem hefur á öllum stigum gert athugasemdir við veginn, sem liggur í landi Garðabæjar, en bærinn hefur gert þá kröfu að vegurinn verði lagður í stokk eða lega hans endurskoðuð. Undirskriftarlistinn endurspeglar afstöðu íbúa sem eru verulega ósáttir við þessi áform enda sýna greiningar að ekki er þörf á veginum miðað við núverandi tengingar,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.

Kópavogsbær hefur gert athugasemdir við áform Garðabæjar um veg frá Vorbraut að Öldusölum á öllum stigum í skipulagsferlinu sem hafa byggst á því að vegurinn muni valda íbúum á svæðinu verulegu raski. Þá sýndi umferðagreining, sem Kópavogsbær lét vinna, að ekki er þörf á vegtengingunni þar sem núverandi tengingar anni vel þeirri umferð sem áætluð er um svæðið. Vegurinn er hluti af nýju skipulagi Garðabæjar í Hnoðraholti.