Beint í efni
Til baka í yfirlit

Aug­lýst eft­ir um­sókn­um um styrki til vel­ferðar- og mann­rétt­inda­ráðs

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki fyrir árið 2027

Ár hvert veitir velferðar- og mannréttindaráð Kópavogs hagsmuna- og félagasamtökum styrki til verkefna á sviði velferðarmála, auk verkefna sem stuðla að eflingu mannréttinda og jafnréttis í Kópavogi.

Velferðar- og mannréttindaráð auglýsir eftir:

  • Umsóknum um styrki til verkefna á sviði velferðarmála sem gagnast íbúum í Kópavogi á árinu 2027. Styrkir eru veittir hagsmuna- og félagasamtökum.
  • Umsóknum um styrki til verkefna sem stuðla að mannréttindum og jafnrétti í þágu íbúa Kópavogs á árinu 2027. Styrkir eru veittir einstaklingum, stofnunum, hagsmunasamtökum eða öðrum hópum.

Umsóknum skal skilað fyrir 13. nóvember næstkomandi á netfangið velferd@kopavogur.is