Beint í efni
Til baka í yfirlit

AUG­LÝST EFT­IR BÆJ­AR­LISTA­MANNI 2022

Lista- og menningarráð Kópavogs auglýsir eftir umsóknum eða ábendingum um bæjarlistamann Kópavogs.

AUGLÝST EFTIR BÆJARLISTAMANNI 2022
AUGLÝST EFTIR BÆJARLISTAMANNI 2022

Lista- og menningarráð Kópavogs auglýsir eftir umsóknum eða ábendingum um bæjarlistamann Kópavogs. Þeir listamenn koma einir til greina sem eiga lögheimili í Kópavogi. Bæjarlistamaður Kópavogs skal vera tilbúinn til að vinna með Kópavogsbæ að því að efla áhuga á list og listsköpun í bænum og taka þátt í viðburðum bæjarins með það að leiðarljósi.

Styrkupphæð bæjarlistamanns er 1,5 milljónir króna.

Lista- og menningarráð fer yfir umsóknir og ábendingar. Í þeim skulu koma fram upplýsingar um náms- og starfsferil viðkomandi og hugmyndir um með hvaða móti bæjarlistamaður hyggst auðga lista- og menningarlíf bæjarbúa. HÆGT ER AÐ SENDA INN UMSÓKN EÐA ÁBENDINGU FYRIR 16. APRÍL Á NETFANGIÐ MENNING@KOPAVOGUR.IS .