Bæjarstjórn fundaði með börnum og ungmennum
Bæjarstjórn Kópavogs fundaði með fulltrúum ungmennaráðs og grunnskólabarna bæjarins þriðjudaginn 12.maí.

Bæjarstjórn Kópavogs fundaði með fulltrúum ungmennaráðs og grunnskólabarna bæjarins þriðjudaginn 12.maí. Á fundinum voru lagðar fram tillögur Barna- og ungmennaþings en það er einn af hornsteinum barnvæns sveitarfélags, eins og Kópavogur er, að börn og ungmenni fái að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
Fulltrúar grunnskólabarna mættu til fundarins með sex tillögur sem eru afrakstur skólaþinga í grunnskólum bæjarins og Barnaþings sem haldið var í mars síðastliðnum. Barnaþing vann úr tillögunum og setti í umsögn og kosningu meðal barna bæjarins. Þá kynntu fulltrúar ungmennaráðs fimm tillögur sem eru afrakstur ungmennaþings.
Barnaþingmenn lögðu meðal annars til að skipulagsdagar verði tengdir við helgar, að yngri en 18 ára fái strætókort frá Kópavogsbæ, að sett verði upp klósettrennibraut í Kópavogslaug og hugað verð að gæðum matar fyrir nemendur.
Fulltrúar ungmennaráðs lögðu meðal annars til að Inna verði notuð í grunnskólum í stað Mentor, að fleiri ruslatunnur verði settar á almannafæri og fjármagn í list- og verkgreinar verði aukið.
Bæjarfulltrúar brugðust við tillögunum og fögnuðu tækifærinu til að funda með börnum og ungmennum. Tillögurnar sem voru bornar fram verða settar í farveg innan sveitarfélagsins.
Tillögur Barnaþings Kópavogs
- Að ungmenni undir 18 ára fái strætókort frá Kópavogsbæ.
- Skipulagdagar settir sem oftast upp við helgi (mánudag eða föstudag) að minnsta kosti í tengslum við sameiginlega skipulagsdaga í öllum grunnskólum Kópavogs.
- Klósettrennibraut eins og á Akureyri í Kópavogslaug.
- Lengja opnun sundlauga, sérstaklega um helgar.
- Huga að gæðum matar fyrir nemendur.
- Fjölbreyttari morgunmat (ekki bara boðið uppá hafragraut)
Tillögur Ungmennaþings Kópavogs
· Fleiri ruslatunnur á almannafæri.
· Nota Innu í grunnskólum í stað Mentor.
· Kópa á umferðarljósin (eins og í Smáralindinni).
· Meira fjármagn í list- og verkgreinar og valáfanga.
· Fleiri tónleika í Kópavogi og nýta Molann miðstöð unga fólksins betur í slíka viðburði.


